Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands - 01.06.1997, Qupperneq 13
Heilbrigðisráðherra og hennar fólk í heimsókn.
Færði 200 þús. kr. styrk til aðstandendafræðslu.
farið. Þetta hefur reynzt mjög vel og
verið mörgum dýrmætt.
Nú ekki má gleyma fræðslufund-
um Geðhjálpar, sem lengi hafa verið
snar þáttur í félagsstarfinu. Nú eru
þessir fundir haldnir í Hafnarbúðum,
en voru áður á Landspítalanum. A
vormisseri 1997 hafa fundarefnin
verið þessi:
Leiðir til þátttöku geðsjúkra í
samfélaginu.
Almannatryggingar — fræðsla
um tryggingamál.
Starfsþjálfun fatlaðra —
möguleikar geðfatlaðra.
Fjölskylduþjónusta á
móttökugeðdeildum.
Þessir fyrirlestrar hafa verið vel
sóttir enda efnisval ágætt og höfðar
til margra.
Stuðningsþjónusta Geðhjálpar er
undir yfirumsjón Ingólfs; en þar
eru 5 starfsmenn í fullu starfi.
Fjárframlag kemur frá félagsmála-
ráðuneyti til þessa verkefnis í sam-
ræmi við lög um málefni fatlaðra.
Þetta framlag er veitt til ákveðinnar
þjónustu við 30 geðfatlaða einstakl-
inga og þar með eru taldir hinir 10
íbúar áfangaheimilisins að Bárugötu
19.
Þjónustusamningur hefur verið
gerður við Reykjavíkurborg sem er
með verkstjórn yfir heimaþjónustu og
liðveislu, en Geðhjálp svo aftur með
alla frekari liðveislu. Efirlitið er sem
sagt frá Reykjavíkurborg, en eins og
Ingólfur segir er hér um ágætan vísi
að ræða að samræmdri þjónustu við
geðfatlaða utan sjúkrahúsa. Starfandi
er sérstök samstarfsnefnd um öll þessi
mál með fulltrúum frá Geðhjálp,
Sjúkrahúsi Reykjavíkur (geðdeild),
Geðdeild Landspítalans, Félags-
málastofnun Reykjavíkur, Svæðis-
skrifstofu um málefni fatlaðra og
fundi nefndarinnar hefur einnig setið
nú að undanförnu Kristín Jónsdóttir
starfsmaður Hússjóðs Öryrkjabanda-
lagsins. Allt hefur þetta gengið býsna
vel og margir fá þama þann mikil-
væga stuðning sem léttir þeim lífs-
gönguna á svo margan veg. Ingólfur
nefnir til sögu ágætt samstarf við
Rauða kross Islands s.s. Pétur for-
maður gerir á öðrum stað í blaðinu.
Rauði krossinn rekur eins og lesendur
vita hið ágæta athvarf Vin, sem vel er
metið og að verðleikum. Örstutt svo
um dagskrá félagsmiðstöðvar. Frá kl.
11-12 mánudaga-föstudaga svo og kl.
13-14 á föstudögum og kl. 14-17 á
laugardögum er opið hús.
Eftir hádegi á mánudögum svo og
föstudögum er vinna (verkefni frá
Odda).
Á þriðjudögum er farið í sund í
sundlaug Sjálfsbjargar. Á miðviku-
dögum er spiluð keila og þá eru
tölvutímar einnig og síðan er boðið í
bíó. Á fimmtudögum er farið á kaffi-
hús í boði Geðhjálpar. Þá er líka söng-
tími, leikið á harmoniku af félaga
Hólmari Henrýssyni. Héreraðeinsá
því helzta stiklað stórum.
Rætt var fram og til baka um hin
mörgu og misleitu viðfangsefni
daganna, hvað væri framundan af
verðugum verkefnum og verður
aðeins hér á það helzta drepið.
Ingólfur nefndi þann möguleika að
Geðhjálp tæki yfir heimilishjálp þá og
liðveizlu sem Reykjavíkurborg annars
annast. Hann getur vissulega séð þá
þróun fyrir sér að inn í félagsmiðstöð
Geðhjálpar færðist — út af sjúkrahús-
um ýmis þjónusta s.s. sjúkraþjálfun,
iðjuþjálfun og dagþjónusta — þannig
að þar yrði um eins konar dagdeild
að ræða í raun.
Það ber brýna nauðsyn til þess að
nýta sem allra bezt krafta frjálsra
félagasamtaka þar sem oft er óbeizluð
orka sem útrásar krefst til hagsbóta
og heilla fyrir þá sem helzt þurfa á að
halda. Vissulega þurfa þar að verða
náin og góð tengsl við sjúkrahúsin
eins og þau eru nú.
Sannleikurinn er sá að Geðhjálp
sinnir og aðstoðar þyngsta hópinn og
það fór ekki framhjá glöggu gestsauga
okkar að svo er. Ingólfur minnti svo
á sjálfshjálparhópana sem mikils virði
væru s.s. um fælni svo og foreldrar
eða aðstandendur geðsjúkra barna,
sem hafa hugsað sér til hreyfings,
þunglyndissjúklinga nefnir Ingólfur
svo og geðklofasjúklinga, segist vel
geta séð fyrir sér virka hópa með
aðstoð félags og Stuðningsþjónustu.
Ingólfur sagðist nú vera að vinna
að ákaflega skemmtilegu verkefni
sem hann vonaði sannarlega að mætti
ná fram og varðaði atvinnumöguleika
geðfatlaðra. Fyrirmyndin fyrst komin
vestan um haf — fountain house —
klúbbar eða félög sem þar hafa starfað
allt frá 1940. Þá gerir félagið eða
klúbburinn samning við atvinnurek-
endur um ákveðinn fjölda starfs-
manna sem m.a. felur það í sér að
félagið ábyrgist starfskraft í staðinn,
ef viðkomandi mætir ekki eða hættir,
starfsmaður skv. samningnum sem
sagt alltaf tryggður. Ingólfur segist
vera kominn talsvert vel á veg með
þetta mál. Þarna þyrfti töluvert undir-
búningsstarf, mynda þyrfti félag,
samþykkja stofnskrá, fá ákveðna
stjórn, virkja málsmetandi fólk á
ýmsum sviðum til þátttöku svo mál
mættu hafa sem farsælastan fram-
gang. Verður forvitnilegt að sjá hverju
fram vindur.
Umræðan snérist um ýmsa þætti
þessa viðkvæma málaflokks og vand-
meðfarna m.a. ræddum við um þá
miklu samþjöppun geðfatlaðra sem
Sjá næstu síðu
FRÉTTABRÉF ÖRYRKJABANDALAGSINS
13