Dagblaðið Vísir - DV - 17.01.2020, Page 10
10 17. janúar 2020FRÉTTIR
H
allgrímur Ólafsson leikari hefur
komið víða við en hann fer með
eitt af aðalhlutverkunum í kvik-
myndinni Gullregn sem frumsýnd
var fyrr í mánuðinum. Þar túlkar hann
meðvirka mömmudrenginn Unnar og seg-
ist ekki hafa þurft að leita lengi til að finna
sinn hlut í karakternum þar sem textinn sé
að mestu leyti sprottinn frá honum sjálf-
um.
Hallgrímur er ekki einn af þeim sem
vissi alltaf að hann ætlaði að verða leikari.
Hann flosnaði snemma upp úr skóla og
sótti sjóinn ásamt föður sínum sem stýrði
útgerð í sjávarplássinu þar sem hann er
alinn upp.
„Æsan var á Akranesi, en ég er svona
týpískur úti á landi-gaur,“ segir Hallgrím-
ur þegar blaðakona hittir hann heim einn
hrákaldan morgun í janúar. Nær óhjá-
kvæmilega fljótt minnist Hallgrímur á
draum sinn að flytja suður um höf, þó ekki
væri nema í um eitt ár og njóta bættari veð-
urskilyrða. „Ég hata þetta veður. Það væri
geggjað að prófa að búa úti í a.m.k. eitt ár
og sjá hvernig það færi. Annars hef ég ver-
ið rosalega heppinn með vinnu hér heima,
verið á föstum samningi frá útskrift og
alltaf spenntur yfir því hvað næstu verkefni
fela í skauti sér.“
Og talandi um næstu verkefni því fyrr í
vikunni hófust fyrstu æfingar á nýju verki
sem frumsýnt verður innan skamms í Þjóð-
leikhúsinu, Útsending í leikstjórn Guðjóns
Davíðs Karlssonar. Hallgrímur segir æf-
ingar fara vel af stað en um leið og þeim
ljúki taki svo við æfingar á Kardimommu-
bænum þar sem hann mun fara með hlut-
verk eins þriggja ræningja sem flestir kann-
ast við. „Það er mikill munur að leika fyrir
börn og fullorðna, ég viðurkenni það. Sem
foreldri finnst mér svo gaman þegar barna-
sýningar virka líka fyrir fullorðna og þegar
ég tek þátt í barnasýningum er ég alltaf
með hugann við það að fullorðnir verði að
geta skemmt sér líka.“
Elsti pabbinn í bekknum
Sjálfur á Hallgrímur þrjú börn á aldrinum
Íris Hauksdóttir
iris@dv.is
„Þegar þú ert með fleiri
skópör en setningar veistu
að þú ert með lítið hlutverk“
Skrítin standpínustemning um borð – Kvíðir
hlutverkum sem sýna stórar tilfinningar