Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands - 01.12.1995, Side 32
Fréttir í fáum orðum
s
12. tbl. SIBS frétta á þessu ári eru
birt brot úr erindum Reykja-
lundarlæknanna Björns Magnússonar
og Magnúsar B. Einarssonar á
stjórnarfundi Félags hjarta- og
lungnasjúklinga á Norðurlöndum, en
hann var haldinn í Keflavík á liðnu
vori. Þar greindi Magnús m.a. frá því
að 40% sjúklinga
sem fara í hjarta-
aðgerð kæmust
ekki í endurhæf-
ingar”pró-
gramm”, þrátt
fyrir að 200 þeirra
eða þ.u.b. væru
meðhöndlaðir ár-
lega á Reykja-
lundi. Magnús
sagði að 70 - 80 %
endurhæfðra væru
karlmenn, en um
90% þeirra styrkt-
ist umtalsverteftir
veruna á Reykja-
lundi. Björn sagði
að endurhæfingar-
starf almennt væri
um of í svelti hjá
stjórnvöldum.
Björn kvað það
nauðsyn að þeir
læknar sem rannsóknir stunduðu
kynntu þær fyrir almenningi og
stjómmálamönnum. Hann minnti á þá
staðreynd að meirihluti þeirra sem á
Reykjalund kæmu sem lungnasjúkl-
ingar væru reykingamenn, enda
fengju 15 - 20% þeirra langvinna
lungnateppu en sú er algengasta
ástæða þess að menn leituðu til end-
urhæfingarstofnunar. Rannsókn hefur
sýnt þá gleðilegu staðreynd að hjá
langflestum í lungnaendurhæfingu á
Reykjalundi jókst þol verulega auk
þess sem andleg líðan þeirra batnaði.
*
✓
IMeginstoð - riti MS félagsins
fundum við afar fróðlega vitneskju
um lyfið Interferon Beta, en MS
félagið hélt einmitt kynningarfund
ágætan á liðnum vetri um lyf þetta þar
sem læknarnir John Benedikz, Ásgeir
Ellertsson, Finnbogi Jakobsson og
Sigurlaug Sveinbjörnsdóttir kynntu
viðhorf sín til meðferðar með lyfið.
Þar kom m.a. fram að lyf þetta fækkar
köstum hjá MS sjúklingum og styttir
þau, þau verða ekki eins kröftug og
margt bendir til þess að það seinki
framgangi sjúkdómsins. Einn lækn-
anna sagði að lyfið gæfi líknandi
meðferð, hugsanlega fyrirbyggjandi
meðferð. Grensásdeildin hefur hafið
meðferð með lyfinu og verður fróð-
legt að fylgjast þar með, enda löngu
vitað að læknar okkar eru almennt
mjög framarlega í öllu því sem að
þessu lýtur sem öðru.
*
MG félag íslands hefur gefið út
ljómandi vel gerðan og glögg-
an bækling um sjúkdóm þann er
félagið er kennt við: Myasthenia
Gravis sem á íslenzku hefur fengið
nafnið vöðvaslensfár. Aðeins skal
tæpt á meginatriðum: Spurt er hvað
Myasthenia Gravis sé og leitast við
að svara því. Sagt er frá því hvemig
sjúkdómurinn Iýsir sér og hvaða
meðferð sé helzt við honum. Athygli
er vakin á því hve sjúkdómurinn er
sveiflukenndur og einnig er minnt á
þá þörf fyrir hjálp sem sjúklingum
getur verið nauðsyn á. Sjúkdómurinn
getur valdið fötlun en hún er oft falin
og því þarf skilning frá umhverfinu.
Félagið er svo kynnt í fáum orðum
og sagt til áherzlu: Félagið hefur
áhuga á öllu er viðkemur velferð MG
sjúklinga og vill ná sambandi við fólk
með Myasthenia Gravis (vöðvaslens-
fár) og aðstandendur þeirra.
Vonandi verður þessi útgáfa góð
hjálp í þeirri við-
leitni.
*
S k ý r s 1 a
Blindrabókasafns
Islands fyrir ár-
ið 1994 hefur bor-
izt á borð okkar
hér og þar er marg-
an góðan fróðleik
að finna. Þar kem-
ur m.a. fram að frá
útláns- og þjón-
ustudeild safnsins
voru alls lánuð
37.965 eintök, þar
af til 945 einstakl-
inga 29. 934 ein-
tökog221 stofnun
fékksamtals 8.031
eintak á árinu.
Námsbókadeild
þjónaði þrem
blindum og tveim
sjónskertum námsmönnum á árinu.
Útlán blindraletursefnis voru 50 titlar
í 65 eintökum af námsefni og 44 titlar
almenns efnis auk disklingadreif-
ingar. Geta má þess að Blindrabóka-
safnið fékk Menningarverðlaun VISA
á árinu fyrir menningarframlag safns-
ins í þágu fatlaðra.
*
Fréttabréf Parkinsonsamtakanna á
íslandi 3. tbl. þessa árgangs
greinir eins og jafnan áður frá ýmsu á
vettvangi félagsins. Þar kemur fram
að stjórn félagsins hafi á liðnu sumri
kannað möguleika á húsnæði fyrir
sambýli parkinsonsjúklinga sem þess
þurfa um Iengri eða skemmri tíma.
Hússjóður Öryrkjabandalagsins hefur
tekið vel í málaleitan félagsins, en
rekstrarþátturinn ef af yrði er enn
óleystur með öllu. I Fréttabréfinu er
einnig gagnmerk grein um væntan-
32