Dagblaðið Vísir - DV - 17.01.2020, Síða 21

Dagblaðið Vísir - DV - 17.01.2020, Síða 21
FÓKUS 2117. janúar 2020 hvernig tími er skipulagður og hvernig fólk lifir í tíma,“ sagði Hildur í samtali við Morgunblaðið á sínum tíma. Í viðtali við Fréttablaðið um svipað leyti sagðist hún ætla að „ákveða sem minnst og elta forlögin“ þegar hún var spurð um framtíðarplönin. Sumarið eftir útskrift starfaði hún sem tæknimaður á Ríkisút­ varpinu. Á þessum tima var Hildur þegar farin að semja tónlist fyrir leikhús og kvikmyndir og starfa með tónlistarmönnum úr ýmsum áttum. Hún var meðal annars í hljómsveit Sigríðar Níelsdóttur og í stórsveit Nick Nol­ te, sem hitaði upp fyrir bandarísku hljóm­ sveitina Animal Collective á tónleikaferð hennar um Bandaríkin. Draumur um Balí Árið 2006 kom fyrsta sólóplata Hildar út hjá 12 tónum, þar sem hún spilaði á öll hljóðfærin sjálf ásamt því að taka upp og semja tónlistina. „Diskurinn heitir Mount A og er nafnið eiginlega tilkomið af því að ég byrjaði að taka upp plötuna í New York á stað sem heitir Mount Vernon,“ sagði Hildur í sam­ tali við Blaðið í október 2006. „Ferlið var nefnilega eins og að klífa fjall og koma nið­ ur aftur þannig að mér fannst þetta mjög viðeigandi.“ Þá sagðist Hildur ómögulega geta gert upp á milli ákveðinna tónlistarmanna en sagðist undanfarið hafa hlustað mikið á tónlist frá Balí, sem henni þætti æðisleg. Sagðist hún vera heilluð af viðhorfi íbúa Balí til tónlistar. Hún sagði að Balí væri draumastaður sinn til tónlistariðkunar. „Ég myndi vilja spila þar í heimahúsi með innfæddum. Það er æðisleg tón­ listarhefð þarna og falleg stemning þar sem fólk kemur saman og spilar í marga klukkutíma samfleytt, í öllum þorpum og úti um allt og allir eru velkomnir með.“ Hildur sagði jafnframt að það væri lúx­ usaðstaða að geta spilað og lifað á tón­ listinni. Þetta er auðvitað ótrúlegt hark oft og ekki stöðugt og kósý starf en ef vel tekst til og maður á vel heppnaða tónleika þá er þetta ótrúlega gefandi staða að vera í.“ Hún sagðist aldrei hafa hugsað út í ann­ að ævistarf en tónlistina. „Ætli ég segi ekki bara flugmaður eða bakari. Mér finnst þetta alltaf svolítið fyndin spurning og eins ef ég er spurð út í önnur áhugamál. Það snýst einhvern veginn allt um tónlistina hjá mér. En ef ég ætti að nefna eitthvað annað sem ég hef áhuga á þá eru það bæk­ ur. Ég les mikið og finnst alltaf gaman að lesa góðan krimma og svo er Murikami í miklu uppáhaldi hjá mér.“ Sama ár ræddi Hildur við Morgunblað­ ið, en hún var þá að fylgja plötuni eftir og var á fullu í tónleikahaldi víða um heim með hinum ýmsu listamönnum. Hild­ ur sagði að allir dagar hjá henni sner­ ust í kringum tónlist. Aðspurð um hvað hún gerði í frístundum svaraði Hildur að hún ætti alltaf í vandræðum með að svara þeirri spurningu, enda ætti hún eiginlega engin áhugamál fyrir utan tónlistina. „Mér finnst gaman að baka brauð. Það er mín jarðtenging. Svo er ég farin að gera svolítið meira af því að elda heima hjá mér í Svíþjóð. Ég les líka töluvert. Annars reyni ég helst að taka því rólega þegar ég er ekki á spani. Þegar maður lifir erilsömu lífi er mikilvægt að hvíla sig og safna kröftum inn á milli.