Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands - 01.12.1999, Page 46
SKÝRSLA HÚSSJÓÐS
ÖRYRKJABANDAL AGSIN S 1999
r
Aliðnu starfsári hefur Hús-
sjóður sinnt hefðbundnum
verkefnum sínum er varða
rekstur og útleigu 540 íbúða í hans
eigu. Rekstrarafkoma ársins 1998
var viðunandi, en
tekjuafgangur ársins
var 71,6 milljónir
króna. Umfangs-
miklar endurbætur
hafa farið fram á
stærstu eign sjóðs-
ins, húsunum að
Hátúni í Reykjavik
og hafa þær gengið að óskum. Til
tíðinda á starfsárinu má telja eftir-
farandi:
í samræmi við samþykktir síðasta
aðalfundar ÖBÍ hefur stjórn Hússjóðs
ákveðið að bjóða hópi leigjenda að
kaupa þær íbúðir sem þeir nú leigja,
með því að nýta sér hið nýja félags -
lega eignaríbúðakerfi. Um er að
ræða leigjendur utan fjölbýlishúsa
Hússjóðs, sem staðið hafa í góðum
skilum með greiðslu húsaleigu yfir
lengri tíma. Fyrsti hópurinn telur 25
einstaklinga og ijölskyldur, en reynist
það vel kann hópurinn að stækka.
Hagstætt virðist fyrir barnlaust sam-
búðarfólk að taka þennan kost, en
fyrir aðra hópa virðist leiga um-
talsvert hagstæðari. Forsenda þess að
gera tilboð þetta var að samningar
næðust við íbúðalánasjóð um að selji
Hússjóður eign með áhvílandi láni
sem ber 1% vexti sé honum heimilt
að flytja það hagstæða lán á aðra eign
sína. Tókust um það samningar í
sumar.
20. mars s.l. var fyrsta skóflu-
stungan tekin að Sléttuvegi 9 í
Reykjavík. Þar mun rísa 4 hæða hús
með 30 íbúðum af mismunandi
stærðum, þar af 3 í raðhúsum, auk
bifreiðageymslu. Verkið var boðið út
og voru AHA verktakar með lægsta
tilboðið kr. 314 milljónir. Verklok
eru áætluð í nóvember árið 2000.
.Akveðið var að brydda upp á
þeirri nýjung að gefa öryrkjum kost á
því að kaupa raðhúsin, sem byggð
verða á Sléttuvegi, þó með kvöð um
forkaupsrétt Hússjóðs á húsunum,
þannig að tryggt verði að þau til
Helgi
Hjörvar
frambúðar nýtist öryrkjum.
Húsaleiga hefur fram að þessu
tekið mið af byggingarvísitölu, sem
hækkaði talsvert umfram almennt
verðlag um nokkurra missera skeið.
S.l. vor var með hliðsjón af nýjum
lögum ákveðið að miða leigu fram-
vegis við framfærsluvísitölu.
Samstarf Hússjóðs við sveitarfélög
og Svæðisskrifstofur hefur verið til
endurskoðunar á árinu að gefnu
tilefni. Nauðsynlegt er að gera skýra
og afdráttarlausa samninga um verka-
og ábyrgðarskiptingu milli Hússjóðs
og þessara aðila. Þá er unnið að til-
lögum um skipulagt eftirlit og við-
hald á öllum eignum Hússjóðs, en
umfang þeirra er orðið það mikið að
nauðsyn er á kerfisbundnu starfi.
í ljósi þeirra miklu biðlista sem eru
eftir húsnæðisúrræðum á suðvestur-
horninu hefur stjórn Hússjóðs tekið
upp viðræður við ríkisvaldið um að
Hússjóður taki að sér nauðsynlegar
framkvæmdir en leigi ríkinu húsnæði
til lengri tíma. Þannig mætti auð-
velda ríkisvaldinu að bæta þjónustu
við fatlaða, með því að dreifa Ijár-
festingu þeirra á lengri tíma, eða 25-
30 ár.
Helgi Hjörvar formaður
Efni handbókarinnar:
Aðgengi fyrir alla
Rétt þykir hér að tíunda efniskafla handbókarinnar: Aðgengi fyrir alla
þó þar verði um kaflafyrirsagnir einar að ræða. Hins vegar er þar að
finna hinn ágætasta vegvísi að bókinni, þar sem allir undirliðir eru neihdir
einnig.
Fyrsti kafli hefur að geyma inngang, bókaryfirlit svo og lög og
reglugerðir. Annar kaflinn íjallar um mismunandi þarfir og fyrst eru það
sérþarfir sem skiptast í undirkaflana: að hanna fyrir fólk, hreyfihömlun,
sjónskerðing, heyrnarskerðing, þroskaskerðing, astmi og ofnæmi, öldrun
og geðröskun. Við bætast svo undirkaflar: standandi, sitjandi og ferli. I
þriðja kafla er fjallað um skipulag og umferð: skipulag, gangbrautir og
stígar, tröppur og skábrautir, leiksvæði og bílastæði. Fjórði kaflinn, bygg-
ingarhlutar skiptist í: dyr og hurðir, gluggar, svalir, lýsing og rafbúnaður,
loftræsting og loftgæði, skápar og innréttingar og tæknibúnaður.
Þá er að fimmta kafla komið sem fjallar um íbúðarhús: lífstíðaríbúðir,
bílskúrar og bílgeymslur, anddyri og inngangur, gangar, stigar og lyftur,
rýmri tengsl innan íbúðar, eldhús, baðherbergi og snyrtingar, svefnher-
bergi, stofur, þvottahús og geymslur.
Sjötti kaflinn er um almenningsbyggingar; a) almenningsrými: aðkoma
og bílastæði, dyrapallur og inngangur, anddyri og inngangur, afgreiðslur
- móttöku- og upplýsingaborð, gangar, stigar og lyftur, baðherbergi og
snyrtingar, búningsherbergi og baðklefar, vinnusvæði, almenningssímar,
hraðbankar og sjálfsalar; b) almenningsbyggingar: heilbrigðisþjón-
ustubyggingar, skólar og dagvistarstofnanir, samkomuhús, íþróttabygg-
ingar, verslunarhúsnæði, skrifstofuhúsnæði, gistihús, hótel og heimavistir
og bílageymsluhús.
Þá er sjöundi kafli um styrktaraðila og sá áttundi er um heimildir.
Þessi þurra upptalning er þó nauðsynleg til að gefa mynd af því hve
yfirgripsmikil bókin er en sjón er sögu ríkari.
H.S.
46