Spássían - 2011, Blaðsíða 26

Spássían - 2011, Blaðsíða 26
 26 Unga fólkið og listin „LungA er fyrir ungt fólk á aldrinum 16-25 ára og eru námskeiðin sem við höldum opin fyrir þennan aldur. Meðal þess sem verður á dagskrá er vídeólistanámskeið þar sem kennd verður gerð tónlistarmyndbanda, dansnámskeið, leiklistarnámskeið og multimedianámskeið - svo eitthvað sé nefnt. Það er auðvitað miklu meira um að vera, en námskeiðin eru okkar stolt; að gefa krökkunum færi á að kíkja inn í þessa heima. Einnig verða opnaðar 8-10 myndlistarsýningar, fatahönnunarsýning og boðið upp á fyrirlestur danskra listamanna um verk sín og hvernig það er að vinna út fyrir rammann, fara ótroðnar slóðir.“ Þátttaka dönsku listamannanna tengist verkefni sem LungA stendur fyrir sem ber heitið „Out of the box“ og er styrkt af Evrópu unga fólksins en þrjátíu Íslendingar og þrjátíu Danir vinna saman að því verkefni. „Þátttakendur á LungA koma víða að,“ segir Aðalheiður, „ekki bara frá Íslandi. Kjarninn er námskeiðin sem hafa verið til staðar frá byrjun. Tónlistin, fatahönnunarsýning og myndlistarsýningarnar komu inn á seinni stigum.“ Upphaflega stóð hátíðin yfir frá miðvikudegi fram á sunnudag en síðustu ár hefur hún teygt úr sér í heila viku. Ýmsar uppákomur eru á kvöldin og haldnir eru stórtónleikar á laugardeginum þar sem hljómsveitirnar Mammút, Sin Fan, Gus Gus og Reptile & Retard stíga á stokk ásamt fleirum. Standa tónleikarnir frá því klukkan fjögur um daginn og fram eftir nóttu. Fjölbreytt dagskrá er öll kvöld þessa viku. „Við sýnum til að mynda kvikmyndir,“ segir Aðalheiður, „og erum með alls kyns uppákomur.“ Á fimmtudeginum mætir fólk gjarnan í bæinn til að kíkja á stemninguna og tjaldstæðin fyllast. Mikill sköpunarkraftur fylgir hátíðinni og upplifunin nær hápunkti á laugardeginum þegar þátttakendur sýna afrakstur vinnu sinnar eftir vikuna. Mikið líf er í bænum þessa viku auk þeirrar dagskrár sem LungA stendur fyrir. Hátíðin hefur einnig laðað að hóp af listamönnum sem eru með eigin viðburði fyrir utan skipulagða dagskrá. Árið 2009 setti Snorri Ásmundsson myndlistar- og gjörningamaður, ásamt Munda Vonda fatahönnuði, upp veislutjald úti í hólma og stofnaði þar fríríki. Aðalheiður tekur það skýrt fram að aðstandendur geri allt sem í þeirra valdi stendur til að bjóða upp á öruggt umhverfi fyrir yngstu gestina. „Við erum með mjög góða gæslu, erum með foreldravakt og svo eru björgunarsveit og lögregla á vakt þann tíma sem hátíðin stendur yfir. Þau sem taka þátt í smiðjunum þurfa að fá leyfi hjá foreldrum og hvetjum við foreldra til að koma um helgina og vera með þeim. Það sem mér finnst sorglegt er að það vantar viðfangsefni fyrir 16 ára krakka á Austfjörðum á sumrin og það var í raun kveikjan að hátíðinni á sínum tíma. Við höfum oft rætt um að hækka aldurstakmarkið upp í 18 ár en alltaf horfið frá því vegna þess að þar með værum við að kippa grunninum undan markmiði hátíðarinnar. Í staðinn höfum við gert okkar til að trekkja alla aldurshópa að, m.a. með því að bjóða 50 ára og eldri frítt inn á svæðið.“ Eftir Ástu Gísladóttur Á hverju ári flykkist hópur ungs fólks austur á Seyðisfjörð og sekkur sér ofan í listalíf og listsköpun af öllum toga í boði LungA, listahátíðar fyrir ungt fólk á Austfjörðum. Hátíðin er nú haldin í tólfta skipti, dagana 10. – 17. júlí. Boðið er upp á alls kyns listatengd námskeið, svo og vettvang fyrir listamenn til að stunda iðju sína í frjóu umhverfi. Spássían tók Aðalheiði Borgþórsdóttur, ferða- og menningarmálafulltrúa Seyðisfjarðarkaupstaðar, tali og grennslaðist fyrir um markmið, sögu og mikilvægi hátíðarinnar.

x

Spássían

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Spássían
https://timarit.is/publication/1454

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.