Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands - 01.03.2000, Blaðsíða 44
Matthías Kristiansen form. F.m.b.:
Starf Foreldrafélags
misþroska barna árið 1999
Margt dreif á daga Foreldra-
félags misþroska barna á
árinu 1999. Aldrei verður
þó unnt að geta um alla þætti starfsins
þótt auðvitað sé það besta leiðin til að
sýna fram á mikilvægi þess.
Fyrsta fréttabréf 12. árgangs kom
út í byrjun febrúar og í framhaldi af
því var haldinn
fræðslufundur
með Árna Stef-
ánssyni hjá
Reykjavíkurborg,
en hann íjallaði
um tómstundir
fatlaðra bara með
sérstöku tilliti til
athyglisbrests
með ofvirkni /
misþroska. Árni
sagði frá bæði langtímaáætlunum og
áformum til skemmri tíma og ljóst er
að framboðið fyrir okkar hóp er
hvergi nærri orðið jafngott og fyrir
ýmsa aðra. í máli Árna kom þó fram
að mikill áhugi er bæði hjá honum og
ýmsum öðrum innan borgarkerfisins
fyrir úrbótum vegna þessa hóps.
Með útgáfu þessa fyrsta fréttabréfs
ársins af þremur alls voru reynd tvenn
nýmæli. Annað var að bjóða upp á
símaviðtalstíma sálfræðings eða fé-
lagsráðgjafa í tvo tíma vikulega fram
í apríllok. 1 ljós kom
að nokkrir hringdu
fyrstu vikurnar en svo
dró mjög úr notkun á
þessari þjónustu þrátt
fyrir auglýsingar í út-
varpi og fréttatil-
kynningar í blöðum.
Því var ákveðið að
breyta fyrirkomu-
laginu í haust og bjóða
þessa símaviðtalstíma
í næstu fjórar vikur á
eftir útkomu hvers
fréttabréfs. Þjónustan
var svo miklu betur
nýtt í nóvember og
hún var einnig töluvert
nýtt í febrúar og byrj-
un mars. Þar munu ýmis flókin mál
hafa komið upp á borðið en sér-
fræðingarnir gæta að sjálfsögðu
þagnarskyldu sinnar nú sem
endranær.
Hitt nýmælið var að hafa upplýs-
inga- og fræðsluþjónustuna opna
annan hvern laugardag í febrúar og
mars. Áhuginn á þessari tilraun var
hins vegar enginn og því var ákveðið
að reyna þetta ekki aftur að sinni.
Fréttabréfin eru send út til rúmlega
1.100 manns, foreldra, grunnskóla,
leikskóla og fagfólks í Ijölmörgum
greinum sem snerta börn okkar.
r
Imars var haldið vornámskeið í
Gerðubergi fyrir foreldra í sam-
starfi við Eirð, hóp sérfræðinga við
BUGL og víðar. 56 manns mættu og
þar af var þriðjungurinn feður sem er
mikil breyting frá því á fyrstu nám-
skeiðunum. Haustnámskeiðið var
haldið í safnaðarheimili Háteigs-
kirkju. Á námskeiðum er mökum
veittur 50% afsláttur og kostnaður er
niðurgreiddur fyrir félaga þannig að
árgjald fyrsta ársins er dregið frá
námskeiðsgjaldi.
Annað tölublað fréttabréfsins á
árinu kom út í maí og var þar kynnt til
sögunnar Steingerður Sigurbjörns-
dóttir barnalæknir sem fjallaði um of-
virkni, greiningu og lyíjameðferð.
Vakti fyrirlesturinn íjölmargar fyrir-
spurnir og athugasemdir og var
gerður góður rómur að máli hennar.
I september kom út nýr fjórbrotinn
þríblöðungur um athyglisbrest með
ofvirkni / misþroska í 5.000 ein-
tökum. Að gerð hans komu Málfríður
Lorange sálfræðingur, Olga Björg
Jónsdóttir félagsráðgjafi og Matthías
Kristiansen. Bæklingurinn var sendur
með skipulegum hætti til fagfólks og
stofnana um land allt. Hefur hann
vakið mikla athygli og fært okkur
nýja félaga og vonandi aukið skilning
í samfélaginu. Mjög er farið að ganga
á upplagið og ný prentun er því
væntanlega í sjónmáli í ár.
Þriðja tölublað fréttabréfsins kom
út í lok október og var þar auk
Eirðar-námskeiðsins kynntur fyrir-
lestur með Guðríði Öddu Ragnars-
dóttur, kennara og atferlisfræðingi,
sem starfaði hjá Skólaþjónustu Ey-
þings en er nú farin að starfa í
Reykjavík. Hún kynnti möppu sína:
Gríptu til góðra ráða um viðbrögð og
fyrirbyggjandi leiðir til að bæta
hegðun barna og samskipti skóla og
heimila.
Sameiginleg skrifstofa félagsins og
upplýsinga- og fræðsluþjónustunnar
er opin tvo tíma dag-
lega að undantekn-
um tveim sumar-
mánuðum. Mikill
tjöldi fólks hefur
komið eða hringt eða
um 900 manns alls á
árinu. Erindin eru
mjög mismunandi
en langalgengast er
þó að fólk sé að leita
ráða um greiningu
og tryggingamál og
spyrja um rétt sinn í
skólakerfinu. Bóka-,
blaða- og úrklippu-
safn félagsins hefur
einnig notið mikilla
vinsælda hjá nem-
Hér sitja flestir stjórnarmenn félagsins við hringborð.
44