Spássían - 2011, Blaðsíða 34

Spássían - 2011, Blaðsíða 34
 34 „ógeðsleg, loðin og ófrumleg hæðnisrotta“ Ég – um mig – frá mér – til mín Á netinu eru að finna aragrúa tískublogga og langflest eiga þau það sameiginlegt að vera haldið úti af huggulegri konu á þrítugsaldri sem hefur einlægan áhuga á tísku, förðun og fylgihlutum. Bloggynjur fylgjast náið með þróun mála í þessum efnum enda er tíska jafnan þeirra helsta áhugamál og um þetta blogga þær – með sjálfar sig í aðalhlutverki. Dæmigerð færsla tískubloggs inniheldur ljósmynd af bloggynjunni í fallegum fötum. Fyrir neðan eru upplýsingar um fötin, t.d. hvar þau voru keypt, og jafnvel hvernig hugmyndin að þessari tilteknu fatasamsetningu kom til og henni gefin einkunn. Fyrir utan fatapósta skrifa bloggynjur um förðun og hárgreiðslu og hvaða föt, förðunarvörur og fylgihluti þær langar til að eignast. Bloggin eru mispersónuleg og í sumum tilvikum er einnig fjallað um daglegt líf, fjölskyldumeðlimi og vini. Þau tískublogg sem njóta hvað mestrar hylli eru glæsilega hönnuð, reglulega uppfærð og færslurnar eru faglega unnar. Sumum bloggynjum hefur gengið svo vel að bloggið er orðið að atvinnu þeirra þar sem fyrirtæki borga fyrir auglýsingar á síðum þeirra. Stúlkurnar birta sérstakar færslur sem eru styrktar af hinum og þessum fyrirtækjum og bjóða jafnvel upp á gjafapóst þar sem heppinn lesandi getur eignast ákveðna vöru frá styrktaraðila síðunnar. Þetta á t.d. við um Íslandsvininn Jessicu Quirk sem heldur úti blogginu What I Wore (og á íslenska lopapeysu), Emily á Chasmere and Cupcakes og Indiana Adams á Adored Austin. Fyrir daga Fésbókar úði netið og grúði af sjálfhverfum bloggum. Þau hafa flest horfið inn í Flettismettið og eftir standa vandaðri blogg – blogg sem gjarnan tengjast því sem er að gerast í samfélaginu – og svo tískublogg, sem í eðli sínu eru ákaflega sjálfhverf. Bloggynjan setur upp og heldur úti vefsvæði um sjálfa sig – eða afmarkaðan hluta sjálfsins. Hún birtir myndir af sjálfri sér, skrifar um sjálfa sig og fötin sem hún klæðist og fær athugasemdir frá lesendum um persónuleika sinn, útlit, fatastíl og viðhorf. Bloggarinn getur fylgst náið með vinsældum sínum, t.d. með því að skoða innlit og flettingar á síðuna, hversu margir gera athugsemdir við hverja færslu, hvort fyrirtæki vilji styrkja síðuna o.s.frv. Tískublogg ganga út á sérstakan og einstakan persónuleika bloggarans og fatastíl – það er hann sem dregur fólk að síðunni. Því er ekki skrítið að H finnist leiðinlegt að Hildur Knútsdóttir skuli þykjast vera Tískubloggarinn eini og sanni, sérstaklega þar sem H býst við að fara hvað úr hverju að fá tekjur í tengslum við Tískubloggið. „Ég á nokkur föt og ég nota þau gjarnan” H fylgir öllum grundvallarreglum hins almenna tískubloggara. Hún birtir „out-fit posts“ með ljósmyndum af sjálfri sér og upplýsingum um hvaðan fötin koma en munurinn á henni og hefðbundnari bloggynjum er sá að H skrifar nær eingöngu um „helgarátfitt“ eða „kósíföt“. Undirtitill bloggsins er „ég á nokkur föt og ég nota þau gjarnan“ sem er ólíkt flestum bloggynjum sem eiga svo mikið af fötum að þær eru í vandræðum með að nota þau hvað þá koma þeim fyrir. Fatastíll H er líka óvenjulegur en hann samanstendur af víðum náttbuxum, stuttermabolum (helst af kærastanum), ósamstæðum sokkum og hári sem ýmist er þvegið eða óþvegið. Kettir fylgja stundum með á myndunum sem fylgihlutir. Eins og margir tískubloggarar birtir H ráðleggingapósta um holdafar og húðumhirðu, t.d. hina ógleymanlegu færslu „14 leiðir til að grennast” og uppskrift að húðljómandi andlitsmaska, sem reyndar inniheldur lauk og væri ugglaust betri á brauð en andlit. Líkt og aðrar vefmeyjar birtir hún áráttupósta um það sem á hug hennar í það og það skiptið. Yfirleitt er um að ræða ákveðna Eftir Helgu Birgisdóttur Ef marka má fjölmiðlaumfjöllun er Hildur Knútsdóttir, höfundur skáldsögunnar Sláttur, pen og snotur stúlka sem er ánægð með að hafa fengið útgefna sína fyrstu skáldsögu. Á Tískublogginu kemur hins vegar fram að Hildur sé „ekkert nema ógeðsleg, loðin og ófrumleg hæðnisrotta“ sem skrifaði alls ekki sjálf þessa „meintu bók“. H, eigandi Tískubloggsins, er öskureið og sakar Hildi Knútsdóttur um að vera „póser“ – að hún hafi reynt að sölsa undir sig Tískubloggið og nota það sér til framdráttar. Hér verður grafist fyrir um uppruna og tengsl H, Tískubloggsins, Hildar Knútsdóttur og bókarinnar Sláttur. Um tísku, blogg og skáldsöguna Slátt

x

Spássían

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Spássían
https://timarit.is/publication/1454

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.