“ Þá kom meðal annars fram að uppá­ haldsdagur Hildar væri sunnudagur „þar sem það er svo mikil ró yfir honum“ og að uppáhaldsmaturinn hennar væri „rjúpan hennar mömmu á jólunum“. Þá sagði hún að sund væri hennar uppáhaldsheilsurækt og bestu sundstaðirnir væru að hennar mati á Íslandi. Elskar Berlín Hildur fluttist búferlum til Berlínar árið 2007 en hún kynntist borginni fyrst árið 2003 þegar hún var skiptinemi í UdK, Listaháskóla Berlínar. „Ég varð strax ástfangin af borginni og hef verið það meira og minna síðan. Það eru ótalmargar ástæður fyrir því að mér líður vel í Berlín. Hún er mjög róleg, og þar er mikið olnbogarými. Þar er mjög auðvelt að hverfa og það hentar mér rosalega vel af því ég þarf mikið rými til að vera ein með hugsunum mínum,“ sagði Hildur í sam­ tali við Fréttablaðið árið 2010. Hún bætti því við að þó að Ísland væri æðislegt land þá hefði landið sína kosti og galla. Helsti ókosturinn væri sá að landið væri lítið og takmarkað. „Stemningin verður oft mjög heimilisleg og skemmtileg og það sem er svo æðislegt er að það hjálpast allir ein­ hvern veginn að. Þannig að það er mjög sérstakt ef maður miðar við það sem tíðk­ ast erlendis. Fólk stendur saman en úti eru miklu fleiri og ekki þessi samheldni.“ Árið 2009 var Hildur orðin vel þekkt í al­ þjóðlegu samfélagi framsækinna tónlistar­ manna og gaf út sína aðra plötu, Without sinking. Hún var þá komin á samning hjá útgáfunni Touch, sem meðal annars gaf út tónlist Jóhanns Jóhannssonar heitins á erlendri grundu. Plötuna vann Hildur einmitt með Jóhanni Jóhannssyni, ásamt Skúla Sverrissyni og svo föður sínum, Guðna Franzsyni, og var hún tilnefnd til Íslensku tónlistarverðlaunanna sem besti flytjandinn og fyrir plötu ársins. Ári seinna, í desember 2010, kom fram í grein Mogunblaðsins að Hildur væri „rísandi stjarna sem væri að slá í gegn á alþjóðavettvangi“,en hún hafði þá verið fengin til að semja tónlist við uppsetningu Þjóðleikhússins á verkinu Lér konungur. Þriðja plata Hildar, Leyfðu ljósinu, kom síðan út árið 2012. Tónlistarsystir Jóhanns Jóhannssonar Hildur og unnusti hennar, Sam Slater, eignuðust son sinn, Kára, árið 2012. Árið 2014 var Hildur orðin töluvert eftirsótt í heimi kvikmyndagerðar, auk þess sem hún hélt áfram að spila tónlist víðs vegar um Evrópu og einnig í Bandaríkjunum. Í viðtali við Morgunblaðið sama ár kom fram að margra ára samstarf hennar og Jó­ hanns Jóhannssonar hefði leitt til þess að Hildur fór að vekja eftirtekt í heimi kvik­ myndatónlistarinnar. „Ég hafði svo sem ekki ætlað mér neitt sérstaklega út í kvikmyndatónlist en það hefur einhvern veginn bara æxlast þannig síðustu ár að ég hef unnið mikið í kvik­ myndum. Fólk hefur oft haft á því orð að tónlistin mín sé mjög myndræn og henti þess vegna vel í kvikmyndir. Svo er minn helsti samstarfsmaður og tónlistarbróðir, Jóhann Jóhannsson, búinn að vera á rosa­ legu flugi í kvikmyndatónlist.“ „Við höfum unnið mjög náið saman síð­ asta áratug svo ég hef að miklu leyti leiðst út í þetta með honum. Við komum yfirleitt að flestum verkefnum hvort annars að ein­ hverju leyti. Annars hef ég mjög gaman af því að vinna í kvikmyndum en ég er samt að passa mig aðeins að festast ekki alfar­ ið í því.