Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands - 01.12.1995, Page 43
AF STJÓRNARVETTVANGI
Fundur í stjórn Öryrkja-
bandalags íslands var
haldinn í Oddshúsi þriðju-
daginn 3.okt. og hófst kl. 16.45.
Formaður setti fund og bauð sér-
staklega velkominn fulltrúa Geð-
hjálpar, Ágúst Óla Óskarsson.
Fyrsta dagskrármálið var umsókn
Foreldrafélags misþroska barna um
aðild að Öryrkjabandalaginu.
Formaður reifaði það mál, sem hún
kvað hafa verið rætt ítarlega í fram-
kvæmdastjórn bandalagsins sem
mælti með því að aðild yrði samþykkt.
Hafdís Hannesdóttir greindi nokk-
uð frá félaginu sem stofnað var 1988
og væri með um 300 félagsmenn.
Hún sagði einnig nokkuð frá þeirri
fötlun sem misþroski gæti leitt af sér.
Haukur Þórðarson greindi frá erfið-
leikum í meðferð þessara barna m.a.
skorti á úrræðum og langri bið eftir
þeim. Eftir nokkrar frekari umræður
var umsóknin samþykkt samhljóða og
mun aðalfundur svo afgreiða aðildar-
umsóknina endanlega.
Annað dagskrármálið varðaði ráð-
stefnuna 13. okt. sem fjalla á um meg-
inreglur Sameinuðu þjóðanna um
jafna þátttöku fatlaðra í hverju einu.
Frá henni verður sérstaklega greint,
en í tilefni þessarar ágætu umfjöllunar
hefur verið gefinn út bæklingur sem
kemur inn á nokkur helztu áherzlu-
atriði þessara reglna.
Þriðja dagskrármálið varðaði aðal-
fund bandalagsins 14. okt. Formaður
fór yfir hina föstu dagskrárliði og
kvað nú eiga lögum samkvæmt að
kjósa formann og gjaldkera.
Einróma stuðningur var við endur-
kjör þeirra Ólafar og Hafliða í embætti
þessi. Á síðasta aðalfundi var Hafdís
Hannesdóttir kjörin meðstjómandi til
tveggja ára, en MS félagið hefur nú
valið annan stjórnarmann af sinni
hálfu, svo umboð Hafdísar í stjórn er
afturkallað af hennar félagi. Því verð-
ur nú að kjósa annan meðstjórnanda í
hennar stað. Stjórnarmenn hörmuðu
þennan framgang mála og þökkuðu
Hafdísi sérlega vel unnin störf í þágu
bandalagsins. Sú skoðun kom raunar
fram mjög eindregið að ákvörðun
aðalfundar um framkvæmdastjómar-
menn ætti að gilda ofar ákvörðunum
einstakra félaga. Hafdís kvaðst ekki
vilja sitja áfram umboðslaus frá sínu
félagi.
Tillaga kom fram um Ólaf H. Sig-
urjónsson í Hafdísar stað og mun hún
kynnt á aðalfundi.
á var komið að ályktanaefni aðal-
fundar og hafði Helgi Seljan
framsögu þar um. Hann kynnti
nokkuð helztu liði fjárlagafrumvarps
sem að fötluðum snéri s.s. skerðingu
framlaga til lífeyrisþega með ýmsum
hætti, varhugaverð og hættuleg atriði
til útgjaldaaukningar í sjúkratrygg-
ingum og mikinn niðurskurð á fé
Framkvæmdasjóðs fatlaðra, svo dæmi
væru tekin. Hann kvað ályktanaefni
ráðast mjög af efni fjárlagafrumvarps,
en þar væri því miður af ærnu að taka
af atriðum sem yrði að mótmæla, bæði
í tryggingamálum og málefnum fatl-
aðra. Hann nefndi sem ályktana-
dæmi skerðingu á tryggingabótum
með ýmsum hætti næsta ár, aðgangs-
eyri að sjúkrastofnunum, meðferð
Framkvæmdasjóðs fatlaðra o.fl.
Einnig þyrfti að mótmæla fram-
kvæmd sjúklingatryggingar, niður-
fellingu bifreiðakaupalána og mæla
með aðild að tryggingaráði. Nánar
koma ályktanaefni og ályktanir fram
í umfjöllun aðalfundar.
Næst greindi formaður frá hinu
umfangsmikla verki að stefnuskrá
fyrir bandalagið sem væri vel á veg
komið og mundi fara fram á aðalfundi
kynning þeirra áherzluatriða sem efst
eru á blaði.
Starfi yrði svo haldið áfram á fullu
og reynt að hafa stefnuskrána til full-
búna árla næsta árs. Fulltrúar lýstu
yfir ánægju með ágætt starf.
Önnurmál: Jóna Sveinsdóttirtil-
kynnti að hún hyrfi nú úr stjórn að eig-
in ósk og þakkaði fyrir þessi góðu ár,
sem hefðu veitt henni svo mikið í
mörgu.
Stjórnarformaður þakkaði Jónu
afar fórnfúst og árangursríkt starf fyrir
bandalagið og aðrir stjórnarmenn tóku
undir orðin: Við sjáum öll eftir þér.
Ásgerður Ingimarsdóttir vakti
máls á meðferð táknmálsfrétta í sjón-
varpi, hvað varðar útsendingartíma og
hve langt væri frá táknmálsfréttum
yfir í aðalfréttir sem hlyti að gera
heyrnarlausum mun erfiðara fyrir um
samhengi allt, auk þess sem margir
hafa ekki lokið vinnu sinni, er tákn-
málsfréttir eru sýndar. Samþykkt að
reyna enn að ýta hér á um sanngjama
breytingu.
í lokin var svo rætt um nefndarstarf
á vegum bandalagsins, sem þyrfti að
koma í fastari farveg, fastanefndir í
þýðingarmestu málaflokkum og eins
tímabundið starf í nefndum að af-
mörkuðum verkefnum.
Fundi slitið um kl. 18,30.
H.S.
FRÉTTABRÉF ÖRYRKJABANDALAGSINS
43