Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands - 01.12.1995, Side 25
Höfundur á ráðstefnu ÖBÍ - léttur í lund.
taki fullt tillit hver til annars og sýni
ábyrgð í umgengni og viðskiptum.
Þrátt fyrir lélegan fjárhag verða
fatlaðir, eins og aðrir, að standa skil á
leigu. Vanskil lenda á öðrum íbúum
eða leiða til þess, að ekki verður hægt
að leysa brýnar húsnæðisþarfir ann-
arra fatlaðra. Nauðsynlegt er að halda
húsnæðinu vel við og kaupa meira.
Það verður ekki hægt ef gengið er á
tekjustofn Hússjóðs með því að borga
ekki leigu eða ef Lottótekjurnar verða
skertar frá því sem nú er. Slíkt mundi
draga úr h'fsgæðum öryrkja og fatl-
aðra sem þegar eru minni en skyldi.
Lokaorð
Þessar fyrstu niðurstöður, sem hér
hefur verið sagt frá, gefa vís-
bendingar um heilsutengd lífsgæði
göngu, starf og örorkumat.
Þá er spurt um fjölskyldustærð,
húsnæði og fyrri alvarleg veikindi eða
slys. Öll þessi atriði hafa áhrif á lífs-
gæðin. Sérstaklega skipta spurning-
arnar um húsnæði máli fyrir þann sem
þetta ritar.
Lífsgæði fatlaðra
egar lokið var frumgerð prófsins,
var nauðsynlegt að rannsaka
gagnsemi og eiginleika þess frekar.
Var þá rneðal annars leitað til unt 50
leigjenda í íbúðum Hússjóðs Öryrkja-
bandalagsins og þeir beðnir að svara
spurningalistunum. Það kemur les-
endum þessa blaðs varla á óvart að
niðurstöður prófsins sýndu, að
lífsgæði fatlaðra eru verulega lakari
en heilbrigðra, en ívið skárri en sjúkl-
inga á sjúkrahúsum. Af einstökum
þáttum var ekki marktækur munur á
svefni og sársauka hjá fötluðum og
heilbrigðum. A öllum öðrum þáttum
voru lífsgæði fatlaðra lakari. Sérstak-
lega er áberandi, að líkamleg líðan,
fjárhagur, almennt heilsufar og þrek
fatlaðra er lakara.
Það er ljóst, að samtök fatlaðra
eiga mikið starf fyrir höndum til að
bæta lífsgæði þeirra, að svo miklu
leyti sem unnt er. Allir þættir lífs-
gæðanna, sem hér er fjallað um, eru
nátengdir og hafa áhrif hver á annan,
þannig að batni einn þáttur, má gera
ráð fyrir að það hafi jákvæð áhrif á
aðra þætti og að lífsgæðin í heild verði
betri.
Húsnæðismál
agsmunabarátta samtakanna,
sem fyrst og fremst miðar að
því að tryggja afkomu, félagslegt
jafnrétti og möguleikana á að hafa
stjórn á eigin lífi, hefur afgerandi
áhrif. Árangur þessarar baráttu
samtakanna getur bætt nokkuð upp
það sem einstaka meðlimi þess vantar
í þreki, líkamlegri líðan og almennu
heilsufari, svo og til að draga úr
depurð og kvíða þeirra. Hluti þessarar
hagsmunabaráttu er öflun húsnæðis á
viðráðanlegum kjörum. Þar verða
allir fatlaðir að sitja við sama borð,
hver sem fötlunin er, en þó þannig,
að þeir sem brýnasta hafa þörfina njóti
forgangs. Ohjákvæmilegt er, að þeir
sem fá fbúðir á vegum Hússjóðsins,
fatlaðra og hverjar þurfi að vera
áherslur Öryrkjabandalagsins til að
bætaþau. Töluverð vinna er enn eftir
við lagfæringar á HL-prófinu til þess
að sníða af því agnúa og gera það
handhægara, svo að það nýtist flestum
hópum fatlaðra og sjúkra.
Sérstakt þakklæti vil ég færa
Kristínu Jónsdóttur, starfsmanni á
skrifstofu Hússjóðsins, fyrir að leggja
prófið tvívegis fyrir 50 leigjendur
sjóðsins. Jafnframt þakka ég þessum
leigjendum þolinmæðina við að
útfylla spurningalistana og þar með
við endanlega gerð prófsins.
Tómas Helgason prófessor
og form. stjórnar Hússjóðs.
FRÉTTABRÉF ÖRYRKJABANDALAGSINS
25