Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands - 01.12.1995, Blaðsíða 28
Formaður stjórnar Vinnustaða ÖBÍ gerir grein
fyrir þeirri mætu starfsemi.
Þar eru mörg mæt fróðleikskorn en á
fátt eitt drepið hér.
Tekjur bandalagsins af íslenzkri
getspá voru rúmar 166 millj.kr. og af
þeim fékk Hússjóður rúmlega 106
millj. kr.
Rekstrargjöld bandalagsins voru
tæplega 14.8 millj.kr.; styrkir til
félaga rúmlega 6.1 millj.kr.; aðrir
styrkir rúmar 10.2 millj.kr. þar sem
Vinnustaðir bandalagsins fengu tæpar
5.9 millj.kr.; Starfsþjálfun fatlaðra
rúmlega 1,1 millj.kr.; Sjóður Odds
Olafssonar 1 millj.kr.; Samstarf ÖBÍ
og Þroskahjálpar 500 þús.kr. og sama
upphæð fór til Tölvumiðstöðvar fatl-
aðra, svo á því helzta sé gripið af öðr-
um styrkveitingum. Fréttabréfið kost-
aði 4.7 millj.kr..
Önnur gjöld eru að langmestu leyti
til atvinnumála fatlaðra þar sem er
Glitmálið gjaldfreka helzt og fyrst.
A reikninga Hússjóðs er minnt í
skýrslu Tómasar Helgasonar, en þar
kemur fram að leigutekjur upp á 101
millj.kr. hrökkvi ekki til vegna út-
gjalda, svo sízt rnunu leigugjöldin of
há.
Fasteignir nema að frádregnum
afskriftum 1.45 milljörðum kióna, en
skuldabréfalán (Húsnæðisstofnun
ríkisins) nema rúmum 760 millj.kr.
Rekstrartekjur Vinnustaða ÖBÍ
voru 24,3 millj.kr., en rekstrargjöld
tæpar 36 millj.kr.
Framlag ríkisins vegna hallarekstr-
ar var aðeins 5.7 millj.kr. á móti 5.8
millj.kr. rúmum sem framlag ÖBI var
á árinu.
Starfsþjálfun fatlaðra var með tæp-
ar 8.7 millj.kr. í rekstrartekjur og
rúmar 11,9 millj.kr. í rekstrargjöld.
Þar kom á móti styrkur frá ÖBÍ upp á
rúma 1.1 millj.kr. og frá Starfsmennta-
sjóði 666 þús.kr.
Margar fleiri fróðlegar tölur mætti
tíunda en leiðigjarnt til lestrar.
Allir reikningar voru síðan sam-
hljóða samþykktir. I almennum um-
ræðum varpaði Tómas Helgason því
fram til umhugsunar hversu félags-
málastofnanir gerðu út á Hússjóð, en
þeirra væri frumskylda til hjálpar að
sjálfsögðu. Allnokkur umræða varð
og um vanda minni félaga til umsvifa
allra og nauðsyn á samvinnu þeirra í
milli um aðstöðu og upplýsingagjöf
Helgi Hróðmarsson starfsmaður
samvinnunefndar ÖBÍ og
Þroskahjálpar flutti þessu næst
skýrslu sína og kom víða við.
I samvinnunefndinni sátu: AstaB.
Þorsteinsdóttir, Guðmundur Ragn-
arsson og Jón Sævar Alfonsson frá
Þroskahjálp og frá ÖBÍ þau Ólöf
Ríkarðsdóttir, Haukur Þórðarson og
Hrafn Sæmundsson, en framkvæmda-
stjórar samtakanna sitja einnig fundi
nefndarinnar ásamt starfsmanni.
Helgi minnti fyrst á hin vinsælu og
vel heppnuðu reiðnámskeið á Reykja-
lundi, sem 160 alls hefðu nýtt sér yfir
sumarið.
Nú væru framundan reiðnámskeið
í Víðidal með styrk frá Reykjavíkur-
borg.
Hann gat um góða þátttöku í úti-
lífsskóla í samvinnu við Bandalag
ísl.skáta.
Þá vék hann að hinni mikilvægu
og ágætu kynningu í grunnskólunum,
sem Helgi sér um af stakri prýði og
kynnir málefnin ásamt fötluðu fólki
er á vettvang fer.
Dýrmæt kynning til skilnings og
skoðanaskipta. Þá gerði hann grein
fyrir endanlegu uppgjöri vegna ráð-
stefnunnar: Eitt samfélag fyrir alla,
rakti aðdraganda sem aðgerðir og gat
um sérlega góðan hlut Ástu B. Þor-
steinsdóttur að þessu viðamikla verki.
Minnti á að bandarísku samtökin,
sem þarna ætluðu aldeilis að koma að,
hefðu brugðist. Uppgjörið fjárhags-
lega jákvætt og afgangi varið til
barnaheimilis í Timisoara í Rúmeníu.
Hann gat því næst um Mobility
International en í tengslum við það
hefði fjöldi ungs fatlaðs fólks farið
erlendis á námskeið eða til kynningar
og þar bæri 30 manna Irlandsferð
Sjálfsbjargar máske hæst.
Hann fór svo yfir aðildina að
Helios II -verkefninu en mun síðar
sjálfur gera þar grein fyrir. í loka-
orðum sínum undirstrikaði Helgi að
það sem skipti máli í reynd væru
verkefnin og fólkið sjálft sem þar tæki
þátt, en ekki umgerðin ein.
á var komið að skýrslu Björns
Ástmundssonar stjórnarm. ís-
lenzkrar getspár, um þá kynjagóðu
mjólkurkú. Hann rifjaði upp aðal-
þætti í sögu Islenzkrar getspár, frum-
kvæðið góða frá Oddi Ólafssyni og
hversu farsællega öll mál hefðu fram
gengið, gat um eignaraðila getspár-
innar einnig. Nefndi sem dæmi um
umfang, að haldnir hefðu verið alls
329 stjórnarfundir og full eining hefði
náðst um öll mál.
Hann kvað sögu íslenzkrar getspár
líka ævintýri, í þeirra tölvuveröld
hefði margt merkilegt orðið til. Bjöm
sagði Islenzka getspá hafa lagt eign-
araðilum sínum til 2.7 milljarða frá
upphafi, enda væri hlutfallið sem til
eignaraðila færi hærra en annars stað-
ar þekkist. Samkeppnin á markaðn-
um væri hins vegar mjög hörð og því
væri ævinlega verið að leita nýrra
leiða, nú með KÍNÓ-leiknum. Að
baki þessu öllu lægi ómæld vinna
28