Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands - 01.12.1995, Blaðsíða 26
Frá aðalfundi
• • /
Oryrkjabandalags Islands
Laugardaginn 14. okt. sl. var
34. aðalfundur Öryrkja-
bandalags íslands haldinn að
Grand Hótel Reykjavík og hófst hann
kl. 9 árdegis.
Formaður bandalagsins, Ólöf Rík-
arðsdóttir, setti fund og bauð fólk vel-
komið til fundar. Borizt höfðu kjör-
bréf fyrir 61 fulltrúa frá 21 félagi.
Fundinn sátu fulltrúar félaga, starfs-
fólk og gestir, svo fundargestir munu
alls hafa verið nær 80 talsins.
Fundarstjórar voru þau Helgi
Hjörvar og Þórey J. Ólafsdóttir og til
fundarritunar voru þeir valdir Helgi
Hróðmarsson og Ólafur H. Sigur-
jónsson.
Fyrsta dagskrármál aðalfundar var
aðildarumsókn Foreldrafélags mis-
þroska barna. Stjórn bandalagsins
lagði einróma til við aðalfundinn, að
umsóknin yrði samþykkt og var svo
gert samhljóða svo og fagnað með
lófataki.
Formaður félagsins, Matthías
Kristiansen, þakkaði hinar góðu
viðtökur og fagnaði því að félagið
skyldi orðið aðildarfélag Öryrkja-
bandalagsins. Markmið félagsins
væri að fræða um eðli misþroska og
leita úrlausna þeim til handa er fyrir
yrðu.
Því meiri sem vitneskjaþeirra væri
um misþroska og afleiðingar hans,
þeim mun frekar fyndist þeim sem
félagið ætti erindi inn í Öryrkja-
bandalagið. Misþroski gæti enda til
fullrar örorku leitt og fyrir þá sem
harðast yrðu úti þyrfti mest að vinna
og bandalagið væri þar kjörinn vett-
vangur. Fyrirþessu nýjaaðildarfélagi
verður gerð nánari grein hér í blaðinu.
Annað dagskrármál fundarins var
svo skýrsla stjórnar sem for-
maður Ólöf Ríkarðsdóttir flutti. Hún
fagnaði aðild nýs félags og kvað fé-
lögin nú 22 eins og reglur Sameinuðu
þjóðanna. Minnti í upphafi rnáls á
góða og velheppnaða ráðstefnu um
meginreglur SÞ daginn áður, fyrstu
almennu kynninguna á þessum regl-
um. Stjórnarfundir voru alls 4 á
starfsárinu og 11 fundir framkvæmda-
stjórnar.
Hún kvað nú harkalega vegið að
kjörum öryrkja og höfuðverkefni nú
að hnekkja þeirri atlögu. Endurskoð-
un tryggingalöggjafar stæði fyrir
dyrum og þar yrði Helgi Seljan fulltrúi
bandalagsins. Þar yrði vel á verði að
vera, ef miða ætti við áform fjárlaga-
frumvarps nú. Ólöf minnti á hina
margþættu fyrirgreiðslu er fram færi
á vegum bandalagsins og vék sérstak-
lega að lögfræðiþjónustunni sem
Jóhannes Albert Sævarsson annast. í
stuttri samantekt hans sem Ólöf flutti
kom fram að viðtöl á liðnu starfsári
hefðu verið nálægt 250 og ótal símtöl
til viðbótar. Helztu mál væru: Af-
greiðsla Tryggingastofnunar ríkisins
og tryggingaráðs á málum lífeyris-
þega, skattamál hvers konar og
ágreiningur við hinar ýmsu stofnanir
sem oft leiddi til málshöfðunar, þar
sem gjafsóknarleið væri þá farin.
Jóhannes kvaðst þess fullviss að
starfsemin ætti ríkan rétt á sér. Þá vék
formaður að stefnuskrárvinnu þeirri
sem fram hefur farið undir styrkri
stjórn Emils Thóroddsen, en 4 langir
og strangir vinnufundir hefðu verið
haldnir og gestgjafar verið: Reykja-
lundur, Sjálfsbjörg, Styrktarfélag
vangefinna auk bandalagsins sjálfs.
Um drög að stefnumörkun verður
síðar fjallað. Því næst sagði formaður
frá nefndarstarfi á ráðuneytisgrunni
vegna beiðni Þroskahjálpar um aðild
að tekjum ÖBI frá Islenzkri getspá,
en gerð hefði verið glögg grein fyrir
öllum málum af hálfu bandalagsins
þar sem m.a. hefði komið fram hver
hlutur þroskaheftra í húsnæði banda-
lagsins væri en hann næmi um 22%.
Afram yrði fylgst rækilega með, svo
mikið sem í húfi væri. Þá sagði hún
frá samstöðuhátíðinni á Sauðárkróki
sem var hin bezta og hefur fengið sína
umfjöllun hér.
Formaður taldi heimsóknir þessar
sem og til einstakra félaga okkar hinar
beztu og þyrfti betur að sinna.
Hún gat um hinn glæsilega áfanga
hjá Starfsþjálfun fatlaðra með
húsnæðinu nýja, þar sem Tölvumið-
stöð fatlaðra yrði einnig.
Ólöf gat því næst um lærdómsríka
heimsókn til Hjálpartækjamiðstöðvar
T.R. þar sem endurnýting yxi stöðugt
og væri nú komin yfir 50%.
Þá kom hún inn á heimsóknir er-
lendra gesta, sænskir hópar tveir,
psoriasisfólk og blindir og sjónskertir,
svo og hefðu danskir djáknar hingað
komið.
Formaður minnti þessu næst á dýr-
mæti styrkveitinga bandalagsins fyrir
aðildarfélögin svo og fleiri og gleði-
26