Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands - 01.12.1995, Blaðsíða 35
60 % þeirra sem fengju Perthes -
sjúkdóminn þyrftu aldrei “aktíva”
meðferð og þar í hópi væru aðallega
þau böm sem fengju blóðrásarstöðvun
yngst. Hann ræddi svo meðferðar-
úrræði sem aðallega væru tvenns kon-
ar: annars vegar væru notaðar spelkur
til að aflétta þunga á lærleggshaus-
inn, hins vegar væri skurðaðgerð og
árangur af hvoru tveggja svipaður.
Hann lýsti svo tveim mismunandi
skurðaðgerðum sem hvoru tveggja
gegndu sama tilgangi, að lærleggs-
haus félli betur inn í mjaðmarskálina,
þ.e. önnur fólgin í að taka fleyg úr
lærleggnum, hin að mjaðmagrind
væri tekin sundur. Hann kvað meira
farið út í skurðaðgerðir vegna and-
legra afleiðinga þess fyrir börn að
þurfa að notast við erfiðar spelkur um
lengri eða skemmri tíma.
Höskuldur árnaði félaginu allra
heilla, því fyrir höndum væri ærið
starf.
s
Avarp flutti Guðríður Olafsdóttir
form. Sjálfsbjargar, landssam-
bands fatlaðra og færði fram velfarn-
aðaróskir til handa hinu nýja félagi.
Hún kynnti nokkuð Sjálfsbjörg og
starfsemina þar og bauð félaginu alla
aðstoð sambandsins sem unnt væri að
veita. Tryggvi Friðjónsson flutti
nokkur lokaorð, þakkaði fundarboð-
endum framtakið, fundarfólki góða
fundarsetu og óskaði félaginu farn-
aðar góðs.
Fundinn sóttu yfir 50 manns og
allflestir gerðust stofnfélagar.
Es. Sími félagsins er 588 5220 og
svarar form. félagsins Halldóra Björk
þar fyrir félagið. Hún vill taka fram
að nýir félagar eru velkomnir boðnir
til styrktar og eflingar félagsstarfi..
H.S.
Ráðningar á gátuvísum
Sjá bls. 33
1. Far
2. Barki
3. Há
4. Búr
5. Hundur
6. Leiði
7. Súlur, - Botnssúlur
8. Bjór
9. Brandur,
10. Stafur.
Af starfsvettvangi.
Frá Sjónstöð íslands
Myndarleg skýrsla Sjónstöðvar íslands fyrir árið 1994 í umsjón Jóns
Sigurðar Karlssonar hefur borizt okkur og hlýða þykir að hún fái
hér umfjöllun nokkra til fróðleiks lesendum. Örfá atriði eru það þó sem til
skila komast og ritstjóri staldraði sérstaklega við í Iestri sínum. Stjórnina
skipa: Bessi Gíslason lyfjafræðingur, formaður og með honum Friðbert
Jónasson augnlæknir og Gísli Helgason forstöðumaður. Til vara eru:
Guðrún Jóhanna Guðmundsdóttir augnlæknir og Halldór S. Rafnar fv.
framkvæmdastj. Yfirlæknir stöðvarinnar er Guðmundur Viggósson, en
einnig starfa þar rekstrarstjóri, sjóntækjafræðingur, sjónþjálfi, augnsmiður,
skrifstofumaður og umferlis- og ADL- kennari. Auk þess eru 5 aðrir
starfsmenn við ýmis einstök verkefni. A árinu voru teknir til meðferðar
og/eða nýskráðir 211 sjúklingarog viðtöl alls 1977ogerum 12% aukning
frá árinu áður. Sjötugir og eldri eru 75% at'heildinni. Algengasta greining
orsaka sjónskerðingar er aldursrýrnun í miðgróf sjónu eða 58% og þessu
næst er glákan með 7%. Frá því er greint að alls 11 ferðir hafi verið farnar
út á land á vegum Sjónstöðvar. Meðal námskeiða má nefna námskeið fyrir
daufblinda og nýblinda.
Þá er allnokkur kafli um starfsemi einstakra sviða og minnt þar á
augnskoðanir og sjóntæki, þjálfun í notkun sjónhjálpartækja, þjálfun
í athöfnum daglegs lífs og umferli og ýmsa ráðgjöf aðra. Sömuleiðis er
kafli um augnsmíði, en 64 sjúklingar komu til augnsmiðs, en þessu verkefni
fyrir Sjónstöðina sinnir eini augnsmiðurinn á landinu. Afhent gerviaugu
voru 66, þar af fengu 14 í fyrsta sinn. Afhentar augnskeljar voru 25, þar af
9 í fyrsta sinn. Birtar eru helztu niðurstöður úr þjónustukönnun svo og úr
rannsókn á högum blindra og sjónskertra, sem áður hefur lauslega verið
getið hér. í þjónustukönnun kemur fram almenn ánægja með viðmót og
þjónustu Sjónstöðvar en niðurstöðurnar undirstrika nauðsyn þjálfunar í
notkun hjálpartækja. í niðurstöðum rannsóknar á högum sjónskertra og
blindra kemur fram að a.m.k. 7% svarenda þjást svo af alvarlegri andlegri
vanlíðan að þeir þarfnast meðferðar, en almennt eru svör við spurningum
um ánægju með lífskjör sambærileg við svör annarra Islendinga. Og
atvinnuþátttakan er miklu rninni eða 48% á móti 80% almennt.
Nánar verður síðar fjallað um niðurstöður þessara kannana af þeirn
sem gerzt til þekkja.
H.S.
FRÉTTABRÉF ÖRYRKJABANDALAGSINS
35