Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands - 01.06.1997, Blaðsíða 22
Sjálfsbjörg
á höfuðborgarsvæðinu
Eins og lesendur ættu vel að
vita samanstendur Sjálfs-
björg - landssamband fatlaðra
af mörgum félagseiningum vítt um
landið. Hið elzta þeirra er Sjálfsbjörg
á Siglufirði sem
verður einmitt 40
ára á næsta ári.
Af því tilefni
mun næsta aðal-
þing Sjálfsbjarg-
ar verða á Siglu-
firði í boði þessa
elzta félags sam-
bandsins.En
annað Sjálfs-
bj argarfélag
verður einnig 40 ára á næsta ári,
aðeins nokkru yngra í árinu, en það
er Sjálfsbjörg á höfuðborgarsvæðinu
s.s. heiti þess er í dag. Þar er haldið
uppi öflugu og vaxandi félagsstarfi
þar sem margir koma að og mega
njóta. Framkvæmdastjóri félagsins er
Jóhannes Þór Guðbjartsson og á
mildum apríldegi var hann sóttur heim
til frekari fróðleiksöflunar um þetta
fjölmenna og fjöruga félag.
Jóhannes Þór er fyrst inntur eftir
félagssvæði og félagatölu
Sjálfsbjargar á höfuðborgarsvæð-
inu?
Um síðustu ára-
mót munu hafa ver-
ið um 1280 manns
í félaginu, þar af
munu rúmlega 800
af þeim vera fatlað-
ir. Við vorum svo
að safna styrktar-
félögum okkur til
trausts og halds og
þannig fengust um
500 manns og er að
þeim góð búbót.
Félagssvæðið er frá
Straumsvík og upp
í Kjós.
Hvaða starfs-
liði hefur félagið á
að skipa?
Framkvæmdastjórinn er í fullu
starfi og máske ríflega það í raun. Svo
er Guðrún Sæmundsdóttir hér í fullu
starfi við afgreiðslu, bókhald og
fjárvörzlu. Svo má ekki gleyma því
mikla starfi sem stjórnarmenn inna
hér af hendi án allra launa, það er auð-
vitað ómetanlegt.
Nú hefur maður heyrt um marg-
ar starfsnefndir félagsins. Hverjar
eru þær?
Já, þær eru allmargar og máske
misvirkar eftir eðli og hlutverkum, en
nefndirnareru: skemmtinefnd, æsku-
lýðsnefnd, basarnefnd, bridsnefnd,
taflnefnd, félagsvistarnefnd, ritnefnd,
fjáröflunarnefnd, laganefnd og ferða-
nefnd, svo þú sérð að fjöldinn er
nægur. Þess má svo hér geta að félagið
á aðild að ferlinefndum í þeim sveitar-
félögum þar sem þær yfirleitt eru eða
í Reykjavík, Garðabæ, Kópavogi,
Bessastaðahreppi og á Seltjarnarnesi.
Hvað aðhafast svo þessar ágætu
nefndir ykkar?
Nú eðli máls samkvæmt sér
skemmtinefndin um skemmtanir. Nú
síðast var haldin árshátíð í samvinnu
við íþróttafélag fatlaðra og Nýung, vel
sótt og skemmtileg. Æskulýðsnefndin
vinnur aðallega í gegnum Nýung, en
þar koma að æskulýðsnefndir bæði
landssambandsins og okkar. Nefndin
hefur staðið fyrir ýmsu s.s. ferðalög-
um, að ógleymdri ágætri norrænni
ráðstefnu hér á liðnu sumri sem þú
munt hafa greint frá.
Svo er mikið spilað og jafnvel
teflt, er það ekki?
Ein styrkasta og öflugasta nefndin
er bridsnefndin, en á hverjum mánu-
degi spila hérna hjá okkur 40 - 50
manns, keppnismót haldin og verð-
laun veitt, líflegt og vakandi starf.
Taflnefndin hefur hins vegar átt við
ramman reip að draga sakir ónógrar
þátttöku, en þar hefur þó sami kjarn-
inn náð að halda saman, en mest munu
þarna tefla 10 manns. Farið var á
Ólympíumót fatlaðra í Póllandi í sum-
ar sem leið og þar stóðu skákmenn
okkar sig vel. Unnið er að uppbygg-
ingu nánara samstarfs við Norður-
löndin. Svo er félagsvistarnefndin
sem fær rós í hnappagatið fyrir að
endurvekja félagsvistina svona mynd-
arlega, fyrir tveim árum spiluðu svona
8 - 12, nú seinast voru það 28.
Ekki mun allt starf upptalið?
Nei, basarnefndin okkar sér um
okkar árlega jólabasar, sem mjög hef-
ur breytt um svið, þar kemur Kola-
portið með alla sína sölu inn í mynd-
ina, svo munasala verður æ minni, en
þess í stað er byggt
á hlutaveltu og
kaffisölu og geng-
urvel. Ritnefnd sér
um útgáfu Frétta-
bréfs Sjálfsbjargar
sem kemur út 5 - 7
sinnum á ári og
flytur fréttir frá
starfsemi félagsins
svo og stuttar
greinar um áhuga-
verð málefni. Nú
svo má ekki
gleyma opnu húsi
á hverju þriðju-
dagskvöldi. Þang-
að sækja býsna
margir, algengt er
að þar séu 40 - 50
Jóhannes Þór
Guðbjartsson.
22