Spássían - 2011, Qupperneq 6
6
Þegar langþráð sumarfrí rennur upp hugsa
margir sér gott til glóðarinnar að fá nægan
tíma til að sökkva sér í lestur, og ekki bara
á léttmeti. Spássían fékk Helgu Elísabetu
Jónsdóttur, afgreiðslufulltrúi í Bókasafni
Mosfellsbæjar, til að mæla með áhugaverðum
bókum til að hafa með sér út í sólina – eða
upp í sófa á meðan sumarregnið lemur
rúðurnar. Flestar eiga þær það sameiginlegt
að vera fræðandi og tengjast sögulegum
staðreyndum en margar kynna lesandann
jafnframt fyrir ólíkum menningarheimum.
Fyrst og fremst eru þær þó áhugaverðar og
vel skrifaðar, segir Helga Elísabet.
Morgnar í Jenín eftir Susan Abulhawa í þýðingu Ásdísar
Guðnadóttur
„Þessa bók er afar fræðandi að lesa til að gera sér betur
grein fyrir ævarandi átökum Ísraela og Palestínumanna.
Hún fjallar um það hvernig Ísraelsmenn hafa yfirtekið land
og heimili Palestínumanna og lýsir vel heiftinni sem þarna
ríkir. Í byrjun er sagt frá palestínskri bændafjölskyldu.
Ísraelsk hersveit flæmir hana ásamt öðrum burt af
landi þeirra, rekur upp í fjöllin og gerir að hálfgerðum
flóttamönnum. Einn úr herdeildum Ísraels tekur barn frá
fjölskyldunni og elur upp sem sitt eigið, en seinna mætir sá
drengur bróður sínum. Mikið drama.“
Kirkja hafsins eftir Ildefonso Falcones, í þýðingu Maríu
Ránar Guðjónsdóttur
„Þetta er stór og dramatísk örlagasaga um sögulegt efni.
Hún fjallar um fátæka, spænska bændur sem eru kúgaðir
af lénsherrum, en feðgarnir sem sagan fjallar aðallega um
komast til Barcelona við illan leik. Þar tekur sonurinn þátt í
að byggja eina af fegurstu kirkjum heims.“
Leikur Engilsins eftir Carlos Ruiz Zafón í þýðingu Tómasar
R. Einarssonar
„Bókin fjallar um dreng sem missir föður sinn ungur, elst
upp í kjallara blaðaútgáfu í Barcelona og verður góður
rithöfundur. Hann gerir síðan samning við mjög dularfullan
útgefanda. Þetta er saga um yfirnáttúrulega atburði og
mikil spenna. Fyrri bók höfundarins er Skuggi vindsins. Hún
hefur notið mikilla vinsælda og það má svo sannarlega
mæla með henni líka.“
Í SUMARFRÍIÐStarfsmað
ur bókasaf
ns
mælir me
ð
Óskar og bleikklædda
konan eftir Eric-Emmanuel
Schmitt í þýðingu Guðrúnar
Vilmundardóttur
„Óskaplega falleg saga sem
allir ættu að lesa, enda hálfgerð
dæmisaga. Þetta er hluti af
þríleik um trúarbrögðin en
hér er fjallað um kristnina. Í
sögunni segir frá dreng sem á
tíu daga ólifaða og ákveður að
lifa lífinu með því að taka einn
áratug á hverjum degi. Hér er
mjög skemmtilega sagt frá svo
frásögnin verður grátbrosleg.“
Engan þarf að öfunda eftir
Barböru Demick í þýðingu
Elínar Guðmundsdóttur
„Það er fræðandi og forvitnilegt
að lesa um Norður-Kóreu og
ástandið þar. Höfundurinn er
blaðakona sem hefur í mörg
ár tekið viðtöl við flóttamenn
sem komist hafa frá Norður-
Kóreu. Hún segir sögu nokkurra
einstaklinga á ýmsum aldri og
af báðum kynjum, fólks sem
hún talar við með nokkurra
ára millibili eftir að það nær að
flýja til Suður-Kóreu, og lýsir því
hvernig ástandið var - og er enn.
Fólk hefur unnvörpum dáið úr
hungri og vosbúð en þarna er
allt svo lokað frá umheiminum
að enginn veit hvað er í raun að
gerast.“
Reisubók Guðríðar
Símonardóttur eftir Steinunni
Jóhannesdóttur
„Þessi bók er ekki bara
fræðandi heldur vel skrifuð
líka. Það er áhugavert að lesa
um Tyrkjaránið og sjá um leið
hinn mikla menningarmun og
hvað Íslendingar bjuggu við
frumstæð lífskjör á þessum
tíma.“
Mynd: Rut Ing