Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands - 01.12.1999, Blaðsíða 25

Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands - 01.12.1999, Blaðsíða 25
GEÐHJÁLP 20 ÁRA Vinjarkórinn syngur. Alþjóðageðheilbrigðisdagur- inn var haldinn hátíðlegur sunnudaginn 10. október s.l. °g þess minnst um leið að 20 ár eru liðin frá stofnun Geðhjálpar. Safnast var saman á Hlemmtorgi laust eftir hádegi á þessum sólbjarta haustdegi og gengið undir hljómfalli Lúðrasveitar verkalýðsins sem leið lá niður Laugaveginn og í Ráðhús Reykjavíkur. í ráðhúsinu tók við lifandi og upplýsandi dagskrá undir stjórn Benedikts Davíðssonar, for- manns Landssambands aldraðra, en dagurinn var í ár tileinkaður geðheil- brigði og öldrun. Formaður Geðhjálpar, Pétur Hauksson, bauð menn velkomna, rifjaði upp fyrstu kynni sín af félag- inu og stiklaði á stóru um sögu þess til þessa dags, m.a. með hliðsjón af viðhorfum samfélagsins til geðsjúk- dóma. Pétur minnti á að félagið hefði á sínum tíma sprottið upp sem gras- rótarhreyfing og þrátt fyrir fjöl- breytta starfsemi í dag væri og ætti hlutverk félagsins fyrst og fremst að vera barátta fyrir auknum og bættum réttindum geðfatlaðra. Að lokinni ræðu formanns flutti Þórir Haraldsson, aðstoðarmaður heilbrigðis- og tryggingaráðherra, fundinum kveðjur ráðherra síns og lagði á það áherslu að náið og gott samstarf héldist með Geðhjálp og stjórnvöldum. Slíkt væri báðum til gagns, þótt e.t.v. tækist mönnum ekki alltaf að ná saman um öll mál. Næstur talaði Ólafur Ólafsson, formaður Félags eldri borgara í Reykjavík, og gerði að umræðuefni mikla notkun geðdeyfóarlyfja hjá öldruðum, en lyfjanotkun þessa rakti hann fyrst og fremst til almenns óyndis meðal eldra fólks. Þessa van- líðan aldraðra kvað hann öðru ffemur eiga rót að rekja til þess hve illa við Islendingar byggjum að öldruðum. I því sambandi lagði hann sérstaka áherslu á að hvað sem liði talna- kúnstum stjórnmálamanna væri það óhrekjanleg staðreynd að almanna- tryggingabætur væru hér mun lakari en meðal þeirra nágrannaríkja sem við bærum okkur að jafnaði saman við. Þennan vanda þyrfti að við- urkenna og taka á með viðeigandi hætti, ekki hvað síst verulegri hækkun grunnlífeyris. Ólafiir Þór Ævarsson geðlæknir og sérfræðingur í geðröskunum aldraðra fjallaði vítt og breitt um geðraskanir í þessum aldurshópi, sem hann sagði afar vanmetnar. Einkum gerði hann að umtalsefni aukna þekkingu okkar á einkennum, eðli og orsökum þess- ara raskana og þau meðferðarúrræði sem við ættum nú völ á. Lagði hann þar ekki einungis áherslu á ný úrræði á sviði lyfja- og læknismeðferðar, heldur einnig á nauðsyn þess að byggðar verði upp sérhæfðar geð- deildir fyrir aldraða. Vilhjálmur Guðjónsson, sonur aldraðrar móður sem átt hefur við alvarlegan geðsjúkdóm að stríða, lýsti fyrir fundarmönnum bakhliðinni á þeim “sparnaði” stjórnvalda að loka geðdeildum tímabundið, þ.e.a.s. þeirri hlið sem veit að sjúklingnum og nánustu aðstandendum hans. Var greinilegt að hin einlæga og um- búðalausa frásögn Vilhjálms af meðferð ríkisvaldsins á fárveikri konu hafði mikil áhrif á fundarmenn. Hið sama er óhætt að segja um frásögn Margrétar Auðunsdóttur, sem skýrði fundinum frá starfi sjálfs- hjálparhóps fólks sem orðið hefur fyrir einelti, en í afmælisriti Geðhjálpar er að finna mikinn og athyglisverðan fróðleik um þá mar- tröð sem eineltið er þeim einstakl- ingum sem fyrir verða og þau sár sem slíkt jafnan skilur eftir sig. Sjálfshjálparhópur fólks sem orðið hefur fyrir einelti starfar samkvæmt svokölluðu tólf spora kerfi sem upp- runnið er í AA-samtökunum. Sama á við um nýjan sjálfshjálparhóp fólks sem átt hefur við geðhvörf að stríða. Fyrirhugaðri starfsemi hans var lýst af Sveini Rúnari Haukssyni, sem gerði grein fyrir mikilvægi þessa en létti mönnum jafnframt lund með stuttum frásögnum af gamansömum atvikum tengdum annars alvarlegu viðfangsefni. Milli atriða söng kór athvarfsins Vinjar undir stjórn og undirleik Sigvalda Kaldalóns. Að lokum var fundarmönnum öllum boðið í hús Geðhjálpar að Túngötu 7 og þiggja þar kaffiveitingar í boði félagsins. Þess skal að endingu getið að sjálfshjálparhópur fólks sem orðið hefur fyrir einelti hittist í húsi félagsins sérhvert þriðjudagskvöld kl. 20. Sjálfshjálparhópur fólks með geðhvörf hittist hins vegar á fimmtu- dögum kl. 21 á sama stað, Túngötu 7. Símanúmer Geðhjálpar er 570 1700. G.Sv. FRÉTTABRÉF ÖRYRKJABANDALAGSINS 25
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands
https://timarit.is/publication/1440

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.