Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands - 01.03.2000, Qupperneq 49
sögulegu staðreynd að samfélagsvit-
und forystumanna þjóðarinnar hefur
ekki alltaf verið á þann veg sem henni
er háttað um þessar mundir. Sú kyn-
slóð stjórnmálamanna sem tók við
landsstjórninni lýðveldisárið 1944
hafði til að bera þann siðferðisstyrk,
metnað og sannfæringu sem dugði til
að reisa hér velferðarkerfi sem um
miðbik aldarinnar var orðið nær sam-
bærilegt við þær fyrirmyndir sem við
höfðum frá nágrannaríkjum okkar. I
stefnuyfirlýsingu þessarar fyrstu
ríkisstjórnar lýðveldisins hafði for-
sætisráðherrann gefið tóninn fyrir
það sem koma skyldi með svofelldum
orðum:
“Ríkisstjórnin hefur með samþykki
þeirra þingmanna, er að henni standa,
ákveðið að komið verði á á næsta ári
svo fullkomnu kerfi almannatrygg-
inga, sem nái til allrar þjóðarinnar, án
tillits til stétta eða efnahags, að ísland
verði á þessu sviði í fremstu röð ná-
grannaþjóðanna.”
Sú kynslóð stjómmálamanna sem
komið hafði sér saman um framan-
greind markmið hafði til að bera of
víðtæka lífsreynslu til að gera þann
mannamun sem er nauðsynleg for-
senda þeirrar mismununar sem
öryrkjum er gert að búa við. Alda-
mótakynslóðinni íslensku var Ijós
bæði siðferðileg og efnahagsleg
nauðsyn þeirrar samtryggingar og
samábyrgðar sem lá til grundvallar
samfélagsgerð frændþjóða okkar -
samfélagsgerð sem þrátt fyrir stöð-
ugar hrakspár í meira en hálfa öld
hefur sýnt og sannað að er ekki að-
eins siðferðilega eftirsóknarverð
heldur óhjákvæmileg undirstaða
efnahagslegrar farsældar. Þetta skildu
þeir þingmenn sem stóðu að fyrstu
ríkisstjórn lýðveldisins. Þeir gerðu
sér ljóst að þótt almannatryggingar
kynnu að kosta peninga myndi það til
lengri tíma litið verða þjóðfélagi
okkar dýrkeyptara að ganga um of á
rétt öryrkja, að misnota sér um of
veika vígstöðu þeirra.
Hálfdrættingar
Sá hugsunarháttur sem endurspegl-
aðist í stefnuyfirlýsingu nýsköpunar-
stjórnar Ólafs Thors hefur því miður
ekki átt upp á pallborðið hjá þeim
kynslóðum við tóku og síst þeirri sem
nú heldur um stjórnartauma. Hægt og
bítandi hefur kerfi almannatrygginga
okkar dregist aftur úr almanna-
tryggingum nágrannaþjóðanna. Er nú
svo komið að við erum einungis hálf-
drættingar á við þær þjóðir sem mest-
an skilning hafa á siðferðilegri og
efnahagslegri nauðsyn jafnréttis.
Framganga íslenskra stjórnmála-
manna í málefnum fatlaðra endur-
speglar ekki aðeins alvarlegan sið-
ferðisbrest, heldur er hún efnahags-
lega óhagkvæm og skammsýn - sáir
fræjum fordóma og grefur undan
þeim siðferðisgildum sem við viljum
gjarnan trúa að hér hafi verið höfð að
leiðarljósi i þúsund ár.
Öryrkjabandalag Islands minnir á
að baráttan gegn aðskilnaðarstefnu
íslenskra stjórnvalda er ekki kjarabar-
átta. Baráttan gegn þessari að-
skilnaðarstefnu er mannréttindabar-
átta.
Opinn borgarafundur með
Norrænu geðhjálparsamtökunum
Opinn borgarafundur í samvinnu við Norrænu geðhjálp-
arsamtökin (NFSMH) verður haldinn í sal RKÍ, Efstaleiti 9, fimmtu-
daginn 11. maí kl. 19:oo.
Geðhjálp er aðili að “Nordiska föreningen för Social och Mental Hálsa”
(NFSMH) og sitja tveir aðilar frá félaginu í stjórn þess. Haldnir eru tveir
fundir á ári til skiptis hjá aðildarfélögunum. Og nú er komið að því að
fundurinn verður hjá Geðhjálp.
Þar sem umræða hefur verið mikil um að notendur geðheil-
brigðisþjónustunnar taki meiri þátt í meðferð og ákvörðunartöku um sína
hagi, var ákveðið að fundurinn mundi hefjast með opnum borgarafundi þar
sem allir sem áhuga hafa geti mætt. Framsögu hafa aðilar frá hverju landi
og svo er svarað fyrirspurnum. Reynt verður að fá stjórnmálamenn sem
hafa sinnt málefnum geðfatlaðra til að vera með innlegg á fundinum.
Stjórnarfundur NFSMH verður svo haldinn helgina 11. til 14. maí
2000. Þar verður farið yfir helstu málefni geðfatlaðra og Sumarmótið í
sumar sem haldið verður á Álandseyjum vikuna 26. júni til 3. júlí verður
skipulagt. Þetta eru árleg mót sem samtökin halda fyrir félaga sína til
skiptis í aðildarlöndunum.
Frá íslandi hafa farið þetta átta til tíu manns utan fararstjóra sem
kostaðir eru af Geðhjálp og Rauða Krossi íslands sem Vin á Hverfisgötu
hefur lagt til úr sínum starfsmannahópi.
Sumarmótið árið 2001 verður haldið á íslandi að öllum líkindum á
Laugarvatni en allar ákvarðanir um það verða teknar á næsta og þarnæsta
fundi hjá NFSMH.
Allar upplýsingar eru veittar á skrifstofu Geðhjálpar í síma 570 1700
fyrir 1. maí.
Frá Geðhjálp.
Hlerað í hornum
Dótturdóttir ritstjóra spurði hann að
því hvort hann vissi hvers vegna
Hafnfirðingar sætu alltaf á fremsta
bekk í bíó. Það vissi hann ekki. “Jú,
það er til þess að þeir sjái myndina
fyrstir”.
Sá siður tíðkast að við brúðkaup sitji
karlar öðrum megin í kirkjunni en
konur hinum megin. Þegar prestur
einn var að gifta brúðhjón eitt sinn sá
hann að brúðguminn stóð öfugu
megin við brúðina. Prestur hallaði
sér fram að brúðgumanum og hvísl-
aði að honum að hann væri vitlausu
megin. Brúðguminn, greinilega
taugatrekktur fyrir, tók viðbragð og
vippaði sér innfyrir gráturnar til
prests.
3 strákar voru kallaðir inn til skóla-
stjóra. Hann spurði þann fyrsta hvað
hann hefði nú gjört af sér. “Ég henti
steini út í tjörnina”. “Ekki var það nú
svo alvarlegt”, sagði skólastjórinn og
spurði þann næsta sömu spurningar.
“Ég henti líka steini út í tjörnina”.
“Nú, nú, en hentir þú líka steini?,
spurði skólastjórinn þann þriðja.
“Nei, ég er Steinn”.
FRÉTTABRÉF ÖRYRKJABANDALAGSINS
49