Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands - 01.06.1997, Blaðsíða 16
Frá Sjóði Odds
Olafssonar
Afhending styrkja fyrir árið
1997 úr Sjóði Odds Ólafs-
sonar fór fram við ágæta
athöfn í fundarsal Öryrkjabanda-
lagsins Hátúni 10 hinn 26. apríl sl. kl.
15.30.
Það er engin tilviljun að afhending-
in fer fram þennan dag, því fæðing-
ardagur Odds Ólafssonar er einmitt
26. apríl og hefur afhending ævinlega
farið fram á þeim degi og vonandi
mun svo áfram verða.
Allir styrkþegar eða fulltrúar þeirra
vom mættir og var það einkar ánægju-
legt. Formaður sjóðsins, sem er undir-
ritaður setti samkomuna með stuttu
ávarpi, en auk hans sitja í stjórninni:
Anna Ingvarsdóttir, fulltrúi Hússjóðs
Öryrkjabandalagsins og Ólafur
Hergill Oddsson frá Sambandi
íslenzkra berkla- og brjósthols-
sjúklinga, en Davíð Gíslason hafði að
eigin ósk látið þar af störfum.
I ávarpinu var hins mæta og mikil-
hæfa leiðtoga í málefnum fatlaðra um
árabil, Odds Ólafssonar, minnzt
sérstaklega, en Oddur kom víða við
og vann ótrúlega mikið starf hvar-
vetna þar sem hann var á vettvangi.
Með hógværð og festu fékk hann
komið svo mörgu góðu til leiðar,
rökhyggja hans og raunsæi réðu þar
miklu svo og heilsteyptur persónu-
leiki sem hreif menn. Þá var greint
frá úthlutun nú, en eins og lesendur
eiga að vita þá er stofnfé sjóðsins 15
millj.kr. og skylt að sá stofn haldi
verðgildi sínu, þannig að aðeins má
úthluta vöxtum.
msóknir um styrki nú voru alls
18 og unnt var að verða við 13
þeirra. Alls var úthlutað nú 1195
þús.kr. Hæst var úthlutað 200 þús.kr.
lægst 50 þús.kr.
Að loknu ávarpi formanns færði
Ólafur Hergill fram þakkir þeirra
systkina, barna Odds, fyrir góða
ræktarsemi við minningu hans, en
Vífill bróðir Ólafs var einnig við-
staddur. Þáafhentu gjaldkerinn Anna
Ingvarsdóttir og ritarinn Ólafur
Hergill styrkhöfum eða fulltrúum
þeirra styrkina og báðu þau vel að
njóta. Að þessu loknu var af hálfu
styrkþega gerð hin ágætasta grein
fyrir verkefnum þeim sem styrkirnir
höfðu verið veittir til og var það
ljómandi fróðleikur og fullvissaði
stjóm sjóðsins um að verðug verkefni
hefðu hlotið hennar náð nú.
Styrkþegar nú voru í stafrófs-
röð: Ásthildur Símonardóttir,
háskólanemi vegna lokaverkefnis til
B.A. prófs ífélagsfræði: “Félagslegar
aðstæður fatlaðra kvenna á Islandi í
lok 20. aldar”.;
Ásthildur Bj. Snorradóttir, tal-
meinafræðingur til mastersnáms í
talmeinafræði í Bandaríkjunum;
Björn Magnússon yfirlæknir til
rannsóknar á langtíma súrefnismeð-
ferð sjúklinga með langvinna lungna-
teppu;
Guðbjörg Pétursdóttir og Ingibjörg
Baldursdóttir, hjúkrunarfræðingar til
gagnavinnslu úr rannsókn um þrjár
mismunandi aðferðir til að hjálpa
fólki að hætta að reykja;
Guðrún V. Stefánsdóttir, umsjónar-
kennari vegna rannsókna á boðskipt-
um alvarlega fatlaðra bama og for-
eldra þeirra;
Helga Ingvarsdóttir, kennari til
námsferðar til stofnunar Petö til að
kynna sér úrræði fatlaðra við upphaf
skólagöngu;
Ingibjörg Haraldsdóttir, sérkennari
vegna náms um blöndun fatlaðra í
skólakerfinu í Bandankjunum;
Ingveldur Friðriksdóttir, sjúkra-
þjálfari vegna námskeiðs í London um
meðferð barna með heilalömun;
Komið og dansið, félagsskapur um
dans vegna danskennslu fatlaðs fólks;
Marín Björk Jónasdóttir, námsráð-
gjafi vegna samvinnuverkefnis Hring-
sjár og 8 annarra stofnana í Evrópu
um að skipuleggja raunhæfa starfs-
þjálfun;
Ólafur Þór Ævarsson, geðlæknir,
Guðrún Blöndal, geðhjúkrunar-
fræðingur og Hólmfríður Guðbjarts-
dóttir hjúkrunarfræðingur til rann-
sókna á áhrifum forvarna og endur-
hæfingar í þágu geðfatlaðra;
Valdís Jónsdóttir, talmeinafræð-
ingur vegna mastersnáms í Skotlandi,
verkefnið er raddvernd;
Þorsteinn Blöndal, yfirlæknir
vegna rannsókna á áhrifum þunglynd-
islyfja til að hjálpa fólki að hætta að
reykja.
Allir styrkhafar voru mættir utan
Ingibjörg Haraldsdóttir og
Valdís Jónsdóttir, sem báðar búa
norðan heiða, en fulltrúar beggja voru
þama.
Varamenn í sjóðsstjórn, yfirlækn-
arnir Haukur Þórðarson og Tómas
Helgason voru einnig mættir við
athöfnina.
Á borðum voru ágætustu veitingar
sem fólk gerði sér gott af.
Vífill Oddsson myndaði svo styrk-
hafa við styttuna af föður sínum í
anddyri.
Öllum styrkhöfum er árnað árang-
urs góðs með von um að styrkurinn
megi þeim róðurinn létta. Vonandi
sjáum við eitthvað frá þeim síðar hér
á síðum blaðsins.
Helgi Seljan
16