Spássían - 2011, Blaðsíða 37

Spássían - 2011, Blaðsíða 37
37 á líkama og sál. „Og systir hans gefst upp; segist þurfa að lifa sínu eigin lífi, finnst of erfitt að hjálpa honum. Þetta er eitt af því sem ég vil benda á. Það mátti ekkert vera erfitt, það átti allt að vera létt og auðvelt, og við kunnum ekki lengur að hjálpa hvert öðru.“ Naja Marie er hins vegar sannfærð um að þetta hafi breyst og að hún myndi ekki skrifa sögurnar á sama hátt núna. „Jafnvel þótt við sjáum sömu munstur og gildi gengur það ekki upp lengur. Við verðum að finna aðrar leiðir og ég sé það bæði í Danmörku og Bandaríkjunum að fólk er farið að gera meiri uppreisn. Konur þola til dæmis ekki undirokunina lengur og fleira fólk byrjar á verkefnum í samvinnu við aðra. Ungt fólk stofnar lítil forlög og leggur áherslu á að gefa út bækur sem stóru forlögin vilja ekki gefa út. Það er margt smátt að gerast, líka í pólitíkinni. Mér finnst fólk orðið þreytt á því valdakerfi sem er við lýði og hinum hörðu efnahagslegu gildum.“ SVONA ER VERULEIKINN Það kemur fyrir að fólki líður líkamlega illa og verður óglatt við lestur á sögum Nöju Marie og hún segir að þá sé markmiðinu náð. „Ég vil taka fólk á taugum, þannig að fólk fái á tilfinninguna að það bókstaflega hlaupi í gegnum sögurnar með hjartsláttinn á fullu. Þetta neyðir fólk til að finna fyrir sér og ég held að það sé gott, jafnvel þótt það sé kannski ekki þægilegt. Svo er þetta líka spurning um það hvernig hægt er að fá lesendur til að samsama sig fremur óviðkunnanlegum persónum. Öll eigum við líkama.“ Ein erfiðasta sagan í bókinni heitir „Torben og Maria“ og fjallar um móður sem lemur barn sitt. Hinn hlutlausi tónn frásagnarinnar er sláandi og eftir að hafa sýnt okkur inn í hræðilegan heim skilur höfundurinn lesandann eftir án nokkurrar vonar fyrir hönd barnsins. Naja Marie játar því að hún sýni þarna ákveðna hörku. „Það er nánast ómögulegt að skrifa um viðfangsefni sem þetta ef þú gerist tilfinningasamur og ef þú reynir annað hvort að verja móðurina eða lætur einhvern bjarga barninu. Og það er svo auðvelt að dæma. Ég vildi ekki dæma neinn. Það er bara skortur á öllu í lífi mæðginanna; skortur á tungumáli, tilfinningum, samskiptum. Þau eru fátæk, líka andlega. Og enginn veit hver þau eru. Þetta eru dreggjar samfélagsins. En starfsfólki leikskólans er líka illa við barnið. Og þetta er sannleikurinn; hann er hræðilegur, en þannig er það. Okkur líkar vel við fallegu, brosandi, heillandi börnin en ekki við ljóta barnið sem lemur hin börnin. Þetta er að vissu leyti eins og að taka ljósmynd, því ég vildi vera algjörlega skýr. Sýna veruleikann og fá fólk til að spá í það hvernig hægt sé að koma í veg fyrir að svona nokkuð gerist. Ég las þessa sögu einu sinni upp úti í sveit í Danmörku. Áheyrendur voru flestir eldra fólk og það var frekar miður sín eftir lesturinn. En eftir á kom til mín gamall maður og sagði: „Ég er svo feginn að þú skrifaðir þessa sögu, því nágranni minn lemur börnin sín og nú ætla ég að hringja á lögregluna.“ Þetta er áminning um að við verðum að vita af því sem gerist í kringum okkur og skipta okkur af því, það er okkar mannlega ábyrgð.“ Hlutleysi sögumannsins beinir því í raun ábyrgðinni að þeim sem lesa söguna. „Ég vil soga lesandann algjörlega inn í söguna og að hann ákveði sjálfur hvað er hér á seyði. Hann ákveður hvort einhver von er hérna. Og hvað er von? Í „Mýflugnabiti“ endar sögupersónan allslaus og útbrunnin en hún finnur til vonar, því hún er á lífi.“ SKÁLDSAGAN OG FEÐRAVELDIÐ Naja Marie vinnur nú að skáldsögu og segir það talsverða áskorun því formið krefjist allt annarra hluta en smásagan. „Stundum verð ég reið út í skáldsöguna því hún er svo bundin feðraveldinu. Þegar skrifað er í þriðju persónu, með svokölluðu alvitru sjónarhorni, er það eins og hinn karllegi guð horfi niður á skáldsöguna og viti allt um alla. Mér var farið að líða eins og í fangelsi. En þá varð ég líka að reyna að finna einhverja aðferð til að skrifa skáldsögu án þess að finnast ég innikróuð, föst í heimi karlhöfunda. Mér finnst spennandi að sjá hvort ég get fundið mér aðferð sem er ekki bundið af kvenlegri eða karllegri hefð.“ „Ég vil taka fólk á taugum, þannig að fólk fái á tilfinninguna að það bókstaflega hlaupi í gegnum sögurnar með hjartsláttinn á fullu.“ Höfundakvöld Norræna hússins lífguðu heldur betur upp á menningarlífið í Reykjavík á vordögum. Auk Naju Marie hafa komið þar fram tveir þekktir, grænlenskir höfundar; Kristian Olsen Aaju og Mariane Petersen. Á færeyska kvöldið kom Carl Jóhan Jensen en bók hans Søgur um djevulsskap kemur út í íslenskri þýðingu snemma á næsta ári. Frá Svíþjóð kom Eva Gabrielsson, ekkja Stiegs Larssons, en hún gaf út tvær bækur á síðasta ári, minningar um Stieg og bók um sambúðarlögin í Svíþjóð. Sagði hún frá Stieg, Millenium seríunni, fjórðu bókinni í seríunni sem aldrei kemur út og svaraði spurningum áhugasamra gesta. Í byrjun júní kom Kajsa Ingemarsson, skáldkona og sjónvarpskona frá Svíþjóð en tvær bóka hennar hafa komið út á íslensku: Sítrónur og saffran og Allt á floti. Að lokum kemur hin norska Beate Grimsrud í júní og segir frá bók sinni En dåre fri. Fjöldi gesta hefur mætt á þessi kvöld og hafa fleiri norrænar bókmenntadagskrár fyrir almenning verið skipulagðar. Næst er Bókmenntahátíðin, sem haldin verður í haust. Norræn höfundakvöld

x

Spássían

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Spássían
https://timarit.is/publication/1454

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.