Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands - 01.12.1999, Blaðsíða 50
aldrei verið fleiri. Námskeið sóttu
alls 53 einstaklingar. Guðrún gat um
nefndarskipan vegna hugsanlegrar
Hringsjár - deildar norðan heiða,
einnig um nýjar starfsreglur Hring-
sjár. Stjórn Hringsjár skipa nú:
Margrét Margeirsdóttir form. og þau
Ólafur H. Sigurjónsson og Ólöf
Ríkarðsdóttir.
Skýrsla Hússjóðs var flutt af
varaformanni sjóðsstjórnar, Haf-
liða Hjartarsyni en eins og áður birt
hér í heild.
Skýrslu Vinnustaða ÖBÍ flutti
framkvæmdastjóri þeirra, Þorsteinn
Jóhannsson. Niðurstaða rekstrar-
reiknings 1998 var um 3.5 millj. kr. í
halla.
Þess gat Þorsteinn hins vegar að
árið 1999 virtist koma ágætlega út,
rekstrartekjur muni hækka verulega
umfram rekstrargjöld. Þorsteinn gat
einnig glögglega um nefndarstarf sitt
um launamál fatlaðra starfsmanna á
vernduðum vinnustöðum, en Þor-
steinn fulltrúi ÖBÍ í nefnd félags-
málaráðuneytis þar um. Að lokum
minnti Þorsteinn á að þrátt fyrir
ríkisstyrkinn skiluðu Vinnustaðir
ÖBI hærri upphæð til ríkissjóðs en
styrknum næmi, arður ríkissjóðs þar
um ein milljón króna sem mun eins-
dæmi í Evrópu.
I almennum umræðum um skýrsl-
urnar tóku ýmsir þátt m.a. komu
ýmsar fyrirspurnir sem greiðlega var
svarað. Gísli Helgason spurði hversu
raunhæf biðlistatalan upp á 350 hjá
Hússjóði væri og Kristín Jónsdóttir
kvað hana gefa mjög raunsanna
mynd af íbúðaþörf.
Valey Jónasdóttir fagnaði væntan-
legri tilkomu Hringsjár á Akureyri og
þakkaði fyrir frábæra atvinnumála-
ráðstefnu.
Hafdís Hannesdóttir lagði sérstaka
áherslu á það að hjálpartækjamál
verði áfram hjá ríkinu hvað sem líður
allri yfirfærslu og því svarað að svo
myndi verða.
Arnór Pétursson gjörði bifreiða-
kaupastyrki að umtalsefni og ávinn-
ing ársins þ.a.l. Vildi sjá ÖBI í sam-
starfi um þróunarhjálp og lofaði svo í
lokin mjög starf Hringsjár og árangur
allan.
Eyjólfur Guðmundsson endur-
skoðandi flutti því næst reikn-
inga ÖBÍ, Hússjóðs, Hringsjár og
Ræðumanni klappað lof í lófa.
Vinnustaða ÖBÍ. Skoðunarmenn
ÖBÍ höfðu yfirfarið, þeir Vigfús
Gunnarsson og Tómas Sturlaugsson.
Svo vikið sé aðeins að tölum þá
voru laun og launatengd gjöld hjá
ÖBÍ nær 13 millj.kr., annar rekstr-
arkostnaður rúmar 7.7 millj. kr.
fréttabréf tók tæpar 6.6 millj. kr. Þá
fengu aðildarfélög 11 millj. kr. i
styrki og aðrir tengdir aðilar tæpar 3
millj. kr.
íslensk getspá skilaði 137.6 millj.
kr og til Hússjóðs fóru þar af rúmar
83 millj. kr.
Fasteignir í rekstri hjá Hússjóði
nema að verðgildi tveim milljörðum
og 183 millj. kr. Rekstrartekjur
Vinnustaða ÖBÍ voru 24 millj. kr.
Rekstrargjöld Hringsjár voru samtals
rúmlega 20 millj. kr. Að loknum
fáeinum fyrirspurnum voru allir
reikningar samþykktir einróma.
Þá var komið að yfirlitum frá starf-
snefndum. Hafliði Hjartar-son
flutti skýrslu atvinnumálanefndar
sem 5 fúndi hélt á árinu. Fjallaði
m.a. um rekstrargrundvöll vernduðu
vinnustaðanna, launa- og kjaramál
þar, úttekt þyrfti að fara fram á
þjóðhagslegu gildi vernduðu vinnu-
staðanna.
Nefndin fjallaði einnig um álit
nefndar félagsmálaráðuneytis um
starfskjör á vernduðum vinnustöðum
og var í höfuðatriðum sammála inni-
haldi álitsins en gjörði þó ýmsar
athugasemdir.
Guðríður Ólafsdóttir flutti yfirlit
félagsmálanefndar. Nefndin fór m.a.
yfir tillögur um bætta stöðu og þátt-
töku fatlaðra í tómstundum, menn-
ingu og ferðalögum sem áður hafa
verið neíndar. Bandarískar, “Siða-
reglur fyrir skólaliða” voru þýddar að
beiðni Félags skólaliða.
Ferlimál voru mikið rædd, bréfa-
skriftir og fundir þ.a.l. sem vonandi
skila árangri. Garðar Sverrisson
flutti yfirlit kjaramálanefndar. Hann
greindi frá kynningarátaki fyrir síð-
ustu alþingiskosningar sem mikið
hefði verið lagt í.
Kvað tjárlagafrumvarp fyrir næsta
ár ekki gefa tilefni til bjartsýni, en
vitundarvakning hefði tvímælalaust
orðið. Áfrarn yrði hiklaust að halda.
Ólafur H. Sigurjónsson flutti yfirlit
menntamálanefndar. Nefndin kynnti
sér vel og yfirfór nýjar námskrár fyrir
leikskóla, grunnskóla og framhalds-
skóla svo og var fjallað um háskóla-
stigið. 95 nemendur í Háskóla
Islands eru með samning við Náms-
ráðgjöf H.Í., helmingur þeirra með
dyslexíu.
Ólafúr kvað tveggja ára brautir á
framhaldsskólastigi ná allt of skammt
og námsframboð væri of fátæklegt.
Þá var að kosningum komið. For-
maður uppstillinganefndar, Þórir
Þorvarðarson kynnti tillögur nefnd-
arinnar um menn í framkvæmda-
stjóm. Formaður til tveggja ára var
kjörinn Garðar Sverrisson. Gjaldkeri
til tveggja ára var kjörinn Emil
Thóroddsen. Varaformaður til eins
50