Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands - 01.12.1999, Blaðsíða 19

Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands - 01.12.1999, Blaðsíða 19
hugsuð þar sem um breytingar er að ræða á gömlu húsnæði. Hvorttveggja er, að þetta er síst til prýði, þegar aðrar leiðir eru færar og ekki fýsi- legur kostur í íslensku vetrarveðri og kafsnjó. Þó er skylt að taka ífam, að vel var tekið í margar ábendingar viðvíkjandi byggingunni og þeim fylgt eftir. En tröppurnar skyldu standa. r AAusturlandi er nýlega risið gistihús þar sem neðsta hæð er að vísu aðgengileg öllum, en ekki er gjört ráð fyrir gistingu hjólastóla- notenda í húsinu. Það leyfa snyrt- ingamar ekki. Þetta á að koma í næsta áfanga segja þeir. Ennþá eru margir skólar, að undan- skildum þeim allra nýjustu, þar sem aðgengi er meira eða minna ábóta- vant. í íslenskum lögum stendur að allir skuli hafa jafnan aðgang að menntun. Oft er þetta í orði en ekki á borði. Ófullnægjandi aðgengi er skerðing á mannréttindum. Við erum orðin ákaflega þreytt á að bíða eftir næstu áföngum. Það átti líka að koma lyftu í Þjóðleikhúsið í næsta áfanga, þegar þar voru gjörðar endur- bætur fyrir hver veit hvað mörgum árum. Sá áfangi lætur á sér standa. I nýútkomnu fréttabréfi Öryrkja- bandalags íslands er viðtal við for- mann SEM samtakanna Jón H. Sig- urðsson, líffræðing og kennara, sem mig langar að vitna í, örstutt: Þar segir Jón frá ótrúlegum málaferlum SEM hópsins við húsfélagið að Hátúni 6 b í Reykjavík.. “Húsfélagið SEM keypti íbúð í húsinu, en í ljós kom að um 20 cm. stallur er frá bíla- stæði hússins upp á gangstétt. Við fórum fram á það við húsfélagið að skábraut yrði gerð inn í húsið, en fengum synjun á þeirri forsendu, að ef einn hjólastóll kæmi í húsið, hlytu fleiri að fylgja á eftir og íbúðaverð myndi því lækka.” Málið er nú í höndum lögfræðinga, segir Jón. Maður hélt að svona fordómar tilheyrðu liðinni tíð. En þetta styður auðvitað þörfina á því að koma upp sem allra flestum skábrautum við gömul hús til þess að hægt sé að dreifa þessum stórhættulega hópi um íbúðabyggðina. En þrátt fyrir þetta er það samt miklu fleira sem má gleðjast yfir. Ég ætla að nefna örfá dæmi: Um þessar mundir er verið að endur- bæta og endurskipuleggja nrargar gamlar byggingar í Reykjavík og aðlaga þær þörfum allra. Allar þessar byggingar eru í þjóðareign. Þar eru meðal annars: Dómkirkjan, Þjóðmenningarhúsið við Hverfis- götu, (áður Þjóðskjalasafnið), Þjóð- minjasafnið og viðbygging við Alþingi. Þarna hefur verið tekið mikið tillit til aðgengis fyrir alla. I sumum tilvikum krefst það talsverðra breytinga, annars staðar setti húsa- friðun því nokkrar skorður. Það er líka gaman að minna á nor- ræna samkeppni um endurbyggingu menningarsögulegra húsa, sem fór fram í fyrra en þar fengu íslensku byggingarnar Iðnó í Reykjavík og Langabúð á Djúpavogi verðlaun og viðurkenningu fyrir gott aðgengi. Steingrímur J. Sigfússon, sem er for- maður Norræna ráðsins um málefni fatlaðra, mun fjalla nánar um störf hennar hér á eftir. Reykjavíkurborg ber að þakka ágætt átak í aðgengis- málum. Við getum líka verið stolt af sund- stöðum okkar, sem hafa risið hver öðrum glæsilegri og nú verður ekki undan því vikist lengur að geta tekið á móti öllum sundgestum, því að í nýjustu reglugerð stendur að sundstaðir skuli vera aðgengilegir öllum. Þar eru hreinar línur. Það er von okkar að bókin Aðgengi fyrir alla verði á borði allra þeirra sem vinna að skipulags- og bygg- ingarmálum hér á landi. Hún á að geta veitt svör við fjölmörgum atriðum sem nauðsynleg eru til þess að samfélagið verði öllum opið. Að svo mæltu vil ég biðja félags- málaráðherra og umhverfisráðherra að koma hér upp á sviðið og taka við fyrstu eintökum bókarinnar Aðgengi fyrir alla. Ólöf Ríkarðsdóttir. Velkomin í Dvöl r Ahaustdögum var í Dvöl - at- hvarfi fyrir geðfatlaða í Kópavogi - haldið upp á eins árs afmæli athvarfsins. Var þar gnótt góðra gesta og segja mátti að þar mættu sáttir þröngt sitja og áttum við Guðríður og Garðar þar góða stund. Við fengum í hendur fallegan bækling sem ber nafnið: Velkomin í Dvöl. Fyrirsagnir þar gefa nokkra hugmynd um efnið: Dvöl á eigin forsendum. Góð aðstaða. Fjölbreytt starf. Ýmis þjónusta. Rjúfum einangrunina. Það síðasttalda er einmitt ætlunin með athvarfinu, það á að miða að því að rjúfa félagslega einangrun. Dvöl hefur áður verið kynnt hér vel, athvarfið er opið 9-16 alla virka daga og sjálfboðaliðar starfa svo í athvarfinu einn til tvo laugardaga í mánuði. í bæklingnum er greint frá fjöl- breyttu starfi Dvalar, en Dvöl er til húsa í fallegu umhverfi að Reyni- hvammi 43 í Kópavogi og að rekstrinum standa: Rauði kross íslands - Kópavogsdeild, Kópavogs- bær og Svæðisskrifstofa málefna fat- laðra á Reykjanesi. Bæklingurinn er mjög fallegur út- lits og innihaldið ekki síðra sem og starfið allt sem sannarlega hefur blómstrað og veitt mörgum verm- andi dvöl. Bæklingurinn er til hér á skrifstofunni. H.S. FRÉTTABRÉF ÖRYRKJABANDALAGSINS 19
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands
https://timarit.is/publication/1440

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.