Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands - 01.03.2000, Blaðsíða 53

Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands - 01.03.2000, Blaðsíða 53
mikla kennslu og mannskap til þess að virkja og sinna einum þroska- heftum einstaklingi í íbúð sinni. Sjálfsagt má finna réttlætingu fyrir því í einhverjum tilvikum, og var það raunar gert í hinni greininni í tímaritinu, sagt frá þjónusm á ísafirði sem var m.a. til að mæta vanlíðan ungrar þroskaheftrar stúlku. Alvörumál En það er brýnt að fjalla um þessi dæmi af fullri alvöru nú þegar verið er að ræða flutning allrar félagsþjón- ustu við fatlað fólk aftur heim til sveitarfélaganna. Við megum ekki búa til þjón- ustulíkan sem fer langt með að eyða öllu okkar fé og mannafla til þess að prófa okkur áfram með þjónustu við þá sem litlar forsendur hafa til þess að standa fyrir eigin heimili eða sjálf- stæðri búsetu. Við sem finnum máttinn þverra og þörfina á aðstoð vaxa viljum sjá dæmið reiknað í heild, þannig að okkar hagsmunir séu ekki fyrir borð bornir. Það þarf enga tilraun eða rannsókn til þess að sýna fram á löngun og getu flestra þeirra sem hreyfihamlaðir eru til þess að búa áfram á eigin heimili. Réttur eins takmarkast af því að hann gangi ekki á sama rétt annars manns. Félagsþjónustan og svæðis- skrifstofur mega ekki lofa einum því sem þeir um leið svifta aðra. Hafdís Hannesdóttir félagsráðgjafi Mannlýsing í augum þér er almenningur aðeins spilapeningar, að leika með þá litlu hluti lífs þíns happadrætti var. Einlægnina ekki lést þú á þér sterkum tökum ná og þér hefur orðið það að gagni þegar aðra varstu að flá. Jón Þorleifsson. Eygló Ebba Hreinsdóttir: Ofurlítið um r hann Ola litla Einu sinni var lítill drengur sem hét Óli. Óli átti heima í sveit á bæ sem hét Hamar. Á Hamri voru kýr og kindur, hænsni og hundur. Hundurinn á Hamri hét Kátur og var góður smalahundur og fór oft upp í fjallið fyrir ofan bæinn að sækja rollurnar. Óli litli var bara fimm ára og því var hann ekki í skóla, en hann lék sér að bílunum sínum og svo átti hann hjól sem hann kallaði bílinn sinn. Eitt sinn kom Óli ekki í matinn þegar kallað var á hann að borða, hann heyrði ekki þegar mamma kallaði á hann, því hann var i hörkuvinnu með bílinn sinn. Loksins kom hann þó í matinn og þá spurði mamma hans hvað hann hefði verið að gera. “Eg var að moka mold upp á vörubílinn minn”, sagði Óli. “Ertu þá ekki búinn með þetta og viltu þá ekki lúra . svolitla stund og fara svo aftur út að leika þér vinur”. “Jú, ég ætla að fara að sofa og fara svo út á eftir þegar pabbi kemur frá því að mjólka kýrnar”. Og segir ekki meira af Óla litla. Eygló Ebba. Eygló Ebba Hreinsdóttir Hlerað í hornum Einn þeirra sem komst lífs af þegar togarinn Jón forseti fórst var spurður að því hvort hann hefði ekki þekkt til- tekinn mann sem hefði verið skip- verji á togaranum. Hann svaraði: “Jú, hann var besti maður og ég þekk- ti hann vel. Hann fórst með mér á Jóni forseta.” *** Hjónin voru í kápubúð og konan mátaði kápu sem henni þótti afar falleg og afgreiðslustúlkan sagði henni að hún yrði sem tuttugu árum yngri í kápunni. “Gefðu mér nú þessa kápu”, bað hún eiginmanninn. “Kemur ekki til mála. Eg get ekki hugsað mér að horfa á þig eldast um tuttugu ár við að fara úr kápunni.” Það var á dögum síðari heimstyrj- aldarinnar að karl einn fyrir austan var að óskapast yfir landvinningum Hitlers og sagði svo: “Ekki veit ég hvers vegna hann Hitler er að leggja undir sig öll þessi lönd, barnlaus maðurinn.” Maður einn fékk sér oft í staupinu og tók konan hans gjarnan þátt í gleðinni. Kom þá oft til átaka milli þeirra hjóna og kom maðurinn oft illa klóraður í andliti í vinnuna. Hann gaf alltaf þá skýringu að hann hefði skorið sig svona þegar hann var að raka sig. Einu sinni hringdi siminn á skrifstofunni og starfsfé- laginn rétti manninum símann með þessum orðum: “Rakvélin er í sím- anum.” Á hóteli einu var stórt skilti á veggn- um við afgreiðsluna og þar stóð: Munið að gleyma ekki lyklunum. Fljótfærni í skrifum getur verið stór- hættuleg. Ritstjóri var að leita eftir skattalækkun fyrir aldraðan öryrkja og ein setningin átti að vera svona, NN missti konu sína á árinu 1998, fékk aðstoð til þess að sjá um útfor hennar o.s.frv. En í uppkastinu að bréfinu stóð þetta: NN missti konu sína á árinu, fékk að- stoð til þess. FRÉTTABRÉF ÖRYRKJABANDALAGSINS 53
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands
https://timarit.is/publication/1440

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.