Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands - 01.06.1997, Blaðsíða 2
fréttabréf
ÖRYRKJABANDALAGS
ÍSLANDS
2. TÖLUBLAÐ
10. ÁRGANGUR 1997
Ritstjóri og ábyrgðarmaður:
Helgi Seljan
Umbrot og útlit:
K. Fjóla Guðmundsdóttir.
Prentun:
Steindórsprent/
Gutenberg h.f.
Ljósmynd á forsíðu:
Gísli Ragnar Gíslason.
Frá ritstj óra
Enn er þessu málgagni okkar fylgt fram á veg með fáeinum
orðum. Enn hafa ýmsir góðir kraftar lagt því sitt dýrmæta
liðsinni. Enn hefur þess verið freistað að hafa fjölbreytni í
ákveðnu fyrirrúmi, þó margt verði máske líkt hvað öðm frá
einu blaði til annars. Sumir efnisþættir hafa öðlast sinn fasta
sess. Svo er t.d. um forystugreinina, viðhorfs-
greinina og pistilinn í brennidepli svo og
baksíðuna. þar sem fram fer kynning góð á
því sem fyrir valinu verður hverju sinni. Sama
má segja um fregnir af stjórnarvettvangi,
heimsóknum okkar til aðildarfélaga og
annarra, að ógleymdum vönduðum viðtölum
við þau sem í eldlínu hafa staðið og árangri
skilað. Hornahlerunin virðist vinsæl og sama er að segja um
samtíning ýmiss konar - ljóðbrot, frásagnir, sögur - sem
velþóknun vekur. Öllu máli skiptir þó að gera þetta málgagn
að vakandi og frjóum umræðuvettvangi um þau mál sem mestu
skipta um hag og heill öryrkja. Þar vantar verulega á og vísast
við ritstjóra rétt að sakast, þó ýmsir ágætlega ritfærir í röðum
okkar megi einnig til sín taka. Saknað er sömuleiðis vænna
viðbragða við ýmsum áleitnum spumingum og skoðunum sem
fram er varpað. Ágætast væri auðvitað að telja það merki þess
að allt væri svo sem vera ætti, en efalaust væri sú ályktun hin
vafasamasta. Aðeins í lokin til lesenda: Til ykkar berst blaðið
nú á birturíkasta tíma ársins. Megi vorbirtan vaka í sál ykkar.
Eigið sólríka sælutíð á sumardögum björtum og blíðum.
Helgi Seljan.
EFNISYFIRLIT
Frá ritstjóra...............................3
Manstu þegar vorið á vængjum
fór um dalinn?..............................3
Afmælisrit Félags nýrnasjúkra...............3
Eitt bréfkorn til lesenda...................4
Evrópusamstarf í málefnum fatlaðra..........7
Eru margir sykursjúkir í feluleik?..........9
Fjórða norræna ráðstefnan um misþroska.... 10
Gægzt inn hjá Geðhjálp..................... 12
Frá Geðhjálp............................... 14
Hlerað................... 15, 25, 32, 33, 39, 45
Styrkveitingar ÖBÍ......................... 15
Frá Sjóði Odds Ólafssonar................. 16
Beinvernd.................................. 17
Vordraumar................................. 17
Formannafundur um skipulagsmál............. 17
Gengið við í Gerðubergi.................... 18
Hvað er hamingja?.......................... 19
Hornafjarðarbær yfirtekur þjónustu.........20
Sjálfsbjörg á höfuðborgarsvæðinu............22
Hugmyndirum framtíðarskipulag ÖBI..........24
Fréttir frá Gigtarfélagi Islands............25
Kynning á Neistanum.........................26
Göngum vel um gæði jarðar...................27
Mongólíta-dóttir mín gaf mér mikið..........28
Spor í sandi................................32
Formannaskipti í félögum okkar..............33
Lag Þórhalls, ljóð Þorbjarnar...............33
Af stjórnarvettvangi........................34
Sundhöll Reykjavrkur........................35
Bréfkorn úr Fossárdal.......................36
Forvitnast um Foldabæ.......................38
Stiklur.....................................39
Innlitið....................................40
Brosið......................................41
Frá Vinafélagi Blindrabókasafnsins..........41
Kynning framkvæmdastjóra....................42
Samkomulag um ferlimál......................43
Ráðstefna um sjúkdóma.......................44
í brennidepli...............................46
2