Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands - 01.12.1995, Side 21
Gnótt var góðra gesta.
frá stúkunni tvær tölvur af fullkomnustu gerð. Þá talaði
Tómas Helgason, stjórnarform. Hússjóðs Öryrkjabanda-
lagsins og færði fram árnaðaróskir. Stjórn Hússjóðs hefði
við hæfi þótt, þegar flutt væri úr húsakynnum Hússjóðs
að láta fylgja heimanmund nokkum og afhenti peningagjöf.
Helgi Seljan færði fram heillaóskir Stjórnarnefndar um
málefni fatlaðra sem hefði hratt og vel innt af hendi framlög
til þessa húss. Hann fór einnig með erindi tvö sem hér
fylgja með.
Með atfylgi góðu er áfanga náð
sem undurvel fagna má.
Hér verða mun fjölmörgu frækorni sáð
framtíðarveginum á.
Hér glímu menn þreyta á þroskaleið
og þrótt til athafna finna,
að farsældar verði þeim gatan greið
gjöfulum verkum að sinna.
Hér mannlíf grói með sóma og sann
í sókninni fram á við.
Með námi menn öðlast auðinn þann
þar andinn á veitul mið.
Og iðkuð verði sú lærdómslist
sem lán og farsæld mun glæða.
í Hringsjá eigi fólk væna vist
á vegi til sannra gæða.
✓
Olafur Jakobsson úr hópi núverandi nemenda kvaðst
í skýjunum vera yfir þessum glæsilega áfanga. Færði
heillaóskir nemenda skólans sem hefðu honum svo mikið
að þakka. Elín Sigurðardóttir, fyrrv. nemi í Starfsþjálfun
fatlaðra flutti svo ávarp sem í heild er hér birt.
Gestir þágu góðar veitingar og ekki má gleyma hinum
ljúfu harmonikkuhljómum sem gestum mættu við komuna
og fylgdu þeim einnig út í kvöldkyrrðina en sá snillingur
tónanna, Reynir Jónasson, var þar að verki. Allra heilla er
árnað þeim sem þarna starfa og nema í nútíð og framtíð.
H.S.
Elín Sigurðardóttir:
s
Arnað hamingju og heilla
Hér komum við saman til að
fagna þessum stóra áfanga í
starfi Starfsþjálfunar fatlaðra, þegar
starfsemin flytur í nýtt og betra
húsnæði. Það er mikið fagnaðarefni
fyrir öryrkja að í þessu efni erum við
í sókn. Öryrkjar eru því miður á
flestum vígstöðvum í vöm og baráttan
nú erfið og göngum við þar eftir
grýttum vegi, en sókn er besta vörnin
og er ánægjulegt að ganga hér um og
sjá hvað vel er hugsað um þarfir
nemenda og öllu haglega fyrir komið.
Mig langar að nota tækifærið fyrir
hönd nemenda fyrr og nú að þakka
öllum þeim sem komu nálægt og unnu
fyrir Starfsþjálfun fatlaðra til að koma
þessari byggingu upp. Við skulum
hafa það hugfast að hér er um
brautryðjendastarf að ræða og Island
er að ég held eina landið sem býður
upp á skóla sem þennan. Hér er komið
nýtt skólahúsnæði sem lengi hefur
verið draumur allra þeirra sem láta sér
annt um Starfsþjálfun fatlaðra.
Starfsþjálfun getur skipt miklu
fyrir öryrkja sem verður að
skipuleggja og breyta lífi sínu eftir
veikindi eða slys, þá getur það skipt
öllu að fá aðstoð og hjálp til að byrja
upp á nýtt. Það er ekki auðvelt skref
fyrir nemandann að koma sér til náms
eftir áfall, ég fullyrði að hér skapast
sú vinátta sem hjálpar ekki bara yfir
fyrsta þröskuldinn, hér hittist fólk sem
allt hefur upplifað svipaða reynslu og
skilur hvert annað og gerir hvað það
getur til að létta hvert öðru róðurinn
með hjálp góðra kennara. Hér er allt
nýtt og fallegt, en þó er það von mín
að þið takið með ykkur eitt frá níundu
hæðinni niður á jörðina, það eru ekki
gömlu tölvurnar sem lemja varð létt
á svo þær færu í gang ef þær þá fóru
af stað, nei og það er ekkert sem
teiknað er af arkitektum né smíðað á
verkstæðum og listamaðurinn getur
ekki einu sinni skapað það. Þessi skóli
getur ekki án þess verið þó það sjáist
ekki við fyrstu sýn, og hvað er það
svo gott fólk. Jú það er góði andinn
sem alltaf var í gamla skólanum, andi
samvinnu og samhjálpar, ef einhver
gat ekki eitthvað kom sá sem betri var
og aðstoðaði. Þar var ekki vítt til
veggja og oft þröngt á þingi en þar
sannaðist að þröngt mega sáttir sitja.
Ef sá andi verður áfram mun skóli
þessi eflast og skila góðu. Að endingu
hjartanlega til hamingju með nýja
húsið, ég óska kennurum og nemend-
um sem hér eiga eftir að stunda nám
Guðs blessunar og megi gæfa og gleði
ætíð vera með þeim sem hér dvelja.
Elín Sigurðardóttir, fyrrverandi
nemandi í Starfsþjálfun fatlaðra.
FRÉTTABRÉF ÖRYRKJABANDALAGSINS
21