Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands - 01.12.1999, Blaðsíða 33

Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands - 01.12.1999, Blaðsíða 33
INNLITIÐ Hingað leit inn síðasta apríl- dag Jóhannes Svavarsson og hafði að vanda frá mörgu að segja. -Hann langaði til að koma á framfæri brotabroti af sögu sinni, en Jóhannes er virkur félagi í Blindrafélaginu. Tvennt var hon- um efst í huga: Afleiðingar af alvarlegu vinnu- slysi og tildrög þess og svo ákveðin reynslu- saga sem hann upplifði á þeim tíma er hann var meðvitundarlaus eftir hið hræðilega slys. Fyrst slysið og afleiðingar þess: „1974 varð ég fyrir alvarlegu vinnuslysi og hefi búið við afleið- ingar þess nú í 25 ár. Slysið varð með þeim hætti að 1200 kílóa kranabóma féll á höfuð mitt svo ég bæði þrí- höfuðkúpubrotnaði og þríkjálka- brotnaði, hakan fór í tvennt, efri gómur brotnaði, tennur fóru meira og •ninna og enni hreinlega í mask. Hreint undur að ég skyldi yfirleitt lifa þessi ósköp af. Sem dæmi nefni ég að læknar gerðu op á barkann, svo ég gæti andað á meðan aðgerð fór fram. Eg var meðvitundarlaus í 5 vikur eftir slysið og af því er saga sem ég kem síðar að. Og hverjar urðu svo afleiðing- arnar. Jú, ég er með skakkt and- lit, ör á enni, nefi og við hægra auga. Sjón er engin á hægra auga og aðeins 10% á vinstra auga. Engin heyrn á hægra eyra. Og er þetta nú ekki nokkuð nóg.” Og svo kemur Jóhann- es að reynslusögu sinni frá dáinu sem er hreinlega greipt í hug hans. “Ég sá sjálfan mig liggjandi eins og hvert annað hrúgald við timbur- búntið á slysstað og sá mennina stumra yfir mér. Mér fannst ég svífa úr skrokknum upp til skýja og allt í einu var ég kominn inn í herbergi eða sal. Þar sátu tveir menn við borð og á borðinu var þykk og stór bók. Maðurinn sem var vinstra megin við borðið klappaði á öxl mér og sagði: Það er allt í lagi með þig vinur. Þú mátt halda áfram, en þú átt að koma við á fjórum stöðum og fá fyrirgefningu synda þinna.” Ég þakkaði kærlega fyrir mig og sveif svo áfram ofar skýjum, heyrði fagran fúglasöng og fannst allir vera svo góðir umhverfis mig. Mér leið alveg sérstaklega vel. Svo litaðist ég í kringum mig og sá þá stiga, fannst ég þá verða svo þreyttur að ég rétt lagði höndina á handriðið en upp sveif ég svo. Á leiðinni sá ég mikla biðröð fólks. Á leiðarenda sá ég gamlan mann gæta dyra. Á dyrunum var hurð sem var miklu stærri um sig en venjuleg hurð og með afar skrýtnum snerli. Ég spurði hvort ég mætti rétt kíkja inn og fékk leyfi til þess. r Eg opnaði dyrnar og sá langar leiðir inn í víðáttuna. Allt var ljómandi bjart. Ég sá líka hvíta hóla og tvo menn, sem komu með haka og skóflu á öxl sér. Þeir kinkuðu kolli og byrjuðu að vinna við einn hólinn. Lengri verður þessi reynslusaga ekki en hún stendur mér ljóslifandi fyrir hugskotssjónum sem dýrmæt reynslusaga, sem hver má taka sem hún eða hann vill.” Svo var Jóhannes rokinn niður í LAUF og ætlaði að vita hvort hann gæti orðið þar til einhvers gagns. Ritstjóri bað hann um mynd af þeim sem leit þannig inn og Jóhannes kvað það sjálfsagt. Skeiðaði svo af stað með sinn hvíta staf og ómissandi skjalatöskuna í hinni hendinni. Honum fylgdu velfarnaðaróskir út í vorið. H.S. Hlerað í hornum Feðgar tveir, kunnir athafnamenn, komu nær daglega á veitingahús eitt, borðuðu og drukku mikið af viskii. Einn daginn drukku þeir óvenjumikið eftir matinn og sátu lengi. Þá greip sonurinn allt í einu fyrir hjartað og kveinkaði sér mikið. Starfsfólkið brá strax við og hringdi á sjúkrabíl sem kom von bráðar og voru allir að stumra yfir syninum. Faðirinn horfði á um stund en sagði svo: “Get ég fengið tvöfaldan viskí, varla þurfa allir að standa í þessu veseni.” I þorpi einu úti á landi komu karlar þorpsins gjarnan saman eftir vinnu eða ef lítið var um atvinnu og þá ætíð í kaupfélagshúsinu. Þangað mætti og Jón hreppstjóri og mætti snemma og þá einkum fyrir helgar. Hélt hann sig þar sem matvæladeildin var og sögðu menn að hann hefði viljað geta fært kerlu sinni fréttir af því hvað hús- freyjumar keyptu í helgarmatinn. Því til sönnunar var sú saga sögð að hreppstjórafrúin hefði komið til nágrannakonu sinnar á sunnudags- morgni og litið inn í ofninn þar sem steik mallaði. Frúnni brá og sagði með þjósti: “Keyptirðu hrygg? Jón sagði að þú hefðir keypt læri.” Maður einn eystra var frægur fyrir ýkjusögur sínar og allt yfir í hreinar lygasögur. í hófi eftir kaupfélags- fund þar sem maðurinn var staddur bauð kaupfélagsstjórinn þeim sem sagt gæti bestu lygasöguna 100 króna verðlaun sem jafnaðist þá á við tvenn daglaun. Þá stóð maðurinn upp og sagði: “Fyrirgefðu, Þorsteinn minn, en ég get ekki tekið þátt í þessari keppni því ég hefi aldrei sagt ósatt orð um dagana.” Þorsteinn rétti hon- um 100 krónurnar umyrðalaust. Maður einn var spurður um líðan konu sinnar og svarið var: “Hún er oft afleit í fótunum en hún er góð þar á milli”. Formaður sóknarnefndar einnar úti á landi hringdi í konu í sóknarnefnd- inni og sagði í upphafi: “Ja, nú erum við í vondum málum”. Konan spurði um ástæðu þessa. “Jú, sjáðu til, bisk- upinn er að koma til að vísitera”. Lítill strákur spurði foður sinn að því hvort hann vissi hver væri munurinn á hrossaskít og mjólk. Þegar faðirinn sagðist ekki vita það sagði sá litli: “Ekki myndi ég þora að senda þig út í búð eftir mjólk.” FRÉTTABRÉF ÖRYRKJABANDALAGSINS 33
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands
https://timarit.is/publication/1440

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.