Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands - 01.12.1999, Blaðsíða 4

Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands - 01.12.1999, Blaðsíða 4
Trimmklúbbur Eddu: Guð elskar þá sem hjálpa sér sjálfir Hún situr við stofuborðið, blaðar í liðnum augna- blikum, myndum frá Trimmklúbbi Eddu, horfir til baka á alþjóðlegar sundkeppnir sem skiluðu henni ótal verðlaunapening- um, rifjar upp góð- ar stundir með eig- inmanni og dóttur- fjölskyldu. Bernsk- an og æskan var lítt fest á ljósmynd, ævi- skeiðin sem fóru hörðum höndum um fíngerðu, bros- mildu konuna sem situr hér. Ævintýra- heimur mætir gesti hjá Eddu Berg- mann. Brúður á veggjum, hillum og borðum, listavel gerðar af Eddu sjálfri. „Má ég kynna þig fyrir stofubrúðu, gesta- brúðu og eldhúsbrúðunni sem sér um að fólki líði vel. „Ég er svo mikil leikbrúða,” segir Edda og hlær. Láréttir sólargeislar glampa á skærum litum í gluggatjöldum og rykkilíni, líkt og hér búi suðræn dansmær. „Ég sauma búninga fyrir listdanssýningar barna,” segir Edda. Mikið rétt, þarna hanga pífulagðir danskjólar á litlar álfameyjar sem gefa réttan tón 1 sveifluna eftir suðrænni tónlist. Sú sem skapar þetta er svo full af lífs- orku og gleði. Nú fyrst geri ég mér grein fyrir allri starfsorkunni í Trimmklúbbi Eddu, enda segja margir klúbb- félagar sig fá orku úr „Eddubit- um!” Sjálf er Edda fíngerð kona með mjúkar líkamshreyfingar, þótt hún styðjist við hækju, enda stund- að sund og líkamsrækt með frábærum árangri. segir Edda Bergmann Oft er sagt að þeir sem lifi erfiða bernsku, geti lítið gefið af sér á full- orðinsárum. Slíkt verður ekki sagt um Eddu, en andstæða mótunar- skeiðsins er mikil við umgjörð konunnar í dag. Yfirvegað og ró- lega segir hún frá bernsku sinni og uppvaxtarárum, án allrar sjálfs- vorkunnsemi. Slíkt er ekki í anda Eddu Bergmann. Já, ég fékk lömunarveikina sjö ára. Fyrst í sveitinni um sumarið, en veiktist aftur um haustið þegar ég kom heim, og lamaðist alveg upp í haus. Þá var hart í ári! Mamma ófrísk að yngsta bróður mínum og pabbi drakk svo mikið, að þau skildu skömmu síðar. Þá stóð mamma ein uppi með sex ung börn. Úr Skerjafirðinum var mér komið á Farsóttarhúsið og ég sett í sóttkví.” Edda þegir um stund, segir síðan: „Ég hef oft hugsað um, hve vont það þætti nú fyrir sálarheill sjö ára stelpu að vera lokuð alein inni á herbergi í þrjá mánuði - og sjá hvorki mömmu sína, pabba eða systkini. Ég var bara þrifin, gefið að borða, annars var ég ein. Ég man að herbergið mitt var blátt og ljósastaur fyrir utan gluggann sem beindi ljósgeisla inn til min, en iðulega var slökkt hjá mér. Rétt fyrir jól komst ég úr sóttkví og var flutt í stofu sex, þar sem nokkrar konur lágu. Þá fannst mér ég vera komin í himnaríki. Þar lá ung kona, Katrín Björnsdóttir, sem lamaðist alveg og var komið fyrir á elliheimil- ■ inu Grund, en þar eyddi hún ævinni. Aðrir valkostir voru ekki fyrir hendi. Þetta voru erfiðir tímar,” segir Edda sem lá íjögur ár á Farsóttar- húsinu og mátti sig ekki hreyfa, fékk enga kennslu og var langt á eftir í skóla, þegar hún loks komst á fætur. „Þessi lífsreynsla breytti mér og gerði mig þroskaðri en jafnaldra mína. Ég vildi ekki vera svona lömuð. Á fætur skyldi ég komast til að hjálpa mömmu. Og ég henti mér fram úr rúminu til að komast upp aftur. Endurhæfing var óþekkt hugtak, en ég fékk fljótt máttinn með því að þjálfa mig sjálf." Edda minnist einna jóla sem hún fékk að fara heim. „Hlýtt og hreint var heima, en ekkert til, enginn fatnaður og jólagjafir ekki ræddar. Mamma var svo stolt, að hún vildi ekki heyra minnst á Mæðrastyrks- nefnd, en einhver lét vita af okkur - mjólk, hangikjöt og sveskjur voru á jólaborðinu. Móðurbróðir minn kom með kerti og spil, og ég reyndi að teikna myndir fyrir yngstu systkini mín. Að lifa svona fátækt gerði mig nýtna og ég lærði betur að vinna úr hlutunum. Mamma fékk gefins gaml- ar flíkur og ég var ekki gömul þegar ég fór að sauma föt á systkini mín.” Ellefu ára kom Edda heim af spít- alanum. „Mamma vann þá langan vinnudag í Sænska frystihúsinu, frá sjö að morgni til sjö að kvöldi. Ein- hver varð að hugsa um heimilið. Eldri systur mínar voru með sína vik- una hvor að kaupa inn og sjá um matinn. Nú var ég komin heim og átti líka að sinna skyldunni. „Hvemig á ég að fara út í búð og kaupa inn?” spurði ég með spelkur á báðum fótum og hækjur. Þá saumaði mamma poka á bakið á mér - í hon- um druslaðist ég heim með mjólkina. Sniðugt hjá henni, finnst þér það ekki?” Undirrituð er orðlaus. Edda horfir á mig. Segir svo: „Veistu, hvað mamma sagði við mig. Ég skildi það ekki þá, en ég skil það nú. Hún sagði: „Guð elskar þá sem hjálpa sér sjálfir.” Móðir mín var einstök manneskja, skipti aldrei skapi, ég held að ég hafi erft þetta rólyndi. Við mamma vorum miklar Edda Bergmann Oddný Sv. Björgvins 4
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands
https://timarit.is/publication/1440

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.