Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands - 01.12.1999, Side 29
Form handriðs verður að falla vel að gripi handarinnar.
sérmerkt bílastæði fyrir hreyfihaml-
aða.
Framvísa þarf læknisvottorði með
umsókn um P-merki.
Starfsmenn Sjálfsbjargar, lands-
sambands fatlaðra, Hátúni 12, 105
Reykjavík, sími 552-9133, mæla með
eða hafna umsókn. Hægt er að fá
sérstaklega merkt stæði við heimili
eða vinnustað.
Lögreglustjóri gefur út P-merkið.
(Æskilegt er að P-merkið verði
látið gilda um allt land en ekki aðeins
í umdæmi viðkomandi lögreglustjóra
sem undirritar það.)
Ur bókinni Aðgengi fyrir alla:
Bls. 137 Bílastæði 3,5: Sjá mynd.
Forvarnir
fréttum og blaðagreinum undan-
farið hefur verið mikið fjallað um
beinþynningu. Fram hefur komið að
önnur hver kona sem komin er yfir
fimmtugt er í mikilli hættu vegna
beinbrots af hennar völdum. Karlar
eru einnig í hættu vegna beinþynn-
ingar þótt í minna mæli sé. Fyrir
nokkrum árum hlaut áttræð kona
mjaðmargrindarbrot við það að detta
í tveimur tröppum, sem hún hafði
hlaupið upp og niður um þrjátíu ára
skeið. Brotið kostaði heilbrigðis-
kerfið 1.500.000,- kr. og eru þá þján-
ingar konunnar ekki verðlagðar. Eftir
slysið var farið að skoða tröppurnar
og huga að forvörnum. Sett var upp
handfang sem kostaði 4.250,- kr.,
sem hefði getað komið í veg fyrir
umrætt slys.
Eg skora á almenning að gera nú
átak í forvörnum og setja upp handrið
eða handföng þar sem það á við.
Talað er um að brot vegna beinþynn-
ingar verði mikið heilbrigðisvanda-
mál á næstu öld.
Ur bókinni Aðgengi fyrir alla
Bls. 121 Tröppur og skábrautir 3.3
Sjá mynd hér að ofan.
Vigfús Gunnarsson
Glímir
barnið við...
Hingað barst á haustdögum
glöggur og greinargóður
fræðslubæklingur frá Foreldrafélagi
misþroska barna.
Fyrirsögnin er: Glímir barnið
við...
athyglisbrest og einbeitingarörðug-
leika, ofvirkni, hvatvísi, eirðarleysi,
vanvirkni, skyntruflanir, hreyfiörðug-
leika, málþroskatruflanir, námsörðug-
leika, hegðunartruflanir?
Sagt er að misþroski sé ekki grein-
ingarviðmið heldur samheiti yfir
ýmis þroskavandamál sem geta til
dæmis birst sem ofantalin vandamál.
Hvað er misþroski er spurt og
meðal svara er að um dulda fötlun sé
að ræða. Tíðni er sögð nálægt 5%um
barna með þessi vandamál og þar af
Glímir barnið
við...
* athyglisbrest og
einbeitingarörðugleika
* ofvirkni
* hvatvísi
* éirðarleysi \
* vanvirkni
* skyntruflanir
* hreyfiörðugleika
* málþroskatruflanir
* námsörðugleika
’* hegðunartruflanir?
Foreldrafélag misþroska
barna 1999
Forsíðan.
1% með alvarleg. Hvað veldur mis-
þroska er svo spurt: truflanir og/eða
vanþroski í miðtaugakerfi, stundum
rakið til alvarlegra sjúkdóma eða
skaðlegra áhrifa við meðgöngu. Því
er ekki um að kenna uppeldi barna
eða starfsáætlunum i skólum eða
leikskólum. Síðan er svarað spum-
ingunni um hvernig vandi misþroska
barna lýsir sér í einbeitingarörðug-
leikum, hreyfiörðugleikum og í
svefntruflunum.
Fjallað er um fullorðinsárin og
síðan er á glöggan hátt leitast við að
svara spurningunni: Hvað er til ráða?
og svo: Hvert er hægt að leita?
í lokin er svo fjallað um Foreldra-
félag misþroska barna.
Um fræðsluefnið sáu: Matthías
Kristiansen, Málfríður Lorange og
Olga Björg Jónsdóttir.
Skrifstofa félagsins er opin virka
daga frá kl. 14-16 að Laugavegi 178.
Félaginu er sannur sómi að þessu
frjóa fræðsluefni.
H.S.
FRÉTTABRÉF ÖRYRKJABANDALAGSINS
29