Spássían - 2011, Blaðsíða 17
17
Hvötum okkar er stýrt. Við lifum í tilbúnu og
framleiddu hugarástandi sem líkist svefni. Hinum
fátæku og lágt settu fjölgar. Mannréttindi eru ekki til.
Þeir hafa skapað kúgandi samfélag og við erum öll
grunlausir sökunautar. Ásetningur þeirra til yfirráða
veltur á útrýmingu meðvitundar. Við höfum verið
sefuð og dáleidd. Þeir hafa gert okkur afskiptalaus,
gagnvart okkur sjálfum og gagnvart öðrum. Þið
verðið að skilja að þeir eru öruggir á meðan enginn
uppgötvar þá. Þannig tekst þeim fyrst og fremst
að lifa af. Þeir halda okkur sofandi, halda okkur
sjálfselskum og halda okkur rólegum.
„Skeggjaði maðurinn“, They Live, 1988.
Kúgandi samfélag
Persóna hins skeggjaða manns
er trúboði andófs og uppreisnar
gegn óséðum drottnurum
mannkynsins í óði John Carpenters
til heimskapítalismans:
kvikmyndinni They Live frá 1988.
Sagan er einföld. Flakkarinn
George Nada, atvinnulaus
verkamaður, kemur til stórborgar
í leit að tækifærum. Fyrir
tilviljun finnur hann dularfull
sólgleraugu sem veita honum
innsýn í blekkingarmátt
samfélagsins og opna augu hans
fyrir þrúgandi hugarstjórnun
sem á sér stað í gegnum afþreyingarefni
og auglýsingamennsku stórfyrirtækja og
yfirvalds. Þegar Nada setur upp gleraugun
í fyrsta sinn sér hann hefðbundið umhverfi
á nýjan hátt og uppgötvar að hann er
umkringdur skilaboðum sem
eru smíðuð til að smjúga inn
í undirmeðvitund grunlausra
samborgara: HLÝÐIÐ / KAUPIÐ
/ SOFIÐ / HORFIÐ Á SJÓNVARP
/ ENGAR HUGSANIR / EKKERT
ÍMYNDUNARAFL / EKKI EFAST
UM YFIRVALDIÐ. Og þegar hann
lítur á dollaraseðilinn: ÞETTA ER
ÞINN GUÐ.
Nada kemst síðan að
því að geimverur eru að vinna
með mennskum yfirvöldum og
ætla sér að taka yfir plánetuna.
Gleraugun sýna honum líka
hvernig annar Kúgandi samfélagPersóna hins skeggjaða manns er trúboði andófs og uppreisnar
gegn óséðum drottnurum mannkynsins í óði Johns Carpenters
til heimskapítalismans; kvikmyndinni They Live frá 1988. Sagan
er einföld. Flakkarinn George Nada, atvinnulaus verkamaður,
kemur til stórborgar í leit að tækifærum. Fyrir tilviljun finnur hann
dularfull sólgleraugu sem veita honum innsýn í blekkingarmátt
samfélagsins og opna augu hans fyrir þrúgandi hugarstjórnun
sem á sér stað í gegnum afþreyingarefni og auglýsingamennsku
stórfyrirtækja og yfirvalds. Þegar Nada setur upp gleraugun í fyrsta
sinn sér hann hefðbundið umhverfi á nýjan hátt og uppgötvar að
hann er umkringdur skilaboðum sem eru smíðuð til að smjúga
inn í undirmeðvitund grunlausra samborgara: HLÝÐIÐ / KAUPIÐ
/ SOFIÐ / HORFIÐ Á SJÓNVARP / ENGAR HUGSANIR / EKKERT
ÍMYNDUNARAFL / EKKI EFAST UM YFIRVALDIÐ. Og þegar hann
lítur á dollaraseðilinn: ÞETTA ER ÞINN GUÐ.
John Carpenter:
Leikstjóri sem
framsýnn útlagi
eftir Gunnar Theodór Eggertsson