Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands - 01.12.1999, Blaðsíða 14

Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands - 01.12.1999, Blaðsíða 14
Guðjón Sveinsson rithöfundur: BEÐIÐ EFTIR VORINU Gamli maðurinn lá í rúmi frammi við dyrnar og beið eftir vorinu. Fyrst eftir að hann fékk þetta súðarherbergi til afnota hafði rúmið staðið undir stafngluggaborunni. En þar sem bæði trekkti og pískaði inn um hana í austan- hretum var reynt að bæta úr því með að hengja fyrir glugg- ann köflótt teppi. Það talið duga sæmi- lega í fyrstu, en er kólnaði í veðri hafði rúmið verið flutt fram að dyrunum. Þessar tvíhliða aðgerðir bættu eitt- hvað úr skák en gamli maðurinn saknaði samt að geta ekki horft yfir grasflötina, þegar hann reisti sig upp. Þess í stað varð hann að berja köflótta teppið aug- um. Það fór í taugarnar á honum og ... en nóg um það. Ekki var miðstöðvarofn í þessari súðarkompu. Hún hafði upphaflega verið smíðaloft tengdaföður dótt- ur gamla mannsins, en eftir að hann fór til fundar við feður sína og frændur hafði kompan verið notuð sem geymsla og fæstir látið sér til hugar koma, að hún yrði nokkurn tímann íveru- staður. Raunar átti hún heldur ekki að verða það, því til stóð að gamli mað- urinn færi á elliheimili, en ekki búið að ræða það við hann. Þess vegna þótti ekki taka því að leggja fyrir miðstöðvarofni upp í kompuna meðan beðið var eftir plássinu. En til að leysa tímabundinn vanda var komið þangað með olíuvél. Hún hitaði vel en gat átt það til að ósa og varð þá nokkur stybba í kompunni. Hana þoldi gamli maðurinn bölvanlega, lungun léleg eftir nokkrar svæsnar lungnabólgur. Var þvi sjaldnar kveikt á vélinni en þurft hefði og á stundum andkalt í risinu. En gamli maðurinn kvartaði ekki. Nei, nei, langt í frá. Þetta lagaðist með vorkomunni. En það var hávetur og langt til vors. Gamli maðurinn stytti sér stundir með því að riíja upp angan og hlýju liðins sumars. Hann hafði alltaf haft fótavist og gengið út, látið gol- una strjúka vangana og teygað blómailm úr loftinu. Hafði hvem dag rölt steinsteyptan stíginn fram að hliðinu - en aldrei farið lengra, enda ókunnur í þessu plássi. Umferðin þar öllu meiri en í sveitinni og hann óvanur þeirri menningu. Svo hafði hann heldur ekki kunnað á læsing- una. Var víst einhver nýtískulæsing og hann sjóndapur, gat hvorki tafið tengdasoninn né eða aðra að kenna honum, gamlingjanum einskis nýtum, að opna þessa læsingu, enda engin þörf að fara lengra. Hann hafði ætíð stansað stundar- korn við hliðgrindina og lagt hend- urnar á rimlana. Verið býsna notalegt að snerta þá. Grindin minnti hann svo sannarlega á hliðgrindina heima, fyrir austan. Að vísu var hún ekki með eins flókinni læsingu og tæpast eins vel smíðuð og þessi - en hliðgrind samt, hans hliðgrind. Ekki hafði liðið á löngu þar til hann fór að þekkja rimlana, hvern og einn. Þeir haft sín sérkenni, rétt eins og mannfólkið og sauðkindin, og fljót- lega orðið vinir hans. Og meðan hann hafði staðið þarna og spjallað við rimlana hafði hann horft yfir götuna, einnig fram með henni, bæði til hægri og vinstri. Og þó hann sæi illa frá sér, hafði hann heyrt glöggt nið umferðarinnar og sannfærst enn betur um, að hann ætti ekkert erindi út í hraða heimsins. Þá hafði drengurinn kom- ið til sögunnar. Dag einn þegar gamli maðurinn stóð á spjalli við kunningjana í hliðgrindinni, kallaði skær bamsrödd: - Langar þig ekki út? Gamli mað- urinn leit upp og sá dreng, sennilega fimm til sex ára, standa á gangstéttinni utan við hliðið. - Ég veit ekki, væni minn. Ég er nú orðinn svo gamall, að mér nægir að róla þennan spöl ofan frá og til baka. Ó, já. Drengurinn stóð gleitt Guðjón Sveinsson 14
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands
https://timarit.is/publication/1440

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.