“ Hún sagði á öðrum stað: „Sjálf er ég t.d. þannig að ég er vakin og sofin yfir því sem ég geri. Mig dreymir yfirleitt alltaf það sem ég hef verið að vinna að yfir daginn. Ég sofna með tónlistina á lúppu í hausnum og er svo yfirleitt í upptökum eða að spila á tónleikum í draumum.“ Í október sama ár ræddi Fréttablaðið við Hildi í tilefni þess að hún hafði verið til­ nefnd til Tónlistarverðlauna Norðurlanda­ ráðs fyrir tónverkið Undir tekur yfir. Hildur sagði þá frá óhugnanlegri lífsreynslu, sem seinna varð innblástur að umræddu verki. „Sumarið 2012 varð ég fyrir þeirri lífs­ reynslu að missa meðvitund. Ég missti reyndar ekki neitt, því það sem gerðist í rauninni var að það urðu eins konar með­ vitundarskipti og undirmeðvitundin tók völdin af þeirri vitund sem yfirleitt ræður ferðinni.“ Heiðarleg og hugrökk Árið 2016 hlaut Hildur menningarverð­ laun DV 2016 í flokki tónlistar. „Hildur er heiðarlegur, hug rakkur og leitandi tónlistarmaður sem fann snemma sína rödd, íhug ula og djúpa. Sú rödd hefur fengið að halda áfram að þroskast og vaxa með hverri nýrri áskorun sem tónlistar­ konan tekst á við“ kom fram í umsögn dómnefndar. Það sama ár hlaut Hildur, ásamt þeim Jóhanni Jóhannssyni og Rutger Hoedemækers, Edduverðlaunin fyrir tón­ listina í sjónvarpsþáttaröðinni Ófærð. Árið 2017 vann Hildur síðan Edduverðlaunin fyrir tónlist sína í kvikmyndinni Eiðurinn. Hildur vann náið með Jóhanni Jó­ hannssyni allt þar til hann féll frá í febrú­ ar 2018, en eitt af þeirra síðustu verkefnum saman var kvikmyndin Mary Magdalene. Saman unnu þau að gerð tónlistar í mynd­ um á borð við Prisoners, Sicario og Arri­ val. Þá sá hún um tónlistina í framhalds­ myndinni Sicario: Day of Soldado, sem var þá stærsta verkefni Hildar í Hollywood. Á síðasta ári komu síðan út sjónvarps­ þættirnir Chernobyl þar sem Hildur er höfundur tónlistarinnar, en eins og kunn­ ugt er hlaut hún Emmy­verðlaunin fyrir verkið. Í ágúst 2018 var síðan tilkynnt að Hildur myndi sjá um tónlistina í væntanlegri kvik­ mynd um Jókerinn úr teiknimyndasögun­ um um Leðurblökumanninn. Restina af sögunni þekkja allir. Hildur tók við Golden Globe­verðlaununum í byrjun þessa mánaðar og skráði sig um leið á spjöld sögunnar þar sem hún er fyrsta konan til að hljóta verð launin einsömul. Aðeins rúmlega viku síðar var tilkynnt að Hild­ ur hefði hlotið tilnefningu til Óskarsverð­ launanna eftirsóttu, en hún er sjöundi Ís­ lendingurinn til að fá tilnefningu. Nú er að bíða og sjá hvort hláturmilda stelpan úr Hafnarfirðinum taki gylltu stytt­ una með sér heim, fyrst Íslendinga. n Þessi ljósmynd var tekin af Hildi þegar hún var 15 ára gömul og tjáði sig um jafnréttismál í tímaritinu Veru. Ljós- mynd/Tímarit.is Hildur vakti athygli sem forsprakki sveitarinnar Woofer og var kölluð „framtíðarsöngkona“. Ljósmynd/Tímarit.is Hildur var fyrst allra til að úrskrifast af nýmiðlabraut LHÍ, 23 gömul. Ljós- mynd/Tímarit.is Í viðtali við Blaðið árið 2006 sagðist Hildur halda mikið upp á tónlist frá Balí og að hana dreymdi um að heimsækja eyjuna. Ljósmynd/ Tímarit.is

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.