Spássían - 2011, Side 24
24
strúktúrinn verður til. Þetta gerir nýjan strúktúr sem hljómar
aðgengilegri en ef nóturnar væru faldar.
Nótur sem birtast í rauntíma breyta ekki aðeins hugmyndinni um
tónverkið, nóturnar, túlkunina og tónaskáldið heldur aðstæður
flutningsins. Með sýnileika nótnanna má gera áheyrendur að
hluta af flutningnum og jafnvel virkja þá með beinni þátttöku.
Dæmi um slíkt er verk Áka Ásgeirssonar 312˚. Þar birtast nóturnar
sem hringir sem færast frá hægri til vinstri eftir láréttum línum.
Hver flytjandi fær úthlutað einni línu og áheyrendur fá einnig
sínar línur og fyrirmæli um hvað þeir eigi að gera þegar hringir
birtast á „þeirra“ línu.
Þessi tiltekna nótnaskrift er þó ekkert skilyrði fyrir inngöngu í
Slátur né er gerð krafa um að öll verk séu samin á tölvur og tónverkið
sjálft gert sjónrænt. Ekki skrifa öll tónskáld samtakanna slíkar
nótur né finnst þeim öllum nauðsynlegt að sýna nótnaskriftina sé
hún notuð. Hið fyrra á við um Hafdísi Bjarnadóttur, en hið síðara
Guðmund Stein Gunnarsson. Í flutningi verka Guðmundar eru
nótunum ýmist varpað á tjald fyrir flytjendur eða lesnar af skjá
fartölvu. Hugmyndin um nótur sem birtast um leið og verkið er
flutt einskorðast ekki heldur við hreyfimyndir. Þær má líka setja
fram á mjög einfaldan hátt með því sem hendi er næst, hvort
sem það eru blöðrur, vasaljós, lampar eða bréfaskutlur. Dæmi
um þetta er verk eftir Inga Garðar Erlendsson á Sláturdúndri í lok
febrúar. Verkið var samið á staðnum fyrir tvo stofulampa og fána
og flutt af viðstöddum. Þá væri einnig rangt að halda því fram
að öll tónverk tónskálda Slátur séu samin fyrir tölvur eða flutt
með rafknúnum hljóðfærum, því á tónleikum þeirra má í rauninni
rekast á allt sem hugsanlegt er að geti gefið frá sér hljóð.
Ef ætlunin væri að draga fram sameiginlegt einkenni er lýsa
Samtökum listrænt ágengra tónsmiða umhverfis Reykjavík yrði
það leikgleðin sem fylgir þeim er stígur út fyrir rammann og
fetar forvitinn nýjar slóðir. Á tónleikum birtist leikurinn gjarnan
sem andstæða kröfunnar um fagmannlega framsetningu, ef við
skilgreinum hana út frá formfestu, fágun og fullkomleikaþörf.
En það væri vafasamt að láta slíkt villa sér sýn og gleyma því að
leikgleðin sprettur af því að allir taka þátt í leiknum af fullri alvöru.
1 Bosseur, Jean-Yves, De Signe au Son. Histoire de la notion musicale, Paris,
Édition Alternatives, 2005, 52.
2 Sama rit, 76.
3 Bosseur, Jean-Yves, Le sonore et le visuel. Intersection musique / art
plastiques aujourd‘hui, Paris, Dis-Voir, 1992, 9
4 Rögnvaldur G. Möller, „Hvað er rúmfræði?“, Vísindavefurinn, 21.5.2002,
sótt af http://visindavefur.hi.is/svar.php?id=2073
5 Bosseur, De Signe au Son, 10-12.
6 Sama rit, 14.
7 Winkler, Gerhard E., „The Realtime-Score. A Missing-Link in Computer-
Music Perfromance“, erindi flutt á ráðstefnu Sound and Music Computing,
2004, sótt af http:L//smcnetwork.org/files/proceedings/2004/P3.pdf.
Laser Cat eftir Jesper Pedersen.
Hér eru hreyfimyndanótum varpað á nótnaborð píanósins.
Frumflutt af Tinnu Þorsteinsdóttur á tónleikum
Raflost hátíðarinnar í maí 2010.
GuðjónÓ prentsmiðja notar tækjakost sem er í fremstu röð.
