Spássían - 2011, Blaðsíða 32

Spássían - 2011, Blaðsíða 32
 32 eru þetta persónur sem yfirleitt eru ekki í sviðsljósinu heldur í bakgrunni sagna, aukahlutverki. Þetta er fólkið sem heyrist sjaldan í og stundum á það við einhvers konar fötlun að stríða. Kristín neitar því ekki að það geti verið pólitík fólgin í þessu. „Mig langar ekki til að skrifa um karríerkonur. Ég hef ekkert á móti þeim, en mér finnst gaman að bregða ljósi á hinar. Þær eru svo miklar hvunndagshetjur. Eins og Sigþrúður mín í Á eigin vegum. Mér þykir bara svo vænt um hana, og það að kona sem er algjörlega á jaðri samfélagsins geti borið uppi heila bók og átt að mörgu leyti innihaldsríkt líf. Svo var sérstaklega gaman að koma með Á eigin vegum inn í árið 2007, þegar allir voru svo ríkir og feitir. Bók um konu með fatlaða hönd, selshreifa, sem bjó í kjallara, átti enga peninga og skemmti sér við að fara í jarðarfarir eða skoða íbúðir á sölu. Það var eins og hnefi á samfélagið. Þetta andóf birtist líka að hluta til hjá mér í Ljósu. Það er nokkuð til af sögum um geðveilt fólk og það hefur alltaf verið svo fátækt og minnimáttar. Það hefði verið hefðbundnast að láta Ljósu vera fátækling. En Ljósa er sko engin undirmálskona. Hún er af betri stigum. Þótt okkur finnist Ljósa ekki rík í dag þá er hún á sínum tíma ein af sárafáum konum af landsbyggðinni sem fer til Reykjavíkur í skóla á þessum tíma. Þetta dýpka ég meðvitað. Ég styðst við ömmu mína sem var ekki fátæklingur en ég skreyti hana aðeins til að gera hana ennþá flottari. Því mér finnst gaman að skella hnefanum fram. Það er draumurinn með sögunni sem ég er núna að skrifa. Þar er líka kona sem er svolítið öðruvísi. En hvort það tekst veit ég ekki.“ KVÍÐIR EKKI LENGUR ÞVÍ AÐ FARA Í VINNUNA Við þurfum að bíða dálitla stund enn eftir næstu bók frá Kristínu. Hún kemur ekki út á þessu ári en Kristín lofar þó að vera ekki jafn lengi að skrifa hana og þá síðustu. „Ljósa tók svo langan tíma því ég þurfti að safna miklu efni, ég byrjaði að viða því að mér fljótlega upp úr 1990. Nú er ég reyndar orðin formaður Rithöfundasambandsins, svo ég veit ekkert hvernig þetta mun ganga - en ég er ekki hætt. Ég skrifa bara að handan ef ekki vill betur til.“ Hún tekur þó undir með Gyrði Elíassyni sem sagði í Kiljunni síðastliðið vor að hann myndi ekki ráðleggja neinum að leggja fyrir sig það einmanalega starf að vera rithöfundur. „Það er samt svo skrítið, að ég get ekki hugsað mér neitt starf frekar. Ég var kennari og líka leiðsögumaður, en alltaf kveið ég fyrir að fara í vinnuna. Þó var mér sagt að ég væri prýðiskennari. Ég kvíði hins vegar aldrei fyrir að setjast niður og skrifa. Ég er ekki að segja að ég sé ofboðslega upprifin alla daga, en þá fer ég bara og leiðrétti eitthvað þar til ég verð upprifin. Ég held að ástæðan sé kannski sú að geta ráðið deginum. Ég skrifa mikið á náttfötunum, heima í rólegheitunum. En það er ekki upplífgandi. Þess vegna hittumst við nokkrar skáldkonur reglulega í hádeginu, til að stappa stáli hver í aðra og tala saman. Það er ægilega gaman, enda geturðu ímyndað þér hvort ég hafi ekki verið orðin þreytt á að vera alltaf ein á náttfötunum með henni Ljósu, í öll þessi ár. “ S. 411 6100 - borgarbokasafn.is Borgarbókasafn Reykjavíkur skipuleggjur bókmenntagöngur (og rútuferðir) fyrir hópa. Farið er á milli staða sem tengjast íslenskum bókmenntum og sagt frá. Tilvalið fyrir fyrirtæki, klúbba og ferðamannahópa. Í sumar bjóða menningarstofnanir Reykjavíkurborgar upp á göngur með leiðsögn öll fimmtudagskvöld. Lagt er af stað kl. 20 úr Grófinni, milli Tryggvagötu 15 og 17. Kvöldgöngur úr Kvosinni Bókmenntir um alla borg Allir velkomnir og þátttaka er ókeypis. „Svo var sérstaklega gaman að koma með Á eigin vegum inn í árið 2007, þegar allir voru svo ríkir og feitir. Bók um konu með fatlaða hönd, selshreifa, sem bjó í kjallara, átti enga peninga og skemmti sér við að fara í jarðarfarir eða skoða íbúðir á sölu.“

x

Spássían

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Spássían
https://timarit.is/publication/1454

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.