Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands - 01.12.1999, Blaðsíða 43

Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands - 01.12.1999, Blaðsíða 43
Sókn er besta vörnin -segir Kristín Þorsteinsdóttir framkvæmdastjóri SIBS r Eg tel, að verði rétt á málum haldið, geti SÍBS orðið afar sterk samtök brjóstholssjúkl- inga á nýrri öld. Til þess, að svo geti orðið, verða menn að horfa fram á veginn.” Kristín Þorsteinsdóttir Þetta segir Kristín Þorsteinsdóttir nýráðinn framkvæmdastjóri SÍBS. Kristín varð stúd- ent frá Mennta- skólanum í Reykjavík og lauk cand.mag. prófi frá Háskóla íslands í ís- lensku. Meðfram námi kenndi hún íslensku við Verslunarskóla Islands og var blaðamaður á Vísi, síðar DV, eftir sameiningu Vísis og Dagblaðsins. 1984 hélt hún til náms í Englandi og lauk prófi í alþjóða- fjölmiðlun frá City University tveimur árum síðar. Eftir heimkom- una fór hún til starfa á Fréttastofu útvarps og sjónvarps. Síðastliðið ár fór svo fjölskyldan á gamlar slóðir í Englandi og tók upp nám að nýju. Kristín sótti þar námskeið í stjórnun félagasamtaka. Kristín er gift Skafta Jónssyni, sem starfar í utanrík- isráðuneytinu og eiga þau tvö böm. Eftir heimkomuna í sumar var Kristín ráðin í stöðu framkvæmdastjóra hjá SÍBS. “Eins og alþjóð veit, var SÍBS stofnað af berklasjúklingum á fýrri hluta aldarinnar. Þeir unnu frábært starf og með samhentu átaki þeirra og heilbrigðisyfirvalda tókst að vinna bug á berklunum. Hin síðari ár hefur því SÍBS verið vettvangur brjóstholssjúklinga, það er að segja sjúklinga, sem þjást af hjarta- og lungnasjúkdómum og astma og of- næmi af öllu tagi. Þar liggur einmitt vaxtarbroddur SIBS í dag. Lands- samtök hjartasjúklinga hafa verið geysiöflug undanfarin ár, enda kemur helmingur félaga í SÍBS þaðan. Þeir reka skrifstofu á Suðurgötu 10 í Reykjavík. Astma- og ofnæmisfélag- ið hefur því miður ekki verið nógu öflugt, en nú er verið að blása til sók- nar þar, enda stór hópur fólks, sem þjáist af slíkum sjúkdómum. Aðalfundur félagsins stendur fyrir dyram og við vonumst til að geta vakið þá athygli á félaginu, sem því ber og fá inn stóran hóp nýrra félaga. í kjölfarið hefur verið ákveðið, að félagið ásamt Félagi lungnasjúklinga fái inni á skrifstofu Landssamtaka hjartasjúklinga og félögin þrjú sameinist um rekstur skrifstofunnar. Hún verður opin á venjulegum skrifstofutíma og þangað getur fólk komið og leitað upplýs- inga. Þar munu liggja frammi alls kyns bæklingar fyrir fólk. Um það leyti verða opnaðar heimasíður félag- anna þriggja. Þar getur fólk meðal annars komið með fyrirspurnir, sem sérfræðingar svara. Þá má ekki gleyma því, að frá og með næstu áramótum verður blaðaút- gáfa á vegum SÍBS sameinuð. Þann- ig er fyrirhugað að gefa út eitt sam- eiginlegt blað fyrir öll félög SÍBS í stað margra smærri áður. Reiknað er með að það komi út fjórum sinnum á ári. Það fyrsta um mánaðamótin febrúar og mars. Gangi þetta allt eftir á ég von á því, að félögum í SÍBS eigi eftir að fjölga verulega. Það er jú ljóst, að þeim mun stærri og öflugri sem svona samtök eru, því meiru fá þau áorkað. Þarna liggur einmitt framtíð SÍBS.” Kristín segir, að sem betur fer séu berklar ekki lengur ógnvaldur í ís- lensku samfélagi, þó að þeir skjóti íbúum Eystrasaltslandanna og eink- um föngum í Rússlandi skelk í bringu um þessar mundir. Góð lyf séu nú til við berklum og því engin ástæða til að reikna með því, að berklar verði aftur vandamál á íslandi. SÍBS geti að minnsta kosti ekki setið með hendur í skauti og beðið eftir slíku. “Nú er lag til að horfa fram á veg- inn. SIBS-fólk þarf að spyrja sig, hvar getum við látið gott af okkur leiða núna? Ég tel svarið vera meðal hjarta- og lungnasjúklinga og astma- og ofnæmissjúklinga. Það er fólkið, sem þarf á okkur að halda. Gömlu berklasjúklingarnir og afkomendur þeirra þurfa ekki að óttast það að þeim verði gleymt. SÍBS-fólk á að læra af reynslunni, en ekki lifa á fornri frægð. Eða eins og segir í fótboltanum: Sókn er besta vörnin,” segir fram- kvæmdastjórinn Kristín Þorsteins- dóttir. H.S. Vísa og beiðni Hann Guðmundur J. Mikaelsson leit hér inn einn fagran og mildan haustdag og laumaði að mér lítilli vísu og beiðni um bréfavin. Fyrst vísan góða: Erfið fjallganga Upp var lagt á Ulfarsfell erfitt fyrir kroppinn en okkur lokum auðnaðist efst að ná á toppinn. Guðmundur J. Mikaelsson. Og svo beiðni um bréfavin. Þýskur 24ra ára fatlaður maður notar frítímann til bréfaskrifta en frí- merkjasöfnun er eitt af hans áhugamálum. Hann heitir Markus Grote og heimilisfangið er: Mahntestrasse 1, D - W 3411 Katlenb. - Lindau 6 Germany. FRÉTTABRÉF ÖRYRKJABANDALAGSINS 43
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands
https://timarit.is/publication/1440

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.