Þar má til að mynda nefna nýja Heidelberg Speedmaster
52. Vélin ræður við allt að 400gr pappír með vatnslakki
sem skilar prentörkinni þurri úr prentvélinni. Með þessu
má stytta vinnslutímann á vörunni verulega þar sem
prentgripurinn getur farið beint í frágang og skurð að
prentun lokinni. Lakkið á prentvélinni er vistvænt og er
fáanlegt í silkimöttu, möttu, glansi og háglansi. Allar
þessar lakktegundir skapa fallega áferð á prentgripinn.
Í raun má segja að stór hluti prentvinnslu hjá GuðjónÓ
sé stafrænn. Aðsend hönnuð gögn eru send beint á
stafrænan plötuskrifara (sem býr til prentplöturnar).
Með þessum fullkomnu tækjum getum við unnið þau
verk sem okkur berast hratt og örugglega og þannig
hjálpað viðskiptavinum að standa við skuldbindingar sínar.
UMHVERFISMÁL
GuðjónÓ, vistvæna prentsmiðjan, er fyrsta og eina prentsmiðja
landsins sem merkt getur prentgripi sína með umhverfi smerkinu
Svaninum. Prentsmiðjan fékk Svaninn fyrst árið 2002 og endurnýjun
árið 2008, en ströng skilyrði eru sett fyrir því að fá að taka
upp Svaninn. Stærstur hluti framleiðslu prentsmiðjunnar er á
umhverfi smerktum pappír eða á pappír sem viðurkenndur er af
umhverfi s merkinu Svaninum. Svansmerktur pappír þarf að upp-
fylla ströng skilyrði. Krafa er gerð um að 50% hráefnis séu
endurnýtt og einnig er þess krafi st að öll þau efni sem notuð eru við
pappírsframleiðsluna séu niðurbrjótanleg í nátturunni. Með ákveðnum
aðgerðum í prentsmiðjunni hefur nýtingarhlutfall á pappír hækkað
og góður árangur hefur náðst í að minnka afskurð á pappír. Að auki
gerir Svanurinn kröfu um að öll fl okkun pappírs sé mjög nákvæm.
Þess vegna ætti GuðjónÓ að vera fyrsti valkostur þeirra fyrirtækja sem
vilja að allir þættir rekstursins séu umhverfi svænir.
GuðjónÓ prentsmiðja hefur í áratugi
stutt margs konar menningarstarf-
semi. Þar má nefna tónlistarhátíðir,
myndlistarsköpun og aðrar listir.
Við viljum leggja okkar af mörkum til
að menning nái að vaxa og dafna í
samfélaginu.
Krafan um að fyrirtæki, stofnanir og sveitarfélög
taki upp ábyrga stefnu við innkaup og notkun vara
hefur vaxið á undanförnum árum. Í Staðardagskrá
21, sem mörg sveitarfélög hafa skrifað undir, er ætlast
til að innkaup taki mið af umhverfi nu. Í þessum svo-
kölluðu grænu innkaupum er eitt einfaldasta skrefi ð
að nota umhverfi smerktar vörur, ekki síst pappír og
prentgögn. Prentsmiðjan GuðjónÓ hefur hlotið vottun
hjá Norræna umhverfi smerkinu Svaninum og getur
því umhverfi smerkt allar vörur sínar.
Hjá GuðjónÓ leggjum við mikla áherslu á persónu-
lega þjónustu og komum til móts við allar óskir
viðskiptavina með faglegum metnaði. Við gætum
þess að hvert verkefni hafi einn ábyrgðarmann sem
fylgist með öllum þáttum verksins og geti upplýst
um gang mála á öllum stigum framleiðslunnar. Þeir
starfsmenn sem sjá um samskipti við viðskipta vini
hafa áratugareynslu í faginu og veita fúslega góða
ráðgjöf.
TÆ
KN
IN
Umhverfisvænn valkostur
Prentgripir frá GuðjónÓ eru umhverfismerktir
Persónuleg þjónusta – alla leið
Eina umhverfisvottaða prentsmiðjan
Tækjabúnaður af bestu gerð
VIÐ STYÐJUM
MENNINGU OG
MANNLÍF
ÞJÓNUSTAN
Prentsmiðjan fékk svansvottun árið 2000
Áratuga reynsla segir allt!
Persónuleg þjónusta alla leið!
Göngum hreint til verks!
www.gudjono.is · sími 511 1234
www.gudjono. s