Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands - 01.12.1995, Page 36
ALYKTANIR AÐALFUNDAR
ÖRYRKJ AB AND AL AGSIN S
Séð yfir fundarsalinn.
IAðalfundur Öryrkjabandalags
. íslands haldinn 14. okt. 1995
mótmælir harðlega þeirri skerðingu
lífeyristrygginga, sem boðuð er í fjár-
lagafrumvarpi fyrir árið 1996 og sem
valda mun mörgum lífeyrisþega
þungum búsifjum ef fram nær að
ganga.
Þetta gerist með þrennu móti:
I fyrsta lagi er áformað að skerða
tekjur lífeyrisþega um 450 millj. kr. á
næsta ári með því að aftengja bætur
almennri launaþróun í landinu og
lækka eingreiðsluupphæðir um leið.
I öðru lagi boðar frumvarpið
skertar tekjur lífeyrisþega um samtals
285 millj. kr. með því að fjármagns-
tekjur skuli skerða tekjutengdar bætur
og eins með sérstakri skerðingu hjá
þeim sem ekki hafa greitt í lífeyrissjóð
eftir að það varð lagaskylda.
I þriðja lagi er ætlunin að lækka
heimildarbætur lífeyrisþega um sam-
tals 250 millj. kr. Þessi áform sýnast
skerða tekjur lífeyrisþega frá því sem
orðið hefði að óbreyttu um nær einn
milljarð króna eða sem svarar um 7%
af heildarupphæð til bótaþega.
Af þessum tilefnum ályktar aðal-
fundurinn svohljóðandi:
Öryrkjabandalag Islands treystir
því að bætur lífeyrisþega fylgi launa-
þróun í landinu hverju sinni svo og
að eingreiðslur launakerfisins skili sér
að fullu inn í tryggingakerfið.
Öryrkjabandalagið vill einnig mega
treysta því að á meðan fjármagns-
tekjuskattur hefur almennt ekki verið
lagður á þá þyki fjarstæða að skerða
bætur lífeyrisþega af völdum hugs-
anlegra fjármagnstekna. Öryrkja-
bandalagið bendir sömuleiðis á að
hinar ýmsu heimildarbætur til líf-
eyrisþega hafa oft úrslitaáhrif á það
að þeir komist af og því er varað
sérstaklega við lækkun þeirra.
Öryrkjabandalag Islands skorar því á
hið háa Alþingi að tryggja það að
áform þessi nái ekki fram að ganga.
2Aðalfundur Öryrkjabandalags
.íslands haldinn 14. okt. 1995
skorar á hið háa Alþingi að breyta
lögum um almannatryggingar á þann
veg að Öryrkjabandalag íslands -
heildarsamtök fatlaðra á íslandi -
tilnefni fulltrúa í tryggingaráð með
fullum réttindum til allrar ákvarðana-
töku. Lög um málefni fatlaðra kveða
á um fulla stjórnunaraðild að Stjórn-
arnefnd um málefni fatlaðra og ekki
síður ætti sú stjórnunaraðild að gilda
um tryggingaráð sem hefur svo víð-
tækt valdsvið í málefnum fatlaðra sem
raun ber vitni.
3Aðalfundur Öryrkjabandalags
.íslands haldinn 14. okt. 1995
mótmælir harðlega þeirri skerðingu á
þátttöku almannatrygginga í bifreiða-
kaupum hreyfihamlaðra sem nú er
gert ráð fyrir í fjárlagafrumvarpi fyrir
1996 en þar er heildarfjárveiting til
bifreiðakaupastyrkja áformuð 160
millj. kr. eða óbreytt fjárhæð frá 1995
og 1994. Fundurinn skorar á stjórn-
völd og Alþingi að tryggja það að á
næsta ári verði þátttaka almanna-
trygginga í bifreiðakaupum fatlaðra
aukin enda hafa fjárhæðir farið lækk-
andi undanfarin ár að raungildi. Nú
skilar hreyfihamlað fólk inn leyfum
sínum til styrkveitinga í stórauknum
mæli, þar sem það ræður ekki við að
kaupa eða endurnýja bifreiðar sínar.
Þá mótmælir fundurinn því mjög
harðlega að hreyfihömluðum öryrkj-
um sé synjað um bifreiðakaupastyrk
vegna eignaviðmiðunar og telur slíkt
í algjörri mótsögn við forsendur þess-
arar fyrirgreiðslu sem er tilkomin
vegna þess umframkostnaðar sem
fólk hefur af hreyfihömlun sinni.
4Aðalfundur Öryrkjabandalags
.íslands haldinn 14. okt. 1995
harmar þá ákvörðun tryggingaráðs að
hætta skuli frá og með næstu ára-
mótum að veita lán til bifreiðakaupa
hreyfihamlaðra hjá Tryggingastofnun
ríkisins. Um áratugaskeið hafa hreyfi-
hamlaðir nýtt sér hin ágætu greiðslu-
kjör þessara lána sem ásamt styrkjum
til bifreiðakaupa hafa oft mestu ráðið
um möguleika þeirra til að eignast
bifreið. Greiðslukjör þessara lána hafa
verið og eru enn miklum mun hag-
stæðari en annarsstaðar á lánamarkaði
og því hafa hreyfihamlaðir í ríkum
mæli leitað til Tryggingastofnunar
ríkisins og fengið þar góða og örugga
fyrirgreiðslu. Aðalfundur Öryrkja-
bandalags Islands skorar á trygg-
ingaráð að endurskoða þessa ákvörð-
un sína í ljósi mikilvægis þess fyrir
hreyfihamlaða að njóta áfram þessarar
fyrirgreiðslu.
SAðalfundur Öryrkjabandalags
. íslands mótmælir harðlega þeirri
gjörð heilbrigðis- og trygginga-
málaráðuneytis frá í mars á liðnum
vetri að skila láglaunasamningi laun-
þegahreyfingarinnar aðeins að hluta
yfir í bætur tryggingaþega. I stað
þeirrar rúmlega 7% hækkunar sem
36