Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands - 01.06.1997, Qupperneq 12
GÆGZT INN
HJÁ GEÐHJÁLP
Ingólfur H.
Ingólfsson.
Þeim góða sið að heimsótt séu
félög okkar með svo tilheyr-
andi frásögn hér í Fréttabréf-
inu verður vonandi fram haldið. Það
er gullið tækifæri til að auka og bæta
tengsl bandalags
og félaga og færir
okkur nær hvert
öðru, setur okkur
betur inn í bar-
áttumálin og þann
vanda sem við
kann að vera að
fást hverju sinni.
í þetta sinn
lagði þríeykið:
““““Ólöf, Ásgerður og
undirritaður leið sína til Geðhjálpar,
þess öfluga og athafnasama félags
okkar. Geðhjálp hefur ná skipt um
dvalarstað sinn, en félagið var áður
til húsa á Öldugötu 15. Nú er aðsetrið
á Tryggvagötu 9 í Hafnarbúðum og
þangað haldið einn hryssingslegan
maídag. Hrollkalt úti en hlýtt inni og
móttökur allar hinar ágætustu. Það
var framkvæmdastjóri Geðhjálpar,
Ingólfur H. Ingólfsson, sem leiddi
okkur í allan sannleik um húsakynni
sem starfsemi og verður fátt eitt af því
fram talið hér.
Nokkrir gestir voru í félagsmið-
stöðinni þegar gengið var í garð og
einn starfsmanna Stuðningsþjónustu
Geðhjálpar átti afmæli með tilheyr-
andi veizlu og ekki voru veizluföngin
síðri er við fengum að njóta.
Geðhjálp hefur alla aðra hæðina í
Hafnarbúðum til afnota, leigir hana af
Sjúkrahúsi Reykjavíkur, en húsið
sjálft í ríkiseign. Fyrst er komið inn í
rúmgott opið rými — setustofu sem
um leið er matsalur — þar sem nálægt
20 manns geta matast í einu, en þarna
er heitur matur í hádeginu mánudaga
til föstudaga. Fólk greiðir sem svarar
efniskostnaði einum. Þarna er ráðs-
kona í fullu starfi sem Geðhjálp
kostar. Hún sér ekki einungis um
matargerðina heldur ekki síður um
það að húsreglur allar séu haldnar.
Það gengur hins vegar mjög vel og
engir árekstrar orðið sem betur fer.
Nú eðlilega er svo þarna hið ágætasta
eldhús þar sem Guðbjörg ráðskona
ræður ríkjum af rausn og skörungs-
skap.
Þama er svo sameiginleg skrifstofa
Ingólfs framkvæmdastjóra og for-
stöðumanns Stuðningsþjónustu Geð-
hjálpar.
Síðan er svo alhliða salur, segja
mætti Ijölnota salur fyrir föndur,
fyrir vinnu að verkefnum sem fengin
eru frá Odda, fræðslufundirnir á
kvöldin eru þar og þar er jafnvel
hvíldarherbergi þegar ekkert annað er
um að vera. Þarna var einmitt rumsk-
að við einum þegar við vorum þar á
ferð, því nú var afmælisveizlan að
byrja. Svo er sérstakur salur í sportið
og listina. Mest er þar verið í borð-
tennis og reynist vel. En þarna er líka
reynt að koma á kóræfingum, að vísu
ekki margir sem mæta, en þeir sem
mæta hafa af yndi og ánægju. Þarna
eru svo góðar geymslur og salerni og
svo er reykherbergi niðri í kjallara og
máske helzt til mikið notað út frá
hollustusjónarmiðum.
Allt er hér vistlegt og í raun rúmt
og góður heimilisandi fær hvergi leynt
sér.
Ingólfur er spurður um fjármögnun
félagsins, en Stuðningsþjónusta Geð-
hjálpar er sérmál sem síðar verður að
vikið.
Hann segir félagið fá styrki frá
þrem aðilum: Ríkinu, Reykjavrkur-
borg og Öryrkjabandalaginu. Aðrar
tekjur eru mjög litlar. Til er Minn-
ingarsjóður Geðhjálpar, lítill og býsna
vanmegna sjóður þar sem nú munu
vera um 120 þús.kr. en stofnfé var 50
þús.kr. Tilgangur sjóðins er að:
styrkja einstaklinga til
endurhæfingar
hjálpa heimilislausum
geðsjúkum
styrkja forvarnar- og
fræðslustarf
Viðamikil verkefni en vanefni
mikil, þó vonandi megi úr rætast.
Inntur eftir erlendum samskiptum
segir Ingólfur þau töluverð. Geð-
hjálp er í norrænum systursamtökum
og þar er hitzt reglulega. Síðan er
Geðhjálp komin í alþjóðleg samtök
sem m.a. standa að lO.október —
geðverndardeginum: World Federa-
tion for Mental Health, skammstafað
WFMH. Þá eru árleg sumarmót geð-
fatlaðra á Norðurlöndum, löndin
skiptast á um að halda mótin og einu
sinni var mótið haldið hér og tókst hið
bezta. Nú fer hópur héðan til Dan-
merkur og í fyrra var til Finnlands
Frá félagsmiðstöðinni. Gestir frá Bjargi í heimsókn hjá heimafólki.
12