Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands - 01.12.1995, Side 44
Kristín Jónsdóttir daufblindraráðgjafi:
Nokkrir punktar frá námsdvöl
Hér fer á eftir stutt frásögn af
námsdvöl minni hjá Helen
Keller National Center á
fyrra helmingi þessa árs.
Fyrsta vikan var notuð til að kynn-
ast staðnum og hitta starfsfólk og
nemendur.
Önnur vikan var námskeið í stjóm-
un með tilliti til stofnana fyrir dauf-
blinda einstaklinga, þar sem sérstak-
lega var lögð áhersla á sambýli.
Seinna á tímabilinu var vikunám-
skeið í endurhæfingu og þjálfun dauf-
blindra.
Starfið á HKNC:
Fyrsta deildin þar sem ég tók þátt
í starfinu var deildin sem þjálfar
nemendur til að lifa sjálfstæðu lífi.
Þar er áherslan lögð á að nemendur
læri sjálfstæð vinnubrögð við húshald,
matartilbúning, hreinlæti innanhúss,
þvotta, persónulega hirðu, fjármál og
annað það sem tilheyrir því að lifa
sjálfstæðu lífi.
Eftir þetta tók ég þátt í starfi allra
deilda, en í mismunandi langan tíma.
Til þess að einstaklingur geti kom-
ið í endurhæfingu á HKNC, þarf að
finna þann sem ætlar að greiða fyrir
dvölina. í flestum tilfellum er það
heimaríki viðkomandi eða ættingjar.
Ef það gengur ekki og einstaklingur-
inn er talinn hafa þörf fyrir endurhæf-
inguna er leitað til mismunandi sjóða.
Eftir því sem mér skilst gengur það
oftast nær.
Fyrsta koma nemendanna til
HKNC er með foreldrum, maka, ætt-
ingja eða starfsfólki ef viðkomandi
kemur af stofnun.
Þá er haldinn fundur þar sem koma
fulltrúar frá öllum deildum og sér-
stakur aðili sem ber ábyrgð á endur-
hæfingu viðkomandi einstaklings á
HKNC. A þessum fundi koma fram
hugmyndir að því sem einstaklingur-
inn vill stefna að.
Næsta skrefið er 8 vikna tímabil
þar sem metið er hvernig staðan er í
mismunandi greinum. Að loknu
þessu tímabili er annar fundur þar sem
farið er yfir stöðuna og reynt að meta
hvort fyrri hugmyndir að markmiði
Kristín Jónsdóttir.
séu raunhæfar. I markmiðunum er
farið yfir hversu sjálfstæður einstakl-
ingurinn verður fær um að vera t.d. í
sambandi við búsetu, vinnu og fleira.
í framhaldi af því er gert þjálfunarplan
í samræmi við þau markmið sem
nemandinn vill stefna að.
Búin eru til sérstök kort þar sem
skipt er upp í tvo dálka þar sem
annar dálkurinn eru atriði sem nem-
andinn á erfitt með og hinn dálkurinn
það sem hann á auðvelt með.
Með þessu móti er hægt að sjá
sterku og veiku hliðarnar.
Einnig er hægt að búa til sam-
skiptakort til að gera sér grein fyrir
félagslegri stöðu nemandans. I allri
þessari vinnu er viðkomandi einstakl-
ingur ævinlega viðstaddur og tekur
þátt í umræðunni.
Þegar nemendur eru að fara er
einnig fundur þar sem allir kennarar
eru viðstaddir. Farið er yfir stöðuna,
þar sem kennarar segja frá hvaða
hlutir séu í lagi og hvað þurfi að þjálfa
meira. Er þá reynt að fá þjálfun ná-
lægt þeim stöðum þar sem viðkom-
andi einstaklingur mun búa og vinna.
Á HKNC eru daufblindir sem
vinna við stjórnun og þjálfun. Þeir
nemendur sem hafa áhuga á að vinna
með daufblindum fá tækifæri til að
reyna það hér og fá síðan áframhald-
andi þjálfun til þess.
Town Hall fundir:
Einu sinni í mánuði eru fundir sem
nemendurnir stjórna og allt starfsfólk
er viðstatt. Er þetta vettvangur nem-
endanna til að koma fram með kvart-
anir eða tillögur um það sem betur
mætti fara. T.d. var á einum fundinum
kvartað um að trén í garðinum væru
ekki nógu vel snyrt og færu þess
vegna í andlit á fólki.
Einnig var kvartað um fyrirkomu-
lagið á morgunmatnum.
Það sem kvartað er um er rætt milli
44