Spássían - 2011, Blaðsíða 10

Spássían - 2011, Blaðsíða 10
 10 NANCY þótti spennandi að fara í viðtal hjá íslensku menningartímariti þótt hún furðaði sig á áhuganum í ljósi þess að engin bóka hennar hefur verið gefin út í íslenskri þýðingu. En það á við um bækur flestra vísindaskáldsagnahöfunda og þær fást hér á ensku í bókabúðum, enda virðist það vera tungumálið sem flestir íslenskir unnendur vísindaskáldskapar kjósa að lesa. Sjálf segist hún alltaf hafa lesið vísindaskáldskap: „Eins og flestir rithöfundar las ég allt sem fyrir mig bar þegar ég var barn. En mér datt aldrei í hug að gerast rithöfundur. Ég var barnaskólakennari þar til ég gifti mig og bjóst við að sinna því starfi sem eftir var. En svo þegar ég var ólétt að öðru barni mínu, bjó á afskekktum stað úti í sveit, hjónabandið í molum og með smábarn hlaupandi um húsið byrjaði ég að skrifa. Ég skrifaði þegar sonur minn svaf svo ég hefði eitthvað vitrænt að gera.“ Hún seldi sögu ári síðar en segir það hafa tekið sig 15 ár að byrja að skrifa í fullu starfi. „Það var ekki vegna þess að ég tók ekki skrifin alvarlega – ég gerði það, og geri – heldur tók það mig langan tíma að trúa því að ég væri alvöru rithöfundur.“ TOGSTREITA HINS HARÐA OG MJÚKA Í upphafi átti hún í erfiðleikum með að öðlast viðurkenningu sem höfundur að „hörðum“ vísindaskáldskap, að hluta til vegna þess að hún var ekki með gráður í vísindum. En hún bendir á að það sé langt frá því óalgengt meðal vísindaskáldsagnahöfunda og tekur Frederick Pohl og Kim Stanley Robinson sem dæmi. „Hinn hlutinn tengdist því að ég er kona og konur sem skrifa harðan vísindaskáldskap eru ekki margar. En það er líka að breytast.“ Vísindaskáldskapur sem grein er ennþá hornreka í bókmenntaumræðunni – sérstaklega hjá höfundum sem nota minni hennar en vilja ekki tilheyra henni – og óttast sennilega að skáldsögum þeirra yrði síður hampað. Margaret Atwood er eitt dæmi og finna má þessa tilhneigingu meðal íslenskra rithöfunda. Ég spyr hvort Nancy hafi nokkurn tímann fundið fyrir þrýstingi að fjarlægjast greinina. „Það er of seint. Slík fjarlæging þarf að vera til staðar frá upphafi (eins og hjá Kurt Vonnegut) eða eftir að höfundur hefur öðlast velgengni með venjulegum skáldskap (eins og hjá Margaret Atwood). Já auðvitað værum við höfundarnir hér í gettóinu til í að hljóta náð fyrir augum hins almenna kaupanda og ég tel að vísindaskáldskapargreinin eigi þó nokkra höfunda sem réttlæta þá skoðun. En um leið og þú færð á þig stimpil líta útgefendur, bóksalar og lesendur á þig ákveðnum augum.“ Þótt hún hljómi sátt við sinn stall innan bókaútgáfunnar má engu að síður finna vísi að pirringi á þessari togstreitu í bókum Nancy Kress. Í skáldsögunni Probability Moon, sem kom út árið 2000, kynnumst við tveimur hópum persóna sem láta báðir heimsmynd sína stjórnast af afstöðu sinni til vísinda. Þeir hafa allir verið sendir til að kanna plánetu í fjarlægu horni alheimsins og þá undarlegu hluti sem þar er að finna. Mannfræðingarnir niðri á plánetunni rannsaka svokölluð „mjúk“ vísindi með því að kynna sér frumbyggjana og þeirra nánasta umhverfi á meðan fólkið á sporbaug um plánetuna, flest á vegum hersins, lítur niður á vinnu þeirra og einbeitir sér í staðinn að því sem það telur mikilvægara; að nýta annars heims vopn í hernaðarlegum tilgangi. Undir lok sögunnar kemur í ljós að þessar frásagnir eru bókstaflega tengdar; hin miklu og hernaðarlegu vísindi hafa áhrif á það sem á sér stað á plánetunni og öfugt. Smá samvinna milli þessara tveggja hópa hefði getað afstýrt stórslysi. Vísindaskáldskapargreinin hefur oft verið gagnrýnd síðustu 50 árin eða svo fyrir að lúffa fyrir hinum „mýkri“ vísindum (oftast félagsvísindum – og oft skrifuðum af konum) og fyrir að missa hinn „harða“ brodd sem finna mátti í elsta vísindaskáldskapnum, sem fjallaði gjarnan um geimflaugar og alls kyns framandi tól og tæki. Nancy Kress segir að þótt togstreitan milli þessara póla sé vissulega enn til staðar hafi hún minnkað mikið í seinni tíð. Fyrst um sinn, og á áttunda áratugnum sérstaklega, hafi hluti ástæðunnar fyrir henni verið mikil fjölgun kvenkyns rithöfunda á sviði sem hafði fram að því að mestu tilheyrt körlum. „Konur lögðu meiri áherslu á sambönd í sínum vísindaskáldskap og buðu upp á flóknari kvenkyns persónur en „fallegu dóttur vísindamannsins“. Þetta hafði áhrif á hvernig allir skrifuðu vísindaskáldskap, menn og konur, og um leið og þú leggur jafn mikla áherslu á sambönd og tilfinningar persóna og á geimskip og vopn blandarðu hinum „mjúku“ vísindum við þá heima sem þú skapar, og það á einnig við um framandi heima. Núna eru höfundar á borð við China Miéville að skrifa bækur eins og The City & the City, þar sem félagsfræði menningarheimsins er jafn stórkostlega vel útfærð og morðflétta eða tæknin.“ EIGINLEIKAR GÓÐS SKÁLDSKAPAR Ég stenst ekki mátið að inna hana eftir skilgreiningu á vísindaskáldskap annars vegar og góðum vísindaskáldskap hins vegar: „Vísindaskáldskapur breytir einum eða fleiri þáttum þess heims sem við þekkjum þar sem breytingin Spássían leitaði út fyrir landsteinana að rithöfundum sem sérhæfðu sig í vísindaskáld- skaparskrifum og urðu Nancy Kress og Robert Charles Wilson fyrir valinu - en þau eru bæði miklir reynsluboltar á þessu sviði. Nancy Kress hefur verið eitt þekktasta nafnið í heimi vísindaskáldsagna síðustu tvo áratugi. Hún hefur á ferli sínum skrifað 23 skáldsögur og fjölda smásagna, þrisvar hlotið hin eftirsóttu Hugo verðlaun og fjórum sinnum Nebula verðlaun ásamt fjölda af öðrum viðurkenningum. Bækur hennar fjalla margar hverjar um erfðatækni, stríðsvopn framtíðarinnar og eðlisfræðikenningar en gjarnan í bland við þær félagslegu og sálfræðilegu afleiðingar sem slíkt hefur á einstaklinga og samfélög. Þekktasta saga hennar er án efa Beggars in Spain sem kom út árið 1993. Þar segir frá nýrri kynslóð fólks sem hefur verið genabreytt til að þurfa aldrei að sofa. Hlaut bókin lofsamlega dóma og ógrynni verðlauna. Rithöfundur ekki spákona Eftir Ástu Gísladóttur

x

Spássían

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Spássían
https://timarit.is/publication/1454

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.