Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands - 01.03.2000, Side 20

Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands - 01.03.2000, Side 20
GEÐVERNDARFELAG ÍSLANDS FIMMTUGT Hinn 17. janúar sl. hélt Geðvernd- arfélagið upp á fimmtíu ára afmæli sitt með hátíðlegri athöfn í Álfalandi 15 þar sem er hið myndarlega áfanga- heimili félagsins. Varþar margt góðra gesta. Formaður félagsins, Tómas Zoéga flutti há- tíðarræðu og stýrði sam- komunni. Tómas vitnaði til far- sællar sögu félagsins þessi fimmtíu ár, en frá henni greint annars staðar hér í blaðinu. Flann minnti á samstarfið við SÍBS á Reykjalundi sem hefði svo mörgum rýmum þar skilað, einnig samstarfsins við Kiwanis-hreyfinguna - K-lykilinn þeirra sem þjóðin hefur keypt undir kjörorðinu: Gleymum ekki geð- sjúkum. Átök góð gjörð í kjölfarið: Bergiðjan, Álfalandið og íbúðir m.a. Tómas kvað margt hafa áunnist en enn væri átaka þörf svo víða. Ekki síst þyrfti að huga að börnum og unglingum svo og fullorðnum ein- staklingum með mjög erfiða geðsjúk- dóma. Minnti á nauðsyn samstarfs kerfa þeirra er að koma: mennta- mála-, félags- og heilbrigðismála. Tómas fagnaði mjög aukinni um- ræðu um geðsjúka og kvað Morgun- blaðið hafa sinnt málum mjög vel. Þá fagnaði hann einnig framtaki land- læknis með að vekja sérstaka athygli á þunglyndi nú í svartasta skamm- deginu. Bauð því næst heilbrigðis- og tryggingaráðherra, Ingibjörgu Pálmadóttur sérstaklega velkomna. Ráðherra samfagnaði félaginu með áfangann og árangurinn. Enn mætti betur gjöra og vel skildi hún hvassa baráttu þeirra sem bera málefnin sér- staklega fyrir brjósti og vita um leið hvar eldurinn heitast brennur. Þakkaði félaginu starfið f.h. heil- brigðisþjónustunnar m.a. í því að rjúfa einangrun geðsjúkra og víkja fordómum úr vegi. Afhenti síðan for- manni gjafabréf. Undirritaður flutti kveðju Öryrkjabandalags íslands í bundnu máli. Hannes Pétursson geðlæknir tók næstur til máls og skýrði frá styrk- veitingum úr Sjóði Ólaflu Jónsdóttur en fyrst veitt úr sjóðnum 1996. Styrkþegar nú voru Sigurður Örn Hektorsson og félagar vegna rann- sóknar á geðdeyfðarlyfjanotkun sjúklinga og Ólafur Guðmundsson og Kristinn Tómasson til úrvinnslu á rannsókn um heilsutengd lífsgæði foreldra geðsjúkra barna. Tómas Zoéga skýrði frá heiðursfé- lagakjöri en heiðursfélagar voru þeir Tómas Helgason og Halldór Hansen og fór Tómas nokkrum orðum um Hlerað í hornum Tveir litlir strákar voru að ræða sín á milli um það hvers vegna fiskar gætu ekki talað. Sá eldri fann fullgilda skýringu. “Þeir geta náttúrulega ekki talað með munninn fullan af vatni.” Sá fimm ára var afar óþægur og orðljótur bæði heima og á leik- skólanum og foreldramir vissu engin þeirra dýrmætu og miklu störf fyrir félagið sem og geðverndarmál í landinu. Tómas Helgason þakkaði fyrir hönd þeirra heiðursfélaganna. Hann minnti á hve marg- ir hefðu lagt hönd á plóg í gegnum tíðina. Hann minntist fyrstu stjórnarmanna: Helga Tómassonar, Guðríðar Jónsdóttur, séra Jakobs Jónssonar og Arnfinns Jónssonar. Hann minnti á það að erindi hjá Geðverndarfé- laginu hefðu ævinlega fengið inni í Lesbók Morgunblaðsins. Takmark félagsins að tryggja geðsjúkum jafnrétti á við aðra í samfélaginu. Hann nefndi til sögu tvo menn sem unnið hefðu vel hvor á sínu sviði: Magnús Kjartans- son ráðherra sem hrint hefði í fram- kvæmd byggingu geðdeildar Land- spítalans og Jón Sigurðsson borgar- lækni sem tryggt hefði geðdeild við Borgarspítalann öðrum fremur. Hvatti fólk til farsælla dáða i fram- tíðinni. Menn þágu hina ljúffengustu veitingar í boði Geðvemdarfélagsins og fór athöfn þessi einkar vel fram. Öryrkjabandalag íslands árnar þessu aðildarfélagi sínu allra heilla í baráttu sinni fyrir bættum hag geð- sjúkra, enn fleiri áfangasigrum á sóknarleið. ráð til að hafa hemil á dreng. Þau báðu því afann sem drengnum þótti afar vænt um að tala nú um fyrir dreng. Afinn tók þetta að sér og spurði hann að því hvort hann væri óþægur og orðljótur í leikskólanum. “Hver segir það?”, spurði strákurinn kotroskinn. “Það var lítill fugl sem hvíslaði þessu að mér”. Þá sagði strákur sem var vanur að gefa smá- fúglunum. “Lítill fugl, og svo er maður að gefa þessum andskotum.” H.S. 20

x

Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands
https://timarit.is/publication/1440

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.