Spássían - 2011, Blaðsíða 35

Spássían - 2011, Blaðsíða 35
35 skótegund eða t.d. handtösku en H er frumleg snót og birtir ekki „obsession“-pósta heldur „bobsession“-pósta um þann Bob sem hún girnist hverju sinni. Innblásturspóstar eru ekki óalgengir hjá bloggynjum, en H lætur sér ekki nægja að skrifa um augnskugga og nælonsokka heldur skrifar hún þeim mun meira um beikon og hefur virkilega jákvætt viðhorf til þess og sér fjölbreyttari notkunarmöguleika í beikoni en flestir. H vísar líka í áhugaverðar fréttir sem veita henni innblástur, fréttir af vefsvæðum eins og bleikt.is, Smartland Mörtu Maríu og vef Pjattrófanna. Því miður hafa forsvarsmenn þessara vefsvæða lagt H í hálfgert einelti og neita að birta athugsemdir hennar við færslur sem birtast á þessum vefjum. Um allt þetta er hægt að lesa á Tískublogginu, m.a. tölvupóstsamskipti H við Pjattrófurnar og Mörtu Maríu Jónasdóttur. H þykir mjög miður að njóta ekki sannmælis meðal þessara vefmeyja. Eins og öll önnur tískublogg snýst blogg H fyrst og fremst um hana sjálfa. Það sem skilur Tískubloggið hins vegar frá öðrum bloggum sömu tegundar er sú staðreynd að Tískubloggið er fyrst og fremt drepfyndin og háðsk gagnrýni á einmitt það sem það er – tískublogg. Þessu ná sumir en aðrir ekki eins og sjá má í athugsemdakerfi bloggsins þar sem lesendur geta lagt fram sína skoðun á hverri færslu fyrir sig. Þetta á t.d. við um Couture Girl sem hafði ekkert gott um legnám H að segja: H, sem aldrei dettur úr karakter, finnst hið besta mál að hafa farið í legnám þar sem legnámið stuðlar að grennra mitti og verði hún einhvern tíma móðir seinna meir mun hið ættleidda barn njóta þess að eiga granna móður sem er ánægð með sjálfa sig. H gengur ansi langt í gríninu og Couture Girl er ekki sú eina sem á eftir að „fatta djókinn“. Líklega þarf maður að vera nokkuð vel lesinn í tískubloggum til að átta sig almennilega á því hvað það er sem H deilir á en líklega eru ekki margir almennir lesendur tískublogga sem hafa mikinn áhuga á samfélagsgagnrýni H. Póserar og hæðnisrottur Draumur H um að skrifa bók tengda blogginu er ekki úr lausu lofti gripinn. Tískublogg eru ákaflega vinsæl og nú í dag vinna að minnsta kosti tveir bloggarar, Jessica á What I Wore og Emily á Cupcakes and Casmere, að bókum sem byggjast á bloggunum þeirra. Í janúar síðastliðnum var H þess fullviss að „ferskir vindar“ myndu blása um Tískubloggið á nýju ári þar sem hún ætlaði í brjóstastækkun og beið spennt eftir því að „forleggjarar sjái sóma sinn í því að bjóða mér framvirkan útgáfusamning, ...“2 Draumur H virðist ætla að verða að veruleika ef marka má athugsemdir við færsluna. Væntanleg lífstíls- og tískubók H verður með svipuðu sniði og sjálft bloggið en bók Hildar Knútsdóttur, póserans ógurlega og hæðnisrottunnar, er allt öðruvísi og alls ekki um beikon, megranir eða Bob. Hún heitir Sláttur og fjallar um stúlku sem farið hefur í hjartaskiptaaðgerð. Hjartað var grafið í kyrrþey Edda er 24 ára gömul, það eru fimm ár síðan hún fór í aðgerðina og mamma hennar er búin að grafa „gamla“ hjartað í kyrrþey, til fóta við kistu ömmu hennar. Tölfræðin er henni ekki hliðholl, hún veit að margir hjartaþegar lifa ekki lengi og vegna þessa á hún erfitt með að ímynda sér og skapa sér nokkra framtíð. Nútíðin er líka erfið – einmanaleg og tilgangslaus og Edda á samskipti við ósköp fáa, fyrir utan vinnufélaga sína, móður og sálfræðing. Hún á enga vini enda eyddi hún æskunni meira og minna inni á sjúkrastofnunum. Hún hugsar heilmikið um nýja hjartað – hverjum það tilheyrði og að hve miklu leyti það sé nú hennar eigið. Inn í frásögnina fléttast feðgar, Gunnar og Eysteinn. Edda gerist barnfóstra Eysteins, sem er viðkvæmur og skyggn, og reynist þegar allt kemur til alls vera sonur konunnar sem upphaflega átti hið nýja hjarta Eddu. Sláttur er ljúfsár saga um tilfinningar sem aðalsögupersónan er ekki viss um að séu hennar eða í nokkrum tengslum við hjartað sem er aðeins hennar að hluta. Sagan er eins ólík Tískubloggi H og frekast getur verið og því ekki skrítið að Hildur Knútsdóttir skuli segja að ekki sé víst að lesendum bloggsins líki bókin.3 Síðan getur það auðvitað verið á hinn veginn – lesendum getur líkað stórvel við bókina en fundið blogginu allt til foráttu. Sláttur er einlæg frásögn og ekta – nokkuð sem Tískubloggið nær aldrei nokkru sinni að vera, enda er því ekki ætlað annað en vera sjálfhverft, yfirborðskennt og grunnhyggið. Staðreyndin er hins vegar sú að þessi fyrsta skáldsaga Hildar Knútsdóttur, eða „meinta bók“ hennar eins og H orðar það, hefði varla hlotið jafn mikla kynningu og raun ber vitni ef ekki hefði verið fyrir bloggið. H er hræðileg stúlka, stúlka sem þurfti næstum að hætta með kærastanum því hann reyndist ekki vera í sama blóðflokki og hún, og enn hræðilegri er hún ef við tökum hana alvarlega. Það vona ég að enginn geri heldur líti á hana sem skondinn spéspegil hins almenna tískubloggs. Hins vegar vona ég að lesendur taki Hildi Knútsdóttur alvarlega og svipist um eftir fleiri bókum eftir hana í framtíðinni. 1 H, „Post-op átfitt”, Tískubloggið, 13. ágúst 2010, sótt 25. maí 2011 af http:// tiskublogg.blogspot.com/2010/08/post-op-atfitt.html. 2 H, „ársuppgjör Tískubloggsins“, Tískubloggið, 3. janúar 2011, sótt 25. maí 2011 af http://tiskublogg.blogspot.com/2011/01/arsuppgjor-tiskubloggsins. html. 3 Atli Þór Fanndal, „Tískublogg og skáldsaga“, Smugan, 18. janúar 2011, sótt 25. maí 2011 af http://www.smugan.is/menning/baekur/nr/4943. Mynd birt með góðfúslegu leyfi Tískubloggsins. Þar segir H: „P.S. Hérna er mynd sem ég fann af henni og hinni meintu „bók“ hennar á alnetinu. Sjáið bara hvað hún er ógeðsleg. Hún er með yfirvaraskegg og bringuhár og hún slefar pissi.“ þú ert mikið að grínnast á þessari síðu og ég ætla rétt að vona að þetta sé grín annars ertu ógeðslega hræðinleg manneskja!!!!!! kannski bara gott að þú eigist ekki börn ef þú gerir svona í alvöru!!!!!!!1

x

Spássían

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Spássían
https://timarit.is/publication/1454

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.