Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands - 01.06.1997, Blaðsíða 8
að minnka mismunun. í þessu sam-
bandi er einnig hvatt til þess að aðild-
arlöndin fari að tilmælum í Megin-
reglum Sameinuðu þjóðanna. Megin-
reglumar eru ekki lög, en gefa þó sterk
mórölsk og pólitísk skilaboð um leiðir
varðandi jöfnuð til handa fötluðu
fólki.
0 Samstarf við ríkisstjórnarfull-
trúa: Framkvæmdastjórnin hyggst
setja á stofn sérfræðingahóp (“High
Level Group”) fulltrúa frá aðildar-
löndunum í málefnunt fatlaðra. Til-
gangur þessa hóps er að yfirfara nýj-
ustu stefnu og forgangsröðun ríkis-
stjórnanna varðandi fatlað fólk. Auk
þess er mikilvægt að miðla upplýs-
ingum og reynslu og ráðleggja um
aðferðir sem nota rná í framtíðinni. Þá
er nauðsynlegt að ríkisstjórnirnar
standi við ýmsar samþykktir sem
gerðar hafa verið í málefnum fatlaðra.
° Hvatning til starfsemi frjálsra
félagasamtaka í málefnum fatlaðra:
Framkvæmdastjórnin hefur fengið
aðhald og hvatningu fyrir mikinn
áhuga og þátttöku margskonar sam-
taka sem vinna að málefnum fatlaðra.
“Slagkraftur” samtakanna hefur krist-
allast að miklu leyti í þátttöku þeirra í
HELIOS verkefninu sem hefur haft
bein áhrif á framkvæmdastjórnina til
góðra verka í málaflokknum. Fram-
kvæmdastjómin hyggst veita stuðning
til samtaka fatlaðra til að hvetja til
Evrópusamstarfs í málaflokknum. í
þessu sambandi fagnar framkvæmda-
stjórnin nýlegri ákvörðun um stofnun
nýrrar sjálfstæðrar samstarfsnefndar
“The New Independent Disability
Forum”. I þessari nefnd verða full-
trúar heildarsamtaka fatlaðra í aðildar-
löndum Evrópusambandsins.
° Rannsóknarstöð: Framkvæmda-
stjórnin hyggst setja á stofn rann-
sóknarstofnun (“observatory”) þar
sem fjallað verður um reynslu ein-
stakra aðildarríkja af málaflokknum.
Hlutverk þessarar stofnunar verður að
skýra meginþætti málaflokksins,
vinna að jöfnum skilningi sérstaklega
varðandi tölulegar upplýsingar og
gefa nákvæmar upplýsingar um nýj-
ustu stefnu í málaflokknum. Þá verð-
ur leitast við að leggja fram sjálfstætt
mat á árangri og vinna að nothæfum
og stefnumarkandi rannsóknum .
°Atvinnumál: Framkvæmdastjómin
mun hafa frumkvæði að því að styrkja
baráttuna gegn langtíma atvinnuleysi
og berjast fyrir blöndun fatlaðs fólks
á vinnumarkaðinum. Aðilum vinnu-
markaðarins verður boðið að þróa
sérstakt samstarf sem miðar að
úrbótum í atvinnumálum fatlaðs fólks.
Mörg fyrirtæki hafa þegar sett upp
tilraunaverkefni í tengslum við fatlað
fólk. T.d. var sett fram af fyrirtækjum
innan Evrópusambandslandanna
áætlun sem nefnist “European Decler-
ation of Businesses against Exclu-
sion” sem miðar að aukinni atvinnu-
þátttöku fatlaðs fólks.
° Skólamál: Undanfarið hefur verið
sýnileg þróun í aðildarlöndum
Evrópusambandsins í áttina frá
sérlausnum til að þjóna þörfum fatlaðs
fólks, sérstaklega þegar um er að ræða
menntun og atvinnumál (sérskólar,
verndaðir vinnustaðir og fl.). Þetta
hefur breyst á þann veg að rneiri
áhersla er lögð á blöndun í almenna
skóla og blöndun á vinnumarkaði.
Meira er horft á þarfir og getu
einstaklingsins heldur en verið hefur.
° “Pilot Projects” Ákveðið hefur
verið að setja af stað ýmiskonar
átaksverkefni “Pilot projects” bæði
innanlands og á Evrópugrunni til að
ná fram jöfnum möguleikum fatlaðs
fólks á við aðra þjóðfélagsþegna. Nú
er beðið eftir endanlegum lista yfir
verkefni sem áætlað er að sett verði
af stað. Þó er gert ráð fyrir að veittir
verði styrkir til rannsóknarstarfsemi,
námskeiða, funda, vinnuhópa og
leiðbeiningar og fagleg aðstoð látin í
té við samtök fatlaðra.
ÖNNUR VERKEFNI í ÞÁGU
FATLAÐS FÓLKS
Leitast verður við að nýta enn betur
en verið hefur þau verkefni sem fyrir
hendi eru á vegum Evrópusam-
bandsins og tengjast málefnum fatl-
aðra. Þar má nefna HORISON sem
sett var á laggirnar til að fjalla sér-
staklega um blöndun fatlaðs fólks á
almennum vinnumarkaði og til að
aðstoða við að setja upp áætlanir sem
nýtast aðildarlöndunum. Lögð verður
aukin áhersla á upplýsinga- og
samskiptatækni (“Information and
Communication Technology ICT”).
Leitast verður við að styrkja alla þætti
upplýsingaþjóðfélagsins til þess að
jafna möguleika fatlaðs fólks á við
aðra þjóðfélagsþegna. Hópar á
Evrópugrunni verða settir af stað til
að nálgast þetta markmið. í þessu
sambandi var lögð fram skýrsla sem
nefnist “græna skjalið” (“Green Pa-
per on Living and Working in In-
formation Society: “People First”).
Þarna er fjallað um nauðsyn þess að
hagsmunir og þarfir fatlaðs fólks séu
teknar með í reikninginn í hinni hröðu
þróun nútíma upplýsingaþjóðfélags,
ekki síst varðandi atvinnumál.
Framkvæmdastjórnin hyggst setja á
laggirnar vinnuhóp til að koma
þessum þáttum til skila. Unniðverður
í tengslum við fleiri verkefni á vegum
Evrópusambandsins í þessum geira,
s.s. í verkefni sem kallast “TIDE”.
Þar er lögð áhersla á að tæknin verði
notuð til þjónustu við fatlað og aldrað
fólk. Þá eru fyrir hendi miklar upp-
lýsingar á Handinet töluvkerfinu um
hjálpartæki af ýmsu tagi fyrir fatlað
8