Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands - 01.12.1999, Qupperneq 39
er gefin af sjúkrahússtarfsemi er
einsleit því umfjöllunin er aðallega
um tækniframfarir og svo eru sýndar
þáttaraðir í sjónvarpi um bráðamót-
tökudeildir. Endurhæfinguna bráð-
vantar meiri umíjöllun. Það þætti
ekki gott ef aðeins væru sýndir fyrri
hálfleikir handbolta- eða fótbolta-
leikja. Síðari hálfleikur væri svo
afgreiddur með því að gefa upp
markatölu og hvaða lið hefði unnið. í
huga þeirra sem stunda endurhæfin-
gu og þeirra sem þurfa á henni að
halda er fyrri hálfleikur lífsnauðsyn-
legur því hann Qallar um þau læknis-
fræðilegu inngrip sem nauðsynleg
eru. Seinni hálfleikur er þó ekki síður
mikilvægur eins og í íþróttum, því
hann fjallar um endanlega niður-
stöðu. Hjá þeim sem er í endurhæf-
ingu fjallar hann um það hvernig
viðkomandi höndlar lífið og hvernig
umhverfið tekur á móti honum.
Hlutverk liðsþjálfara er heldur ekki
ósvipað þjálfara í endurhæfingu. Þar
skiptir máli hæfni hans, áhugi og mem-
aður. Seinni hálfleikur í endurhæfingu
felst því í að sjá, finna og nýta styrk-
leika viðkomandi til að takast á við
hindranir sem á vegi hans verða.
Virkni og þátttaka þess sem end-
urhæfinguna stundar, eru “skoruðu
mörkin” og sigurinn felst í að taka
þátt í ákvörðunum um eigið líf og
verða hinn eiginlegi sérfræðingur.
r
Iendurhæfingu á geðsviði er ekki
eins sýnilegt hvað verið er að
vinna með eins og þegar unnið er
með líkamann, þótt markmiðin séu
þau sömu. f endurhæfingu geðsjúkra
er verið að fást við þætti eins og hátt-
erni, lausn viðfangsefna, yfirfærslu í
verki, að skipuleggja og framkvæma
athafnir samhliða því að tekið sé mið
af kröfum umhverfisins, samskipta-
þáttum og streitustjórn. í þessari
vinnu eru ekki notuð nein tæki eða
tól sem hjálpartæki, heldur felst
auðurinn í kunnáttu sérhæfðs, vel-
menntaðs starfsfólks. Til að halda
áfram samlíkingunni við þjálfara
íþróttaliðs og þjálfara í endurhæf-
ingu, þá er það nokkuð klárt að
árangur íslenska landsliðsins yrði
varla jafngóður ef Baltasar Kormákur
sæi um þjálfunina í stað Guðjóns
Þórðarsonar, þótt báðir séu topp-
menn - bara á mismunadi sviðum.
Elín Ebba Ásmundsdóttir, forstni.
geðd. iðjuþj.
Hrafn Sæmundsson fulltrúi:
r-ri . . 1 • x
Tvo Ijoo
Haustið
Þegar farfuglarnir flugu upp ómaði vængjablak
eins og hljómkviða úr bláum himninum.
Og lítill fugl með brúna vængi og ljósa bringu
sat eftir og vissi að vorið kemur í fuglshjartað
en gul sólin bíður í suðrinu.
Og fuglinn stakk höfðinu undir vænginn í
ljósaskiptunum því á morgum ætlaði
hann að fljúga inn í garðinn og
syngja kveðjusönginn.
Jólanóttin
Þetta undarlega blóm lifnar í
vetrarmyrkrinu og skartar
mjúkum litum og ilmar á
hjarninu og drúpir
höfði í auðmýkt.
Þetta undarlega blóm býður
vegfaranda svaladrykk
úr gullnum bikar á helgri nóttu.
Og í vetrarmyrkrinu heyrist veikur ómur þeirrar klukku
sem leikur stef mannssonarins um frið á jörðu
þá örskotsstund sem okkur er gefin.
Hrafn Sæmundsson.
NÝ LAUSN Á GÖMLUM
VANDA - ENDAÞARMSTAPPI
Hægðaleki er vandamál sem margir eiga við að stríða. Kominn er á
markaðinn endaþarmstappi frá fyrirtækinu Coleplast í Danmörku sem
getur hjálpað mörgum. Þessi tappi er úr mjúku kvoðukenndu efni
(polyurethan), utanum hann er vatnsleysanleg himna, og mjúkt bómullar-
band er steypt neðst í tappann. Kvoðuefnið er smá götótt efni sem hleypir
lofti í gegnum sig. Fyrir notkun lítur tappinn út svipað og endaþarmsstíll,
og er settur í endaþarminn eins og gert er með endaþarmsstíla. Á 30
sekúndum leysist himnan upp og tappinn blómstrar út og verður eins og
lítill mjúkur túlípani og helst mjúkur meðan á notkun stendur, tappinn fel-
lur að innanverðum endaþarminum og kemur þannig í veg fyrir að hægðir
leki út.
Frekari upplýsingar má fá hjá hjúkrunarfræðingum á eftirtöldum
stöðum: Össuri, Lyfju og Ó.Johnson & Kaaber.
Tryggingastofnun hefur samþykkt tappann sem hjálpartæki og tekur
þátt í kostnaði á þeim forsendum til 6 mánaða, til reynslu. Sjá nánar um
samþykktina á heimasíðu Tryggingastofnunar rikisins www.tr.is ( undir
leitarheitum hjálpartækjamiðstöðin og bleiur).
FRÉTTABRÉF ÖRYRKJABANDALAGSINS
39