Spássían - 2011, Blaðsíða 9

Spássían - 2011, Blaðsíða 9
9 Battlestar Galactica mátti jafnvel sjá konu sem forseta Bandaríkjanna en enn virðist ekki jarðvegur fyrir svo róttækar hugmyndir í raunveruleikanum. Fantasían er vítt og loðið hugtak og ekki óalgengt að vísindaskáldskapur sé settur undir þann hatt ásamt öllu því sem ekki telst tilheyra hinum „raunverulega heimi“. Flestir leggja þó áherslu á að skilja þarna á milli. Joanna Russ lýsir muninum eitthvað á þessa leið: Raunsæjar bókmenntir eigi að endurspegla þann heim sem lesandinn þekkir, fjalla um það sem er til. Fantasían sé á skjön við raunveruleikann, fjalli um það sem getur ekki verið til. Ánægjan við vísindaskáldskapinn felist hins vegar í tengslum hins raunverulega við það mögulega, það sem hefur ekki gerst en við getum fallist á að gæti gerst.1 Vísindaskáldskapur má nefnilega ekki stríða gegn því sem er þekkt: „Aðeins á þeim sviðum þar sem ekkert er þekkt – eða þekkingin er óljós – er leyfilegt að „skálda bara“.“2 Það eru einmitt þessi raunveruleikatengsl sem hafa vafist fyrir fólki. Vísindaskáldskapur þarf að vera bæði mögulegur og ómögulegur í sömu hendingu.3 Hann valsar á milli raunsæis og fantasíu. Á mörkum fantasíu og vísindaskáldskapar er líka frjótt svæði og margir höfundar búa til nokkurs konar hliðstæða furðuheima með sterka tengingu við okkar heim en lögmál sem standast ekki að öllu leyti okkar vísindalegu heimssýn. Í þríleik James Morris um Guð finna menn risastóran líkama Guðs, sem reynist vera í dauðadái og smám saman að veslast upp. Áður en hann gefur upp öndina gengur þó ýmislegt á og eru m.a. haldin réttarhöld yfir honum vegna allra þjáninga mannkyns. Undir lokin svífur hauskúpa Guðs á sporbaug um jörðu, sem áminning um að við séum nú ein og yfirgefin. Þrátt fyrir drungaleg viðfangsefni er þríleikur Morris drepfyndinn og fullur af heimspekilegum vangaveltum. Í Kraken, frásögn af risakolkrabba sem kannski er guð, dansar China Miéville einnig á mörkum grínfantasíu og súrrealisma. Útkoman verður hins vegar fáránleg langloka með engar tengingar við veruleikann. Og það sem verra er, fátt sem er fyndið. Í einni frægustu bók hans, The City & the City tekst honum mun betur upp enda tengingar við veruleikann alltaf til staðar þótt við séum óneitanlega flutt á nýstárlegar slóðir. Furðuvísindi hafa aðdráttarafl út af fyrir sig. Bækur Philips K. Dicks eru vísindaskáldskapur þótt lögmálin sem þar ríkja séu oft fantasíukennd. Hugsanalestur og spádómsgáfa er meðal þess sem þar má finna en þá ber þess að gæta að bækur Dicks eru skrifaðar á tímum kalda stríðsins, þegar bandaríski herinn gerði í raun og veru hinar undarlegustu tilraunir í nafni vísindanna; til dæmis kannanir á mögulegri hugarorku fólks. Kvikmyndin The Men Who Stare at Goats fjallar um slíkar tilraunir og dregur vel fram hversu fáránleg framsækin vísindi gærdagsins geta hljómað en þar er maður sannfærður um að hann hafi drepið geit með augnaráði sínu. Ný og frumleg hugsun er þó einmitt sá eiginleiki sem gerir bækur Philips K. Dicks svo frjóar og magnaðar. Hann var óhræddur við að kanna ný og ótrygg svæði vísindanna, enda sagði hann sjálfur að góður vísindaskáldskapur yrði að innihalda nýja hugmynd, eitthvað sem lesandinn hefði ekki getað látið sér detta í hug.4 Fræðimaðurinn Darko Suvin setur fram svipaðar kenningar og Dick og segir vísindaskáldskap vera grein þar sem frumskilyrðið er ný hugsun og einhvers konar framandgerving.5 Samuel R. Delany er ekki á sama máli og telur þetta setja greininni of þröngar skorður. Fjöldi geimópera bjóði enga krefjandi hugsun. En séu þær undanþegnar frá greininni samkvæmt skilgreiningunni verði ekkert eftir til að skilgreina.6 1 Russ, Joanna, To write like a woman: essays in feminism and science fiction, Indiana University Press, 1995, 16. 2 Sama rit, 6. 3 Sama rit, 24. 4 Dick, Philip K., The Shifting Realities of Philip K. Dick: Selected Literary and Philosophical Writings, ritstj. Lawrence Sutin, New York, Vintage Books, 1995, 99-100. 5 Delany, Samuel R., „Science Fiction and Criticism: The Diacritics Interview“, Silent Interviews. On Language, Race, Sex, Science Fiction, and Some Comics, Hanover og London, University Press of New England, 191. 6 Sama rit, 191-192. Lítið hefur verið skrifað af vísindaskáldsögum á Íslandi. Líklegt er að smæð markaðarins spili þar inn í en mögulega einnig saga og bókmenntaarfur þjóðarinnar. Fantasían hefur átt mun greiðari aðgang inn í þjóðarvitundina, ef til vill fyrir tilstilli þjóðsagnanna. Skáldsagan Júlía eftir Þórunni Erlu-Valdimarsdóttur sver sig til dæmis í þá ættina þrátt fyrir að gerast í óræðri framtíð með geimförum og tæknivæddum líkömum. Að fantasíunni slepptri hefur raunsæið fengið að ráða ríkjum og þær vísindaskáldsögur sem hafa verið skrifaðar á Íslandi passa sig flestar á því að fara aldrei of langt frá heimaslóðum. Niðjamálaráðuneyti Njarðar P. Njarðvík frá 1967 gerist í mjög náinni framtíð og sækir hugmyndir sínar um skriffinsku, spillingu og firringu skrifstofuvaldsins vafalítið til 1984 George Orwells og íslensks þjóðfélags á 7. áratugnum. Nýleg bók, Sautjándinn eftir Lóu Pind Aldísardóttur, fjallar um nútímann rétt handan hins kunnuglega og það sama má segja um Algleymi eftir Hermann Stefánsson. Lovestar eftir Andra Snæ Magnason er sprottin upp úr heimi hinnar íslensku erfðagreiningar og það eru Synir duftsins eftir Arnald Indriðason einnig. Og ef til vill er erfðafræðin eina augljósa tenging Íslands við þær hugmyndir um tækniframfarir sem liggja til grundvallar vísindaskáldskapnum.

x

Spássían

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Spássían
https://timarit.is/publication/1454

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.