Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands - 01.12.1995, Síða 33
legar skurðaðgerðir í Danmörku við
örkumlum af völdum skjálfta og hefur
fyrsti uppskurðurinn væntanlega
verið framkvæmdur þegar línur þessar
birtast lesendum.
*
Laugardaginn 28. okt. sl. höfðu
Landssamtök áhugafólks urn
flogaveiki - LAUF - opið hús til að
fagna því að samtökin hafa fengið nýtt
húsnæði að Laugavegi 26 á þriðju
hæð þar. en LAUF leigir þetta hús-
næði af Félagi heyrnarlausra og fær
auk þess til afnota samkomusal fé-
lagsins á fjórðu hæð. Kynnt var starf-
semi félagsins þeim sem fræðast vildu
og gestum var svo boðið til kaffi-
drykkju uppi. Allmargt gesta sótti
samtökin heim og var mjög almenn
ánægja með hina nýju ágætu aðstöðu.
*
MS félag Islands hafði opið hús
laugardaginn 24. sept. í hinum
nýju glæsilegu húsakynnum félagsins
að Sléttuvegi 5. Þar var margt um
manninn og m.a. kom Bubbi Morth-
ens í heimsókn og gladdi geð manna
við góðar undirtektir. Kynnt var starf-
semi MS heimilisins, dagvistarinnar
þar sem einkar vel fer um fólk í hlý-
legum húsakynnum svo og var veittur
fróðleikur um félagið og fjölþætta
starfsemi þess. MS dagurinn tókst afar
vel og fögnuðu gestir framtaki góðu
alveg sérstaklega.
*
Aðalfundur Geðhjálpar var
haldinn laugardaginn 28. okt. sl.
Á fundinum var rætt um stöðu fé-
lagsins og framtíðarhorfur þess. Nýja
stjórn Geðhjálpar skipa: Pétur Hauks-
son formaður, Magnús Þorgrímsson
varaform. Ingimundur K. Guð-
mundsson ritari, Einar Andrésson
gjaldkeri og meðstjórnendur þau Gísli
Theódórsson og Valdís Larsdóttir.
Nánar um Geðhjálp næst.
*
Daufblindrafélag íslands hefur nú
fengið sjálfstæða skrifstofuað-
stöðu hjá Blindrafélaginu - Hamrahlíð
17. Kristín Jónsdóttir daufblindraráð-
gjafi veitir þar forstöðu góða og er
síminn hjá henni 553 6611. Þar mun
ekki í kot vísað um upplýsingar allar
sem aðstoð. Viðtalstímar Kristínar eru
á mánudögum, þriðjudögum og mið-
vikudögum frá kl. 13 - 14.30.
Gátuvísur
Magnúsar Jónssonar
1. Mér það tek ef ferð vil fá,
fótspor glöggt um strindi,
skip á sjó og skýrt má sjá
skýjum á í vindi.
2. Auðvelt beygðar ýmsar leiðslur oft sem notum,
önd urn það í lungun látum,
líka fremst í róðrarbátum.
3. Þetta má um fjölmörg fjöll á Fróni segja,
bykkjuhúð, (- það bezt mun nægja -)
bókstafur og seinni slægja.
4. Tilvist dýra, trítl og vals
takmarkar og girðir,
fremst í nafni fells og hvals,
fullt með matarbirgðir.
5. Ef að maður er í fýlu er í honum,
ljós sem hangir laust í ránum,
lrka dýr sem smalar ánurn.
6. Ef til vill fær ásótt þá sem engu nenna,
grafarkumlið kvenna og manna,
kjörin vindátt seglskipanna.
7. Seinni hluti fjallsnafns frægs og fuglinn hvítur,
sæg af þessu greint þú getur,
Grikklands til ef “kúrsinn” setur.
8. Er það drykkur oft sem þeir hér í sig renna,
skinnið sterkt, það strax rná sanna,
stærst og vitrast nagdýranna.
9. Er í tengslum elds við log,
und á margan setti,
nafn á manni er ég og
ef til vill á ketti.
10. í fleirtölu þar fékkst úr ílát fyrr hjá manni,
gamall við hann ganga kunni,
gert úr blýi í prentsmiðjunni.
Ráðningar á bls. 35
FRÉTTABRÉF ÖRYRKJABANDALAGSINS
33