Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands - 01.12.1999, Síða 31
Sindri Einarsson:
KLÚBBURINN GEYSIR
ER KOMINN TIL AÐ VERA
r
Eg heiti Sindri Einarsson. Eg
er geðfatlaður, ég er með
athyglisbrest með ofvirkni
ásamt þunglyndi. Reynsla mín af
vinnumarkaði með geðfotlun er sú að
ég hef oft dottið
út úr vinnu vegna
samskipta við
vinnuveitendur
og vegna þess að
vinnan sem ég
hef unnið hefur
reynst mér of
erfið.
Vinnusaga mín
er mjög skraut-
leg. Ég hef unnið flest þau störf sem
hinn almenni vinnumarkaður býður
upp á. Ég hef starfað sem verka-
maður, löggæslumaður, hópferðabíl-
stjóri o.fl. í raun hef ég unnið á það
mörgum mismunandi stöðum að ég
gæti verið í allan dag að telja upp þá
staði sem ég hef unnið á í gegnum
ævina.
Með því að starfa í klúbbnum
Geysi sé ég möguleika á að endast
betur í vinnu með stuðningi fagaðila
og með því að atvinnurekendur séu
meðvitaðir um fotlun mína og geti
þannig sýnt mér stuðning og skilið ef
heilsu minni hrakar.
Það að vera með geðfötlun er
ekkert til að skammast sín fyrir, það
er þrotlaus, endalaus barátta við sjálf-
an sig allan sólarhringinn með mik-
illi lyfjagjöf og snertir alla aðstand-
endur, jafnt vini sem nánustu fjöl-
skyldu.
I raun má með sanni segja að ég
geti með stolti sagt: Ég er geðfatl-
aður í stöðugri baráttu við sjálfan mig
og mitt nánasta umhverfi.
Með því að vera virkur í Geysi létt-
ir það baráttuna við umhverfið þar
sem ég fæ stuðning í því sem ég tek
mér fyrir hendur og nýti hæfileika
mína.
Geysir er þannig tæki geðfatlaðra
til að ná markmiðum sínum í
lífinu ásamt því að vera góður
félagsskapur þar sem einstakl-
ingurinn fær notið sín án tillits til
sjúkdóms, þjóðfélagsstöðu og mennt-
unar.
I Geysi eru allir jafnir, enginn yfir
aðra hafinn.
Öll dýrin í skóginum eru vinir.
I þær vikur sem ég hef starfað í
Geysi hef ég fundið fyrir miklum
stuðningi. Ég hef fengið tækifæri til
að rækta hæfileika mína, tækifæri til
að kynnast nýju fólki og síðast en
ekki síst tækifæri til að vera ég sjálf-
ur, ég hef fengið að njóta mín.
Ut á það gengur Geysir að allir geti
fengið að rækta hæfileika sína og
verða virkir á vinnumarkaði.
Við erum ekki í felum. Við erum
stolt af því að vera í Geysi.
I Geysi í Haukadal býr mikill
kraftur, kraftur sem kemur úr iðrum
jarðar. í klúbbnum Geysi býr kraftur
einstaklinga, kraftur sem gýs úr sálar-
lífi einstaklinga. í sálarlífinu er upp-
spretta hugmynda, hugmynda sem
gerir lífið þess virði að lifa því.
Krafturinn ólíkt Geysi í Haukadal er
þannig ekki bundinn við staðsetn-
ingu, krafturinn er uppspretta alls
þess sem gerir okkur mannleg. Nátt-
úruperlur á við Gullfoss og Þingvelli
hafa skapað íslandi þá frægð sem
landið hefur í dag. ísland er óumdeil-
anlega náttúruperla. Tvennt skiptir
máli í farsæld þjóðar, náttúruperlur
og manngildi.
Mig langar að vitna í orð
Baldvins Einarssonar lögfræð-
ings, með leyfi fundarstjóra: “Það
eru ekki landkostir og blíðviðri og
gull og silfur og eðalsteinar sem gerir
þjóðirnar farsælar og voldugar og
ríkar. Heldur það hugarfar eða sá
andi sem býr í þjóðinni.” Það er það
hugarfar og sá andi sem býr í þjóð-
inni sem við búum við í dag.
Klúbburinn Geysir hefur það
hlutverk að efla og bæta mannlif,
skipa manngildinu þann sess sem því
ber að hafa.
Agætu ráðstefnugestir: Klúbburinn
Geysir er kominn til að vera.
Sindri Einarsson.
Erindi flutt á atvinnumálaráð-
stefnu Öryrkjabandalagsins.
Um höfundinn:
Sindri varð stúdent frá Fjölbraut við
Ármúla haustið '95. Nám við laga-
deild H.í. haustið '98. Hópferðabíl-
stjóraréttindi vorið '92.
Sindri er félagi í JC Island og hefur
þar unnið ýmis verðlaun m.a. silfur í
úrslitakeppni mælsku- og rökræðu-
keppni JCI. Besti nýliðinn á lands-
þingi '94. Var í nemendaráði í Fjöl-
braut við Ármúla árið 1995. Hefur
unnið ýmis störf, m.a. tollvörður,
fangavörður, hópferðabílstjóri,
mjólkurbílstjóri o.fl.
Úrskurðarnefnd almannatrygginga
Eins og áður hefur verið glögglega greint frá var úrskurðarnefnd almanna-
trygginga lögfest á liðnu vori og tók hún svo til starfa 1. júlí sl.
Úrskurðarnefndina skipa: Friðjón Örn Friðjónsson hrl. formaður, Guðmundur
Sigurðsson læknir varaformaður og Þórunn Guðmundsdóttir hrl.
Starfsmenn nefndarinnar eru þær Steinunn Margrét Lárusdóttir fram-
kvæmdastjóri, Birna Sigurbjörnsdóttir lögfræðingur og Theódóra Hilmarsdóttir
ritari.
Úrskurðarnefndin er til húsa að Laugavegi 103 Reykjavík og síminn er 551-
8200, en símatími milli 10 og 12 alla virka daga.
Sérstök eyðublöð liggja frammi á skrifstofunni sem ætluð eru fyrir kvartanir
yfir úrskurðum Tryggingastofnunar ríkisins. Nefndinni er alls góðs árnað í
vandasömum verkefnum sem og starfsfólki öllu. H.S.
Síndri
Einarsson
FRÉTTABRÉF ÖRYRKJABANDALAGSINS
31