Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands - 01.12.1995, Blaðsíða 20
Til heilla skal hús byggja
Föstudaginn 3. nóv. sl. var formlega í notkun tekið
hið nýja og glæsilega húsnæði að Hátúni 10 d þar
sem Starfsþjálfun fatlaðra og Tölvumiðstöð
fatlaðra munu hafa framtíðarathvarf gott. Mikill fjöldi
góðra gesta sótti hátíð þessa heim og m.a. var hópur fyrrum
nemenda skólans, sem setti skemmtilegan svip á athöfn
alla. Það var stjórnarformaður Starfsþjálfunar fatlaðra,
Margrét Margeirsdóttir
deildarstjóri, sem stjóm-
aði samkomunni og flutti
ávarp í upphafi. Hún
bauð alla hjartanlega
velkomna og fyrrver-
andi nemendur alveg
sérstaklega. Hún kvað
bæði Starfsþjálfun fatl-
aðra og Tölvumiðstöð
fatlaðra eiga sér ámóta
langa sögu og í raun
þróast hlið við hlið og
færi vel á því að hið nýja
glæsilega hús hýsti báðar.
Hún minnti á hve
Öryrkjabandalagið hefði
verið báðum bakhjarl
traustur og þakkaði það.
Hönnuðir hússins voru
þeir Vilhjálmur Hjálm-
arsson arkitekt og Vífill
Oddsson verkfræðingur
ásamt samstarfsfólki á
Teiknistofunni Óðinstorgi. Verktaki framkvæmda var Ami
Jóhannesson og eftirlitsmaður Guðni Walderhaug og færði
Margrét þeim og öllum, sem að hefðu komið hugheila
þökk. Hún kvað húsið vera veglega umgjörð um þessa
þýðingarmiklu starfsemi sem áunnið hefði sér sess og
sannað gildi sitt.
Félagsmálaráðherra, Páll Pétursson, flutti því næst
ávarp. Hann samfagnaði í upphafi Starfsþjálfun og
Tölvumiðstöð með þennan glæsta áfanga, minnti á hve
miklu tölvubyltingin hefði mörgum skilað einmitt á
þessum vettvangi. Hann rakti aðeins aðdragandann, Skóla
fatlaðra, sem Rauði krossinn, ÖBÍ og SEM - samtökin
hefðu staðið að og gat um góðan hlut fv. félagsmála-
ráðherra, Alexanders Stefánssonar að stofnun Starfs-
þjálfunar fatlaðra, sem síðan hefði verið samstarfsverkefni
ráðuneytis og Öryrkjabandalagsins. Hann kvað
Framkvæmdasjóð fatlaðra alfarið hafa kostað bygginguna,
svo og tekið ríkan þátt í búnaði þ.m.t. tölvukaupum. Lagði
áherzlu á alhliða starfsráðgjöf og fræðslu til fatlaðra svo
auka mætti sem mest atvinnuþátttöku þeirra. Færði hlýjar
hamingjuóskir . Jón Torfi Jónasson, stjórnarform. Tölvu-
miðstöðvar, lýsti yfir mikilli ánægju með þessi tímamót
hjá Tölvumiðstöð. Hann greindi frá upphafi starfseminnar
og gat sérstaklega um hlut Hrafns Sæmundssonar að því.
Rakti síðan nokki'a helztu þættina í starfseminni, kvað
ráðuneytið hafa góðan skilning sýnt og sagði sambýli
þessara tveggja stofnana afar dýrmætt.
Forstöðumaður Starfsþjálfunar, Guðrún Hannesdóttir,
sagði þetta vera stórkostlega stund s.s. á óskastund
hefði verið hitt hvað framkvæmdina snerti þar sem
heilladísirnar hefðu að
verki verið. Vissulega
væri þetta glæsilega hús
viðurkenning á starfinu
sem þama færi frarn. Hún
lýsti svo starfseminni
nokkuð. Hún sagði 12
hópa alls hafa í Starfs-
þjálfun komið - 98 hefðu
öllum þrem önnum lokið
og 200 einstaklingar á
námskeiðum verið. Hún
færði Margréti Margeirs-
dóttur sérstakar þakkir
fyrir hennar ötula stuðn-
ing og óbilandi áhuga.
Þakkaði einnig sérstak-
lega fyrrverandi stjómar-
mönnum, Amþóri Helga-
syni og Ingimundi
Magnússyni, enda fynd-
ist henni ævinlega sem
hér væri um sérstakt af-
kvæmi Arnþórs að ræða.
Færði einnig alúðarþakkir öllum sem hefðu komið að
verki, svo húsnæðið yrði fullbúið og færði starfsfólki
Öryrkjabandalagsins einlægar þakkir fyrir samstarf áranna.
Sigrún Jóhannsdóttir, forst.m. Tölvumiðstöðvar, kvað þetta
ánægjuefni mikið öllum sem að kæmu á einhvern veg. I
nýju, rúmgóðu húsnæði yrði enn betra að sinna mikil-
vægum verkefnum, því meginhlutverki sem ætlað væri
að inna af hendi. Fór svo yfir upplýsinga- og ráðgjafar-
hlutverk Tölvumiðstöðvar. Nauðsynin mest væri að
fylgjast sem bezt með og tileinka sér nýjungar í hraðfara
þróun og koma þekkingu og möguleikum sem mest og
bezt til skila. Þá kom Árni Jóhannesson, verktaki hússins,
afhenti lyklana og færði Starfsþjálfun um leið gjöf, sagði
að einkar ánægjulegt hefði verið að vinna að þessu
verkefni.
s
Olöf Ríkarðsdóttir, formaður Öryrkjabandalagsins,
flutti alúðarfyllstu heillaóskir. Hún kvað bandalaginu
rnikið ánægjuefni að hafa mátt taka svo myndarlegan þátt
í metnaðarfullu starfi. Menntun væri einn af hornsteinum
velferðarinnar. Öryrkjabandalagið veitti áárinu 1.5. millj.
kr. til búnaðarkaupa og við þetta tækifæri afhenti Ólöf
einnig peningagjöf sem til tækjakaupa skyldi renna. Steinn
Guðmundsson frá Oddfellowstúkunni Skúla fógeta færði
fram hamingjuóskir hlýjar og færði Starfsþjálfun að gjöf
20