Spássían - 2011, Blaðsíða 2

Spássían - 2011, Blaðsíða 2
 2 Spássían 2.tbl. 2.árg. ISSN 1670-8709 Ritstjórar Auður Aðalsteinsdóttir audur@astriki.is Ásta Gísladóttir asta@astriki.is Forsíða Fyrirsæta: Eva Káradóttir Mynd: Rut Ing Umbrot Ásta Gísladóttir Prófarkalestur Helga Jónsdóttir Áskrift spassian@astriki.is Auglýsingar auglysingar@astriki.is Ábyrgðarmenn Auður Aðalsteinsdóttir Ásta Gísladóttir Vefsíða http://www.spassian.is Útgefandi Ástríki ehf. Prentun Guðjón Ó. Mynd: Katrín Guðmundsdóttir Þetta tölublað hefur hlotið útgáfustyrk úr Bókmenntasjóði Vísindi og listir eru gjarnan eins og tveir andstæðir pólar í hugum okkar. Vísindin eru rökrétt og snúa að raunheiminum, skilgreina reglur og fara eftir þeim. Listin, á hinn bóginn, er gjarnan mótsagnakennd. Hún fer út fyrir hefðbundna ramma, brýtur reglur og býr í heimi ímyndunarinnar. Vísindaskáldskapur verður til á mörkum vísinda og lista og er því litinn hornauga í báðum heimum: Hann er ekki talinn alvöru list og því síður alvöru vísindi. Togstreitan er þó ekki bundin við vísindaskáldskapinn. Átökin milli lista og vísinda geta orðið hatrömm þegar raunverulegir hagsmunir eru í húfi; fjármagn, vinna og staða innan samfélagsins. Listin þykir þá gjarnan tilgangslaus og gagnslaus iðja sem skilar litlum sem engum arði fyrir samfélagið. Listin er þannig sett í það hlutverk að þurfa sífellt að réttlæta tilveru sína og sýna fram að víst sé hún arðbær - svolítið eins og innflytjandinn sem lýsir því ákafur yfir að hann óski þess heitast að vera góður Íslendingur. Listin er í vörn, og kannski vísindin líka. Að upphefja listina annars vegar og vísindin hins vegar hefur meðal annars verið mótspyrna gegn kröfum um arð og afköst. En margir höfundar vilja komast niður af stalli upphafinna lista. Þeir vilja t.d. ekki vera stikkfrí hvað varðar ábyrgð í samfélaginu heldur taka virkan þátt í umræðunni. Danski höfundurinn Naja Marie Aidt segist í viðtali við Spássíuna vilja vinna gegn upphafinni ímynd rithöfundarins og Listarinnar, og segja má að Kristín Svava Tómasdóttir geri það markvisst í nýrri ljóðabók sinni sem fjallað er um hér í blaðinu. Í aðalviðtali Spássíunnar að þessu sinni bendir Kristín Steinsdóttir á að færni hennar við að byggja upp söguþráð byggi á langri reynslu hennar sem barnabókahöfundur. Hún er ekki sú eina sem bent hefur á að list er í raun vinna, æfing og tækni; vísindi. Ekki yfirnáttúruleg skilaboð frá skáldagyðjunni heldur tilraun til að miðla mannlegri reynslu. Og færa má rök fyrir því að vísindaskáldskapur sé afar framsækið form því þar neyðast höfundar til að sækja sífellt á ný mið um leið og þeir eiga í samtali við samtíma okkar, eins og sjá má í umfjöllun Gunnars Theodórs Eggertssonar um kvikmyndir Johns Carpenters. Íslenskir rithöfundar hafa fiktað við vísindaskáldskap lengi, eins og sjá má í grein Ástu Kristínar Benediktsdóttur um Ferðina til stjarnanna eftir Kristmann Guðmundsson. Flestir hafa þó hingað til verið tregir til að hleypa vísindunum að öllu leyti inn í verk sín, en höfundar á borð við Arnald Indriðason, Andra Snæ Magnason, Þórunni Erlu-Valdimarsdóttur, Lóu Pind Aldísardóttur, Helga Ingólfsson og Hermann Stefánsson hafa daðrað við þau í verkum sínum. Bandaríski rithöfundurinn Nancy Kress bendir reyndar á það í viðtali við Spássíuna að vísindaskáldskapur sé í grunninn notkun á ákveðnum minnum og kanadíski höfundurinn Robert Charles Wilson segir besta vísindaskáldskapinn snúast um sífellda endurskoðun á því hvað sé vísindaskáldskapur. Í greininni „Að vera eða vera ekki vísindaskáldskaparhöfundur“ er vitnað í Damon Knight sem gengur svo langt að lýsa því yfir að vísindaskáldskapur sé það sem hann bendi á og skilgreini sem slíkan. Miðað við allar óljósu skilgreiningarnar sem við höfum rekist á við vinnslu þessa blaðs teljum við að okkur sé öllum óhætt að taka okkur sama bessaleyfi. Nýjasta tækni og bókavísindi Spássían þakkar eftirtöldum: Bókasafni Vestmannaeyja Fasteignum ríkissjóðs

x

Spássían

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Spássían
https://timarit.is/publication/1454

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.