Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands - 01.12.1999, Síða 15

Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands - 01.12.1999, Síða 15
Meðan hún gæska var og hét? og hallaði undir flatt. Ljóst hár hans glóði í sólinni og honum sýndust hendur hans moldugar. - A ég að opna fyrir þig? spurði drengurinn. Hann beið ekki eftir svari, heldur tyllti sér á tær, rjálaði eitthvað við læsinguna - og hliðið laukst upp. - Sjáðu, nú er opið! Kanntu kannski ekki að opna? Nei, gamli maður- inn kunni ekki að opna. Og nú var það „æskan sem rétti ellinni hönd” því drengurinn kenndi gamlingjanum að opna hliðið. Þannig urðu þeir vinir. Hann var kallaður Dengsi. Þeir hittust næstum daglega allt sumarið og gamli maðurinn leiddi drenginn við hönd sér - eða kannski var það drengurinn sem leiddi hann. Stundum kom drengurinn með bíl eða bát til að sýna öldungnum, en í staðinn sagði gamli maðurinn drengnum sögur. Þeir gengu oftast út í hraunið. Þar truflaði umferðin þá ekki. Svo var það einn daginn þegar gamli maðurinn kom niður að hliðinu, að Dengsi var ekki mættur. Hann sem alltaf var vanur að vera kominn á undan honum og meira að segja á stundum hlaupið upp stéttina og spurt eilítið óþolinmóður, hvort hann væri ekki að koma. En nú var hann ekki mættur. Gamli maðurinn hallaðist fram á hliðgrind- ina og beið. En Dengsi kom ekki. Þá fór gamli maðurinn að ókyrrast. Skyldi eitthvað hafa komið fyrir drenginn og honum flugu bílarnir i hug. Hann lauk upp hliðinu og tók að hökta niður gangstéttina, nam staðar í öðru hvoru spori og rýndi ráðvilltur á umferðina. Þá var hann ávarpaður af konurödd: - Ert þú að bíða eftir einhverjum? - Nei, ekki er það nú. En þú hefur víst ekki séð hann Dengsa? - Dengsa, hver er það? - Hann er með gullna lokka, í bláum buxum og ... og stundum svörtum. Já, þær voru áreiðanlega svartar. Nei, konan hafði ekki séð Dengsa og spurði hvort hann væri afi hans. - Nei, nei, ekki er nú svo, ekki er nú svo. Við erum vinir, eiginlega fóstbræður. Gamli maðurinn hló. Svo varð hann alvarlegur á ný og spurði konuna, hvort hún vissi nokkuð til að slys hefði orðið á götunni. - Guð minn almáttugur, slys! sagði konan. - Nei, heldurðu það? Nei, hann hafði bara spurt si svona. En svo mátti konan ekki vera að því að tala meira við hann. Hún var í verslunarferð. Gamli maðurinn rölti áfram og reyndi að spyrjast fyrir um Dengsa. En enginn hafði séð hann eða réttara sagt enginn þekkti hann á stuttri og ófullkominni lýsingu gaml- ingjans, enda kast á flestum. Þá fór gamli maðurinn að áfella sjálfan sig fyrir að hafa ekki spurt drenginn, hvar hann ætti heima. Óskapa aulaháttur að inna ekki barnið eftir því. Þá hefði allt verið auðveldara. Svo gafst gamli maðurinn upp á leitinni og rólaði heim á leið og átti raunar fullt í fangi með að rata. Það vantaði Dengsa. Sár tregi settist í gamla brjóstið. Svona gat þetta líf látið á stundum. Þegar hann kom að hliðgrindinni, beið hans þar lítil stúlka. - Ert þú vinur hans Dengsa? spurði hún. Vinur hans Dengsa? Jú, jú, það stemmir. Hvar er hann, blessaður stúf- urinn? Hann er þó ekki lasinn? - Nei, hann bað að skila til þín kveðju. Hann er farinn til útlanda með pabba sínum og mömmu. - Ó, já. Til útlanda, tautaði gamli maður- inn. Honum fannst sólin ekki skína jafn skært og áður og ók sér. - Ó, já. Til út- landa, sagðirðu. - Já, og hann kemur ekki fyrr en í vor. Hann bað mig að segja þér, að hann ætlaði strax að hitta þig þegar hann kæmi. Svo var hún þotin. - Ó, já. Til útlanda, endurtók gaml- inginn í þriðja sinn og rólaði upp að húsinu. Eftir þetta fannst honum komið haust. Hann fór minna út og aldrei lengra en fram að hliðinu. Þóttist ekki kunna á læsinguna og lét sér nægja að staldra litla stund við grind- ina til að tala nokkur orð við vini sína, rimlana. Dagamir styttust smátt og smátt. Loftið varð svalara. Gamli maðurinn hætti að rölta út, fór einungis snöggvast í leppana eftir hádegið. Og er gigtin tók að hrjá hann hætti hann að fylgja fötum og fann innra með sér að þetta yrði langur vetur og reyndi að telja vetrarmánuðina á fingrum sér. Niðurstaðan varð fimm fingur, fimm mánuðir - og einmanakenndin sótti enn fastar að. En svo tók hann sig á. O, jæja, o, jæja. Allt tæki þetta enda. Það myndi vora sem endranær. Fyrst heyrði hann einn og einn dropa detta af upsinni, undur hægt og hljóðlega, jafnvel hikandi og feimnislega, og rétt yfir bjartasta daginn. Brátt myndi drop- unum fjölga. Þeir færðu sig upp á skaftið, dyttu hraðar og hraðar og sífellt lengur fram eftir. Að lokum féllu þeir látlaust allan sólarhringinn, hratt og þungt, fullir lifsmagns sigju þeir í skaut móður jarðar. Þá væri víst meira en óhætt að taka köflótta teppið frá glugganum, svo að FRÉTTABRÉF ÖRYRKJ ABANDALAGSINS 15

x

Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands
https://timarit.is/publication/1440

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.