Dagblaðið Vísir - DV - 17.01.2020, Page 13
17. janúar 2020 FRÉTTIR 13
Og þeir Bubbi og Hallgrímur eiga ekki
aðeins söngferilinn sameiginlegan því
Hallgrímur sótti jafnframt sjóinn, rétt eins
og Bubbi.
„Ég er alinn upp á sjómannsheimili þar
sem átti að ríkja þögn í hádeginu því þá
voru sagðar veðurfréttir. Það var alltaf fisk-
ur í matinn og ég segi stundum að ég sé bú-
inn að borða fisk fyrir lífstíð. Pabbi rak smá-
bátaútgerð svo það var þægilegt fyrir strák
sem hékk ekki í skóla að geta fengið fullt
af pening, en þetta var ekkert fyrir mig. Ég
prófaði líka að fara á togara en það var ein-
hver mesta martröð sem ég hef upplifað.
Það var svo ógeðslega kalt og skrítin stand-
pínustemning um borð. Þess fyrir utan var
ég einfaldlega ekki nógu sterkur í þetta,
það þurfti mikil átök og djöfulmennsku
í svona starf. Sjóferilinn endaði ég svo á
Akraborginni, þá sem háseti að vísa bílum
inn í skipið og það kunni ég mun betur við,
ég er stoltur að hafa hætt þar.“
Spurður hvort óvissan sem óhjákvæmi-
lega fylgir starfinu sé aldrei ógnvekjandi
segir Hallgrímur svo ekki vera.
„Það er aðallega þegar maður er að
koma úr miklu álagi að maður óttist að það
haldi áfram en annars er ég ekki mjög kvíð-
inn maður. Ég hef verið heppinn að hafa
nóg að gera og það er frekar að maður sé
spenntur hvað taki næst við. En ef þetta
verður leiðinlegt þá fer ég einfaldlega að
gera eitthvað annað.“ n
Ef þetta verður
leiðinlegur dagur
er það alfarið þér
sjálfum að kenna.