Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands - 01.12.1999, Page 53
AF STJÓRNARVETTVANGI
Fundur var haldinn í stjórn
Öryrkjabandalags íslands 30.
sept. sl. og hófst kl. 16.45 í
fundarsal að Hátúni 10. Mættir voru
fulltrúar 23ja félaga. Formaður,
Haukur Þórðarson, setti fund og
stjórnaði honum. Bar fundargjörð
síðasta stjórnarfundar upp og var hún
samþykkt athugasemdalaust.
1. Yfirlit formanns
Haukur greindi frá kynningu
Tryggingastofnunar ríkisins við full-
trúa ÖBÍ um nýtt ferli við gerð
örorkumats. Skýrði það nánar, kvað
meira öryggi í því fólgið og ætti að
leiða til markvissari vinnubragða.
Aður hefur verið frá þessu greint í
Fréttabréfinu.
Ræddi því næst um Hringsjá -
starfsþjálfun fatlaðra. Nýjar starfs-
reglur fyrir Hringsjá staðfestar af
framkvæmdastjórn þann sama dag.
Byggt er á þjónustusamningum við
félagsmálaráðuneyti og Trygginga-
stofnun ríkisins en rekstrarleg ábyrgð
Hringsjár er Öryrkjabandalagsins.
Minnti á að færri kæmust að en
vildu. Haukur gat einnig um flutning
Tölvumiðstöðvar fatlaðra yfir í
Hátún 10 b, á 9.hæð.
Haukur gat um samþykkt borg-
arstjóra um frían aðgang að Fjöl-
skyldu- og húsdýragarði fyrir
öryrkja. Sömuleiðis væri vel á vegi
lækkuð gjaldskylda öryrkja fyrir
vegabréf til samræmis við ellilíf-
eyrisþega.
Haukur ræddi mál Vinnustaða ÖBI
en rekstur þeirra gengið einkar vel á
árinu og staða þeirra lagast mjög
verulega.
2. Aðalfundur og ráðstefna
Helgi Seljan kynnti helstu atriðin á
væntanlegri atvinnumálaráðstefnu
svo og ræddi hann dagskrá aðalfund-
ar. Afbrigða þurfti að leita vegna
fundartímans 6. nóv. þar sem lög
segja til um aðalfund í október og
voru afbrigðin samþykkt af öllurn.
Arnór Pétursson minnti á brýna
nauðsyn þess að halda ráðstefnu um
húsnæðismál þar sem nú ríkti neyð-
arástand á húsnæðismarkaði.
Gísli Helgason vildi að á at-
vinnumálaráðstefnu væri framsaga
um það hversu mönnum liði við að
fatlast og vera þannig slegnir út gagn-
vart fyrri störfum. Minnt á að endur-
hæfing ásamt menntun skiluðu mestu
í þá veru að fólk næði út á nýjan leik.
Samþykkt var að frá og með næsta
framkvæmdastjórnarfundi skyldu
fundargerðir framkvæmdastjórnar
sendar stjórnarmönnum.
Haukur greindi frá því að fram-
kvæmdastjórn myndi um miðjan
október skipa uppstillinganefnd fyrir
framkvæmdastjórnarkjör á aðalfundi.
3. Frumvarp um félagsþjónustu
Helgi sem sæti á í laganefnd fé-
lagsmálaráðuneytis greindi frá stöðu
mála, nefndarskipan og nefnd-
arstarfi. Kvað íjármögnunarþáttinn
að mestu óunninn enn á sama tíma og
laganefnd væri að verða tilbúin með
fullbúið frumvarp. Erfitt væri að
meta mál heildstætt út frá þessari
óvissu. Helgi skýrði hlutverk laga-
nefndar: að semja ný lög um félags-
þjónustu og fella lög um málefni fatl-
aðra þar inn í, lög sem mundu falla úr
gildi við gildistöku nýrra félags-
þjónustulaga. Helgi rakti svo i stuttu
máli markmið frumvarpsins, þjón-
ustuþætti, grundvallarreglur við fram-
kværnd, húsnæðisákvæði, ákvæði um
ferða-þjónustu, tómstundastarf o.fl.
Helgi rakti einnig fyrirvara sína við
afgreiðslu frumvarpsins; áskilur
bandalagi og félögum allan rétt til
athugasemda og breytingartillagna á
vinnslustigi frumvarps á Alþingi svo
og fyrirvara um náms- og tækja-
styrki, aðgengismál, atvinnumál,
Hringsjá o.fl. m.a. ljármögnunarþátt-
inn. Nokkrar umræður urðu en reikn-
að með nánari kynningu á aðalfundi.
4. Önnur mál
a) Þórir Þorvarðarson stjórnar-
maður ÖBÍ hjá íslenskri getspá
greindi frá stöðunni þar, fram-
kvæmdastjóraskiptum og ýmsu sem
unnið er að um þessar mundir.
Samdráttur í laugardagslottóinu,
áþekkt í víkingalottói, jókerinn skilað
ríflega því sem vænst var.
b) Elísabet Á. Möller vitnaði til
staðreynda í skýrslu Vinnustaða ÖBI
þar sem hún er í stjórn, að Vinnu-
staðirnir skila mun meiru til ríkisins í
einu og öðru formi en nemur styrk
ríkisins skv. þjónustusamningi.
Sömuleiðis vakti hún skv. sömu
skýrslu athygli á því að þrátt fyrir
greiðslu Vinnustaðanna til Atvinnu-
leysistryggingasjóðs nytu fatlaðir
starfsmenn einskis úr sjóðnum.
c) Garðar Sverrisson minnti á
skýrslu Ríkisendurskoðunar um
úttekt á lífeyristryggingadeild TR
sem hann kvaðst senda stjórnar-
mönnurn. Dreifði töflu úr skýrslunni
sem sýndi skörun vinnutekna og
bótagreiðslna glögglega. Arnór Pét-
ursson bar fram tillögu um að fela
framkvæmdastjórn að leita samstarfs
við Biskupsstofu um úttekt á aðgengi
í kirkjum landsins. Að þeirri úttekt
lokinni skal markvisst unnið að því
að gera kirkjurnar aðgengilegar fotl-
uðum. Samþykkt samhljóða. For-
maður sleit fundi laust fyrir kl. 19.
H.S.
Nýkjörin framkvæmdastjórn ÖBÍ.
fréttabréf ÖRYRKJABANDALAGSINS
53