Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands - 01.12.1999, Qupperneq 13

Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands - 01.12.1999, Qupperneq 13
þessu næst um atvinnuleit heyrn- arlausra. Hún kvað það eitt helsta baráttumál félagsins að vinna gegn atvinnuleysi félagsmanna. Ráðinn var starfsmaður í fullu stöðugildi til atvinnuverkefnis, er tengiliður heyrnarlausa starfs- mannsins og atvinnurekandans, nefndur fræðslufulltrúi. Hann kemur á fræðslufundum í viðkomandi fyrirtæki, kennslu í táknmáli og sam- skiptum við heyrnarlausa. Fyrst er atvinnuleitin sem þarf að vera vönduð, kynna vel alla þætti svo báðir viti af hinum. 28 hafa leitað til fræðslufulltrúans um aðstoð við atvinnuleit. 25 fengið atvinnu og allir í vinnu í dag. Eftirfylgni m.a. með heimsóknum á vinnustað. Atvinnuþátttaka kallaði á aukinn áhuga fyrir menntun. Og Hafdís sagði: “Síðast en ekki síst eykur það sjálfstraust og vellíðan að fara á endurmenntunarnámskeið, sérstak- lega hjá þeim sem ekki hafa stundað nám í mörg ár.” Þá var komið að Omari Stef- ánssyni framkvæmdastjóra Blindravinnustofunnar sem nefndi sitt erindi: Blindravinnustofan - vemduð vinna - almenn störf. Ómar rakti tildrögin að stofnun Blindravinnustofunnar, því frum- kvöðulsstarfi sem innt var af hendi. Nú starfa 20 fatlaðir einstaklingar á vinnustofunni. Styrkur frá ríki nemur nú um 6% af veltu Blindrafélagsins. Ómar velti upp spurningunni, hvort Blindravinnustofan væri verndaður vinnustaður eða almennur. Niðurstaða hans var sú að hún væri blendingur af þrennu: almennum vinnustað, vernduðum vinnustað og starfsþj álfunarstað. Meginhlutverkið að gefa blindum og sjónskertum kost á vinnu við hæfi. Minnti sérstaklega á þann hóp sem óraunhæft væri að ætla að gæti keppt um störf á vinnumarkaði, til þeirra þyrfti sérstaklega að líta. Hugrún Jóhannesdóttir forstöðu- maður Iðjubergs kynnti því næst úrræðið: Atvinna með stuðningi. Hugrún er í nefnd til undirbúnings og skipulagningar þessa og hefur nefndin m.a. staðið fyrir vel heppn- uðu námskeiði. Hugmyndin er frá Bandaríkjunum og hefur nýst mörg- um fleiri en fötluðum. Hlustað grannt á góðar framsöguræður. Menn setja fram óskir sínar og svo er reynt að finna starf. Lykilorðið er nákvæmni og nauðsyn eftirfylgni afar mikil. Liðveitendur eru tengi- liðir milli atvinnurekenda og starfs- fólks. Mið er tekið af hagsmunum fatlaðra, þörfum samfélagsins og þjónustu við atvinnulífið. Auðvelt að tengja þetta kerfi við önnur kerfi s.s. mennta- heilbrigðis- o.s.frv. Besti kosturinn fyrir ákveðinn hóp. Kristján Valdimarsson forstöðu- maður Örva talaði þessu næst um starfsþjálfun og starfsendurhæf- ingu. Grundvallaratriði: Hætta að ræða um fötlun, í staðinn að tala um hæfileika og getu, hætta að tala um verndaða vinnustaði; ekki alhæfa um vinnustaði fatlaðra; þetta eru at- vinnumál en ekki félagsmál. Kristján fór svo yfir hlutverk, stefnu og starfs- hætti Örva. Starfað frá 1984, að jafn- aði eru þar 35-40 fatlaðir einstakl- ingar í starfsprófun, tímabundinni starfsþjálfun eða varanlegri vinnu. Kristján rakti helstu verkefni og fór yfir ferlið frá umsókn til útskriftar. Minnti einnig á atvinnuleit og eftirfylgd. 55 einstaklingar lokið þjálfun og fengið störf á alm. vinnu- markaði, 25 farið á aðra vinnustaði fatlaðra eða í skóla. Sem dæmi hafa 10 útskrifast í ár. Kristján ræddi svo um framtíðina og sagði í lokin: Hvað vinnustaði fatlaðra áhrærir er verk- efnið að bæta þá og starfsskilyrði þeirra. Beita þarf öllum ráðum svo fatlaðir hasli sér völl í enn ríkari mæli á almennum vinnumarkaði. Örvi er vænlegur kostur að því marki. Guðrún Hannesdóttir forstöðu- maður Hringsjár var svo næstsíðust á mælendaskrá. Hringsjá er það vel kynnt hér að óþarfi mun að rekja erindi hennar náið, svo góð kynning sem þarna var þó á ferð. Guðrún fór m.a. yfir náms- markmið og almenn markmið Hringsjár, dagskrá og viðfangsefni, útskrift og árangur. 212 lokið a.m.k. einni önn, 153 þar af lokið öllum þrem önnunum, tæp 70% útskrifaðra í vinnu eða námi. Guðrún minnti einnig á námskeiðin - þrenns konar: grunnnámskeið í tölvu, tölvu- og bókhaldsnámskeið og atvinnuleit- arnámskeið. Rakti samstarfið við ýmsa mikilvæga aðila. Af nem- endum eru 27% geðsjúkir, 16.5% gigtar- og baksjúklingar, 14% spastískir eða með helftarlömun o.s.frv. Af áðurnefndum 212 eru 114 karlar og 98 konur. Síðastur var svo Einar Andrésson skrifstofumaður en erindi hans hér birt. Að loknum framsögum voru frjálsar umræður og tóku nokkrir til máls og lýstu mikilli ánægju með ágæta ráðstefnu. Það var svo Þor- steinn Jóhannsson framkvæmdastjóri Vinnustaða ÖBI sem dró saman í stuttu en skýru máli höfuðatriði í máli manna og lagði um leið nokkuð út af þeim. Ráðstefnunni lauk svo alveg um kl.17 s.s. ráð hafði verið fyrir gjört. Sérstöku lofsorði var lokið á starf Guðríðar Ólafsdóttur að ráðstefnu- undirbúningnum. H.S. FRÉTTABRÉF ÖRYRKJABANDALAGSINS 13

x

Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands
https://timarit.is/publication/1440

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.