Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands - 01.12.1999, Blaðsíða 10
AÐGENGI FYRIR ALLA
Loksins - loksins myndi eflaust
einhver segja þegar hand-
bókin haldgóða: Aðgengi
fyrir alla, handbók um umhverfi og
byggingar kemur nú í okkar hendur.
Einhver bókaraðstandenda nefndi 9
ára meðgöngu í stað þessara 9
mánaða sem allir kannast við. Öll
fögnum við uppskerunni; svo ágæt
sem hún er, bókin langþráða er orðin
borðleggjandi staðreynd í þeirra orða
bókstaflegu merkingu. Engir munu
meir mega fagna en allt það ágæta
fólk sem lagt hefur á sig ómælda
vinnu svo af þessu
mætti verða. Því
verður seint full-
þakkað.
18. okt. sl. hélt
Samband íslenskra
sveitarfélaga myndar-
lega og vel heppnaða
ráðstefnu um þessi
málefni. Daginn áður
var öllum styrktar-
aðilum boðið til út-
gáfuveislu ágætrar og
þar mættu nokkuð á
þriðja tug manna.
Sigurður Harðarson
arkitekt og einn
höfundanna um leið
ávarpaði fólk þar, fór
yfir helstu atriði
bókarinnar, gat þeirra fjölmörgu sem
gjört höfðu þetta kleift á einn eða
annan hátt og færði þeim
alúðarþakkir.
Styrktaraðilar fengu svo afhent ein-
tak af bókinni góðu, en bókin er svo
endanlega útgefin af Rannsókn-
arstofnun byggingariðnaðarins og þar
verður hún vistuð. Óli Hilmar
Jónsson arkitekt hefur verið og er þar
í fyrirsvari.
Sigurður sagði um langþráðan
áfanga að ræða og útgáfa bókarinnar
ylli vissum tímamótum í þessum
málum.
Ráðstefnunni 18. okt. sl. verða
svo gjörð hér skil s.s. verðugt er,
en gnótt góðra fyrirlesara gjörðu
málum þar skil og eitt erindanna er
hér birt, erindi Ólafar Ríkarðsdóttur,
en að bókinni hefur hún frá upphafi
komið af elju sinni og áhuga.
Formaður Sambands ísl. sveitar-
félaga Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson
setti ráðstefnuna með ávarpi og
stjórnaði svo ráðstefnunni í fyrstu en
Guðrún Jónsdóttir formaður ferli-
málanefndar félagsmálaráðuneytis
tók svo við stjórn síðar af Vilhjálmi.
Vilhjálmur minnti á væntanlega
yfirfærslu málefna fatlaðra til sveitar-
félaganna, en forsenda þess væri að
nægir ijármunir fylgdu. Hann minnti
einnig á ótvíræðar skyldur sveitar-
félaga í aðgengismálum, þar myndi
handbókin að góðu gagni koma. Til
þyrfti að koma samráð og samvinna
sem flestra, næg fræðsla þyrfti að
vera til staðar, því þó margt hafi verið
vel gjört biði enn margt. Páll
Pétursson félagsmálaráðherra sagði
gott aðgengi ekki sérmál fatlaðra,
þess nytu allir í samfélaginu. Páll
minnti á framlög Framkvæmdasjóðs
fatlaðra til ferlimála sem færu vax-
andi. Hann gat um samstarf við
umhverfisráðuneytið um aðgengis-
mál. Mikilvægt væri, sagði ráðherra,
að standa rétt að byggingum frá
upphafi enda lagaleg skylda.
Guðrún Jónsdóttir form. ferli-
nefndar félagsmálaráðuneytis
rakti nokkur helstu hlutverk nefnd-
arinnar m.a. það að fylgjast með
lagasetningu.
Ferlinefndin ætti einnig að fá
reglugerðir til unrsagnar en svo ekki
verið og eins væri rétt að nefndin
hefði umsagnarrétt um úthlutanir úr
Framkvæmdasjóði fatlaðra til ferli-
mála. Hún minnti á samkomulag
ríkis og sveitarfélaga um ferlimál og
samning við Samband ísl. sveitar-
félaga þar að lútandi sem nú væri
útrunninn og unandi lausn mála yrði
að finna. Hún kvað ferlinefndir
sveitarfélaga afar nauðsynlegar.
Skilningur á þessum málum færi
vaxandi og minnti á aðgengismál í
víðustu merkingu s.s. hvað varðar
blinda, heyrnarlausa, þroskahefta auk
hreyfihamlaðra, sem forystu hefðu
haft um að knýja á um úrbætur.
Guðrún sagði nauðsyn að ákvarða
hvert hlutverk ferli-
nefndar ætti til
framtíðar að verða.
Farveg vantaði
augljóslega fyrir um-
sagnir og úrskurði.
Þessu næst flutti
Unnar Stefánsson rit-
stjóri erindi Sigurðar
Thoroddsen deild-
arstjóra í Skipulags-
stofnun um lög og
reglugerðir um að-
gengismál. Sigurður
sagði ekki skorta lög
og reglugerðir, held-
ur framkvæmd svo
og kæmu ábendingar
of seint og illa fram.
Hann kvað nauðsyn-
legt að styrkja embætti byggingar-
fulltrúa með sérstöku tilliti til
aðgengismála. Forsenda bygginga-
og skipulagsgjörða sú að fólk í
hjólastól komist allra sinna ferða
bæði úti sem inni.
Sigurður minnti á ákvæði urn
bílastæði, salerni, dyr, íbúðir,
skábrautir, lyftur og fl., ákvæðin til
staðar, framkvæmd skorti. Þá talaði
Ólöf Ríkarðsdóttir en erindi hennar
hér birt. Að lokinni ræðu Ólafar
afhentu þau aðstandendur hand-
bókarinnar félagsmálaráðherra og
umhverfisráðherra sitt eintakið hvor-
um.
Jón Ólafur Ólafsson arkitekt
kynnti svo handbókina. Fæðing
væri afstaðin en uppeldishlutverkið
eftir. Á meðgöngutíma handbókar-
innar hefði margt gjörst varðandi
laga- og reglugerðarsetningu. Sýndi
svo nokkur sýnishorn úr handbókinni
Frá ráðstefnunni.
10